Eldgos hafið – Hraun rennur í átt að Grindavík

Lögreglan á Suðurnesjum hóf að rýma Grindavík með hraði í nótt. Klukkan 7:57 byrjaði að gjósa. Almann­na­varnir hafa hækkað almanna­varnarstig úr hættu­stigi upp á neyðar­stig. Sprunga hefur opnast beggja vegna varnar­garðanna sem byrjað var að reisa norðan Grinda­víkur.

Byrjað er að gjósa við Grindavík. Eldgosið hófst klukkan 7:57. Gosið er rétt norðan við Hagafell sem er sunnan við syðsta gosop sem opnaðist í síðasta gosi í desember. Almannnavarnir hafa hækkað almanna­varnarstig úr hættu­stigi upp á neyðar­stig.

NálægtÁ myndum frá Land­helg­is­gæsl­unni, sem teknar voru úr þyrlu hennar, sést hversu nálægt byggð gosið er.

Á vef Veður­stofu Íslands segir að af myndum að dæma renni hraun nú í átt að Grindavík. „Út frá mælingum úr þyrlu Landhelgis­gæslunnar er jaðarinn nú um 450 m frá nyrstu húsum í bænum.“

Veður­stofan segir að af fyrstu myndum úr eftirlits­flugi Landhelgis­gæslunnar hafi sprunga opnast beggja vegna varnar­garðanna sem byrjað vara að reisa norðan Grinda­víkur. Auk þess er gat á varnar­garðinum sem hraun er farið að flæða í gegnum. 

Rauða línan sýnir sprung­unaKort frá Veð­ur­stofu íslands sem sýnir áætl­aða stað­setn­ingu gossprung­unnar. Hún er rauða línan á kort­inu.

Áköf smáskjálfta­hrina hófst rétt fyrir klukkan þrjú við Sund­hnúksgíga nokkrum kíló­metrum norðausturf af Grindavík. Hátt í 200 jarðskjlálfar höfðu verið mælst á svæðinu frá því að hrinan hófst og til klukkan fimm í nótt og virknin færðist jafnt og þétt í átt að Grindavík. Stærsti skjálftinn í hrinunni mældist um 3,5 að stærð og varð klukkan 4:07 við Hagafell. Bæði borholu­þrýstings­mælingar (frá HS Orku) og rauntíma GPS stöðvar á svæðinu sýndu einnig breytingar og því var talið líklegt að kviku­hlaup væri að eiga sér stað. 

Í útsendingu úr vefmyndavél RÚV sem staðsett er á Húsa­fjalli mátti sjá beina útsendingu af upphafi eldgossins. 

Vef­mynda­vél RÚV á Húsa­fjalliBrot úr beinni útsend­ingu RÚV sem sýnir upp­haf eld­goss­ins í morgun.RÚV

Veður­stofa Íslands túlkaði þau gögn sem hún hafði undir höndum þannig að allt benti til þess að eldgos væri yfir­vofandi og að hraungos væri líklegasta sviðs­myndin. Það byrjaði síðan að gjósa um átta­leytið í morgun.

Í uppfærslu frá Veður­stofunni frá því klukkan rúmlega sex í morgun kom fram að skjálfta­virknin hefði haldið áfram að færast suður og að fleiri skjálftar hafi mælst undir miðri byggðinni í Grindavík klukku­stundina á undan. „Skjálfta­virknin og þær breytingar sem sjást á GPS stöðvum eru sambærilegar við það sem sást í aðdrag­anda eldgossins 18. desember. Helsti munurinn nú og þá er sá að skjálfta­virknin er talsvert sunnar. Miðað við þróun skjálfta­virkninnar er ekki hægt að útiloka þá sviðsmynd að kvika komi upp innan bæjar­markanna í Grindavík.“

Rétt fyrir klukkan átta í morgun uppfærði Veður­stofan svo hættumatskort í ljósi túlkunar nýjustu gagna. Samkvæmt þeirri uppfærslu hafði hætta aukist á öllum svæðum. Skömmu síðar byrjaði að gjósa.

Nýtt hættu­matHættu­mat­skortið gildir til klukkan 19 mánu­dag­inn 15. jan­úar, að öllu óbreyttu.

Grindavík rýmd með hraði

Samhæfingarstöð Almanna­varna var virkjuð á fjórða tímanum í nótt. Lögreglan á Suðurnesjum hóf samstundis að rýma Grindavík og samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar var gengið í hús og þeim sem þar voru fyrir gefin skammur tími til að taka saman helstu nauð­synjar.

Þeim sem ekki höfðu í önnur hús að venda var bent á að fara í höfuð­stöðvar Rauða krossins í Efstaleiti þar sem fjöldahjálpastöð hefur verið opnuð. Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar frá íbúa í Grindavík þá er ekki gert ráð fyrir að neinn muni gista á bedda í fjölda­hjálpa­miðstöðinni eða hafast þar við til lengri tíma. Þeim sem þangað hafa leitað verður komið fyrir á hóteli á höfuð­borgar­svæðinu á meðan að fundnar verða aðrar lausnir. 

Í tilkynningu Almanna­varna segir að mikil hálka sé á vegum frá Grindavík, og íbúar eru beðnir um að fara varlega. Hótel­gestir sem gistu í Svarts­engis­svæðinu hafa yfirgefið svæðið og þyrla Landhelgis­gæslunnar er í viðbragðs­stöðu. „Eldgos er ekki hafið en allt viðbragð miðar við að það sé yfir­vofandi.“

Átti að rýma á mánudag

Í gær var haldinn blaðamanna­fundur þar sem forystu­fólk almanna­varna og Guðrún Hafsteins­dóttir dómsmála­ráðherra tilkynntu þá ákvörðun almanna­varna að rýma Grindavík, frá og með klukkan 19 á mánudaginn kemur, til að gefa viðbragðs­aðilum svigrúm til að kort­leggja svæðið næstu vikurnar. Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra sagði í færslu á Facebook í gær að ákvörðunin væri stór en að hún hefði verið tekin vegna þess að veruleg áhætta er talin á að sprungur opnist víðar í bænum. „Í síðustu vikunni varð skelfilegt slys þegar maður sem var að störfum í bænum hrapaði ofan í hyldjúpa sprungu og hefur ekki fundist. Hugur okkar allra er hjá aðstand­endum hans og öllum Grind­víkingum.“

Sá maður heitir Lúðvík Pétursson. Hann var fæddur 22. ágúst 1973, á fjögur börn, tvö stjúpbörn og tvö barnabörn. Lúðvík féll ofan í sprungu þegar hann var við jarðvegs­vinnu í Grindavík 10. janúar síðastliðinn. Umfangs­mikil leit var gerð af honum ofan í sprungunni en hún skilaði ekki árangri og á föstudags­kvöld var ákveðið að hætta henni.

Forsætis­ráðherra sagði í áður­nefndri færslu að íbúa­fundur hafi verið boðaður á þriðjudag þar sem hún „og vonandi fleiri ráðherrar ríkis­stjórnarinnar“ munu vera. „Þar verður farið yfir húsnæðis­málin en unnið er að frekari kaupum á íbúðum af hálfu stjórn­valda. Það stendur yfir samtal við lífeyris­sjóðina vegna þeirra íbúa sem eru með íbúðalán hjá þeim. Verið er að skoða úrræði vegna atvinnu­rekstrar í bænum. Þá verður farið yfir stöðu mála hjá Náttúru­hamfara­tryggingu og fleiri þau mál sem ég veit að brenna á bæjarbúum. Við munum áfram standa með Grind­víkingum í þessari lang­varandi atburðarás þar sem óvissan er því miður enn mikil. Og gera það sem þarf til að komast í gegnum þessa ágjöf sem sannanlega er erfið fyrir Grind­víkinga alla sem mætt hafa stöðunni af einstöku æðruleysi.“

Stutt síðan það gaus síðast

Eldgosið hófst norðan við Sundhnúk á Sund­hnúka­röðinni, um fjórum kíló­metrum norð­austur af Grindavík og í námunda við Svarts­engi, á ellefta tímanum þann 18. desember síðastliðinn. Í aðdrag­anda þess varð líka kröftug jarð­skjálfta­hrina á borð við þá sem nú gengur yfir. 

Um miklu stærra gos var að ræða, og miklu kraft­meira, en þau eldgos sem orðið hafa á svæðinu á undan­förnum árum. Bæði var gossprungan mun lengri og magnið af kviku sem streymdi úr henni til að byrja með mun meira. Gosið stóð þó stutt yfir og 21. desember var því lýst yfir að gosinu væri lokið. 

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja nætur­langt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því

Frá og með morgun­deginum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyrir­tækjum í Grindavík heimilt að fara í bæinn og dvelja þar nætur­langt. Í nýlegri frétta­tilkynningu lögreglu­stjórans á Suðurnesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að innviðir bæjarins séu í lamasessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjósanlegur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið undanfarið ár