Myndband: Vinnuvélar í kappi við glóandi hraun

Í mynd­skeiði sem ljós­myndari Heim­ild­ar­innar tók fyrr í dag má sjá verktaka í kapp­hlaupi við tímann að fylla upp í skarð í varnar­garðinum sem umlykur virkjana­svæði HS Orku og Bláa lónið. Í mynd­bandinu sést í gröfur og jarðýtur færa lausan jarðveg yfir skarðið sem liggur við Norð­ur­ljósaveg, skammt frá flæðandi hrauninu.

Vinnuvélar í óða önn við að stoppa upp í göt á varnargörðunum

Skömmu eftir að gos hófst í morgun fóru viðbragðs­aðilar að undirbúa vinnu við að loka skörðum í varnar­görðunum við Svarts­engi ef ske kynni að hraunið myndi flæða í átt að þeim. Stefnt var að því að geta lokað fyrir götin hratt og miklum jarðvegi var komið fyrir skammt frá opunum þar sem Grindar­víkurvegur og Norðurljósa­vegur liggja að orku­verinu í Svarts­engi og Bláa lóninu. 

Skömmu eftir hádegi hóf hraunið að flæða yfir Grinda­víkurveg og virtist stefna í átt að varnargarðs­opinu við Norðurljósa­vega. Þá lá enn meira á að loka skarðinu þar.

Ljós­myndari Heimildarinnar sem var á vettvangi náði áhuga­verðu myndefni af vinnu­vélunum að störfum við að byggja við varnar­garðinn. Í mynd­bandinu má sjá verktakana á mikilli hraðferð við að færa jarðveg yfir Norðurljósa­veginn á meðan hraunið flæðir nokkrum tugum metra frá þeim. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja nætur­langt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því

Frá og með morgun­deginum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyrir­tækjum í Grindavík heimilt að fara í bæinn og dvelja þar nætur­langt. Í nýlegri frétta­tilkynningu lögreglu­stjórans á Suðurnesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að innviðir bæjarins séu í lamasessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjósanlegur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár