Tveir stjórnarmenn í RÚV vildu hætta við þátttöku í Eurovision – Restin sagði nei

Fulltrúi Pírata lagði fram til­lögu á stjórn­ar­fundi hjá RÚV þar sem álykta ætti um að ekki yrði „tekið þátt í Eurovision 2024 ef Ísrael tekur þátt í keppn­inni.“ Einn stjórn­ar­maður studdi það að taka til­lög­una til atkvæða. Aðrir stjórn­ar­menn höfn­uðu því.

Tveir stjórnarmenn í RÚV vildu hætta við þátttöku í Eurovision – Restin sagði nei
Enga skoðun á átök­unum Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri hefur þegar til­kynnt að RÚV muni ekki bregð­ast við áskor­unum um að draga Ísland úr keppni. Stefnt er að því RÚV taka þátt í keppn­inni eins það hefur gert síðan 1986.

„Ég er í stjórn RÚV. Ég hef aldrei áður tjáð mig opin­ber­lega um setu mína þar. Í dag get ég ekki orða bund­ist og er sleg­inn. Á fundi stjórnar lagði ég fram eft­ir­far­andi til­lögu að ályktun vegna Eurovision: „Stjórn RÚV ályktar að ekki verði tekið þátt í Eurovision 2024 ef Ísrael tekur þátt í keppn­inni.“ Fund­ur­inn hafn­aði því að taka þessa til­lögu til atkvæða. Aðeins Margrét Tryggva­dóttir studdi hana.“ 

Þetta skrifar Mörður Áslaug­ar­son, full­trúi Pírata í stjórn RÚV, í færslu á Facebook í kvöld.

Stjórn RÚV er kosin á aðal­fundi í apríl ár hvert en Alþingi til­nefnir níu menn og jafn­marga til vara sem kosnir skulu í stjórn félags­ins. Starfs­manna­sam­tök RÚV til­nefna einnig einn mann og annan til vara. Stjórn RÚV fer með æðsta vald í mál­efnum þess á milli aðal­funda. Stjórnin ber ábyrgð á rekstri RÚV og að farið sé eftir lögum um Rík­is­út­varpið, að sam­þykktir þess og ákvæði samn­ings um fjöl­miðlun í almanna­þágu séu upp­fyllt. for­maður stjórnar er Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og vara­for­maður hennar er Ingvar Smári Birg­is­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar á meðan að hann var dóms­mála­ráð­herra. Aðrir stjórn­ar­menn eru Rósa Krist­ins­dóttir, Marta Guðrún Jóhann­es­dóttir, Aron Ólafsson, Diljá Ámunda­dóttir Zoëga og Þráinn Ósk­ars­son auk þeirra Marðar og Mar­grétar. Fulltrúi starfs­manna í stjórn RÚV er Hrafn­hildur Hall­dórs­dóttir.

Textahöfundar og tónskáld á móti

Stjórn, félags tón­skálda og texta­höf­unda (FTT), sendi í vik­unni áskorun til Stefáns Eiríks­sonar útvarps­stjóra og stjórnar RÚV þar sem hún skor­aði á RÚV að taka ekki þátt í Eurovision árið 2024 nema Ísraelum verði meinuð þátt­taka í keppn­inni á sömu for­sendum og Rússum í síð­ustu keppni. 

Í áskor­un­inni sagði: „Okkur er öllum skylt að taka afstöðu gegn stríði og morðum á óbreyttum borg­urum sem sak­lausum börnum. Við höfum alltaf val um að leggja ekki nafn okkar við slíkt hvort sem við erum ein­stak­lingar eða stofn­anir rík­is­ins. Við skuldum þeim þjóðum sem fara fram með offorsi í krafti hern­að­ar­máttar ekki að deila með þeim sviði á við­burði sem alla jafna ein­kenn­ist af gleði og bjart­sýni.“

Undir áskor­un­ina skrif­aði öll stjórn FTT. Í henni sitja Bragi Valdimar Skúlason for­maður, Védís Hervör Árna­dóttir vara­for­maður, Sóley Stef­áns­dóttir, Ragn­heiður Gröndal, Andri Ólafsson, Hallur Ing­ólfs­son og Hildur Kristín Stef­áns­dóttir.

FTT eru nú 450 höf­undar og er félagið annað tveggja aðild­ar­fé­laga STEFs, Sambands tón­skálda og eig­enda flutn­ings­réttar. Hitt félagið er Tón­skálda­fé­lag Íslands, vett­vangur þeirra sem starfa á vett­vangi klass­ískrar tón­listar. Því er um að ræða félag þeirra tón­skálda og texta­höf­unda sem lík­leg­astir eru til þess að taka þátt í Söngvakeppni RÚV, sem er und­ankeppni Eurovision á Íslandi. 

Segir RÚV ekki hafa skoðun á átökunum

Stefán Eiríks­son sagði í sam­tali við Heim­ild­ina í byrjun viku að afstaða RÚV gagn­vart þátt­töku Ísrael í Eurovision sé „á sömu línu og EBU og ann­ara almanna­þjón­ustu­miðla.“ Það eigi bæði við um ákvörðun sam­bands­ins um reka Rússland úr söngvakeppn­inni, og svo þeirrar að leyfa Ísrael að halda áfram að taka þátt í söngvakeppn­inni. 

Margir hafa stigið fram og gagn­rýnt þessa ákvörðun RÚV. Þar á meðal rit­höf­und­ur­inn Bragi Páll sem vakti athygli á gjör­ó­líkri afstöðu útvarps­stjóra gagn­vart  þátt­töku Rúss­lands ann­ars vegar og gagn­vart Ísrael hins vegar. Í færsl­unni lýsir Bragi þessu sem „tvö­földu sið­gæði.“

Spurður út í þessa gagn­rýni þar sem bent er á þessar ólíku stefnur RÚV sagði Stefán við Heim­ild­ina í gær að „RÚV hefur engar sér­stakar skoð­anir á þessum átökum per se, við erum bara að tala þarna um söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva og það sem að henni snýr. Þannig það er alveg skýrt, RÚV hefur ekki það hlut­verk að taka afstöðu.“

Stefán sagði enn fremur að hlut­verk RÚV sé fyrst og fremst að flytja fréttir og gæta þess að sá frétta­flutn­ingur sé hlut­laus og hlut­lægur eins og lög kveða á um.

Tæplega átta þús­und manns hafa skrifað undir lista þar sem skorað er á RÚV að draga sig úr keppni. Útvarps­stjóri hefur þegar til­kynnt að RÚV muni ekki bregð­ast við þess­ari áskorun. Stefnt er að því RÚV taki þátt í keppn­inni eins það hefur gert síðan 1986.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár