Ráðherra „enn og aftur að beina fingrinum frá sjálfum sér“

Ekkert nýtt kom fram í máli fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í vik­unni. Formaður nefnd­ar­innar segir alveg ljóst að ákvörð­unin um söl­una á Íslands­banka og fyr­ir­komu­lag hennar var og er á ábyrgð ráð­herr­ans.

Ráðherra „enn og aftur að beina fingrinum frá sjálfum sér“
Ábyrgð og hæfi Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, seg­ir að hann hafi gert ráð fyr­ir bless­un þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverj­um og ein­um kaup­anda á Ís­lands­banka í mars 2022. „Við reyndum að fá skýr­ari útskýr­ingar á hvað hann meinti með því,“ segir Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

„Nei, í sjálfu sér ekki,“ segir Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ingar og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, og and­varpar, aðspurð hvort eitt­hvað nýtt hafi komið fram á opnum fundi nefnd­ar­innar í vik­unni þar sem óskað var eftir nán­ari skýr­ingum frá fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra á ráð­gjöf sem hann fékk við sölu á Íslands­banka.

Bjarni Bene­dikts­son, utan­rík­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði á fund­inum að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Þetta hafi verið vegna þess að sölu­með­ferðin byði ekki upp á það sökum þess hraða sem þurfti að vera á henni. Banka­sýsla rík­is­ins hafi enn fremur verið sú sem lagði til þessa sölu­með­ferð, ekki Bjarni, þótt hann hafi sam­þykkt hana.

RáðherraBjarni Bene­dikts­son sagði af sér sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­hhera 10. októ­ber 2023 og tók við sem utan­rík­is­ráð­herra fjórum dögum síðar.

Ákvörðun um sölu og fyrirkomulag á ábyrgð ráðherra

Þórunn segir að nefnd­ar­menn hafi reynt að fá frek­ari skýr­ingar frá Bjarna um hvernig hann geti varpað ábyrgð­inni um að gæta hæfis á Alþingi. „En það liggur svo sem fyrir hvað hann sagði á fund­inum. Mín upp­lifun var sú að ráð­herra var enn og aftur að beina fingrinum frá sjálfum sér og á þingið á meðan það er alveg ljóst að ákvörð­unin um söl­una og fyr­ir­komu­lag hennar var og er á ábyrgð ráð­herr­ans,“ segir Þórunn. Óskað var eftir að Bjarni kæmi fyrir nefnd­ina eftir að hann sagði af sér ráð­herra­emb­ætti í októ­ber í kjöl­far álits umboðs­manns Alþingis sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að Bjarni hafi verið van­hæfur til að taka ákvörðun um sölu á rík­is­banka til félags í eigu föður síns. 

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, átti frum­kvæði að fund­inum og sak­aði hún Bjarna um útúr­snún­inga og stæla á fund­inum. „Mér heyr­ist að hér sé í upp­sigl­ingu eins konar póli­tískur fundur sem á að nýt­ast til þess að velta sér upp úr löngu liðnum hlutum sem ég hef nú þegar axlað ábyrgð á,“ sagði Bjarni. Þór­hildur Sunna benti honum þá á að þetta væri póli­tískur fundur í póli­tískri nefnd. „Er þetta póli­tísk nefnd?“ spurði Bjarni. „Já, þetta er þing­nefnd,“ svar­aði hún.

„Hann situr í ríkisstjórn Íslands“

Bjarni sagð­ist einnig hafa það sterk­lega á til­finn­ing­unni að fund­ar­menn hafi ekki kynnt sér gögnin. „Það er ekki svara­vert,“ segir Þórunn þegar blaða­maður leitar við­bragða við ummælum fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra. Hún segir að það hafi ekki verið að heyra á fram­komu hans á því sem sagt var á fundi nefnd­ar­innar að Bjarni hafi axlað ábyrgð á sölu hlutar rík­is­ins í Íslands­banka. 

Uppgjöri á sölu Íslands­banka er ekki lokið að mati Þórunnar. Ráð­herra­stóla­skipti Bjarna hafi ekki dugað. „Hann situr í rík­is­stjórn Íslands.“ Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefur hins vegar ekki tekið ákvörðun um næstu skref af hálfu nefnd­ar­innar. „En það er að sjálf­sögðu í höndum þing­manna hvað ger­ist næst,“ segir Þórunn.

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár