Einmana þar til ég hitti hana

Viktor Örn Jónsson var feim­inn og ein­mana áður en hann hitti kærust­una sína fyrir þremur árum, þá nítján ára gam­all. En hún hefur komið honum út fyrir þæg­ind­ara­mmann og þannig breytt lífi hans.

Einmana þar til ég hitti hana

Ég heiti Viktor Örn Jónsson og við erum hérna fyrir framan Toll­húsið. Þetta er reyndar orðin aðstaða fyrir Grind­vík­inga og bæj­ar­skrif­stofur Grinda­víkur eru hérna, það er nú ekki mikið meira spenn­andi en það. Ég er dyra­vörður fyrir Securitas og við erum aðal­lega að passa upp á mann­gang hérna í Toll­hús­inu, það mega nátt­úr­lega bara Grind­vík­ingar koma hingað inn. Það er ekk­ert flókn­ara en það. Það reynir eng­inn að ráfa hér inn sem á ekki erindi, bara þeir sem eru að leita að Skatt­inum. Ég er hér á tólf tíma vöktum. Nei, ég stend ekki fyrir utan allan tím­ann, mig lang­aði bara í ferskt loft. 

Augna­blikið sem breytti far­vegi lífs míns var þegar ég hitti kærust­una mína. Hún hefur svo­lítið mótað mig og breytt mér til góðs. Sam­bandið okkar verður þriggja ára í jan­úar svo þetta gerð­ist fyrir þremur árum. Þetta var góður tími. 

Ég hef alltaf verið ein­mana og hún hefur komið mér út fyrir þæg­ind­ara­mmann. Ég hef farið meira út á lífið og hitt vini og félaga og annað. Við erum mjög ólík að eðl­is­fari. Ég var mjög feim­inn á tíma­bili en ég er alveg búinn að breyt­ast, núna tala ég bara við alla og fer allt, ég er bara í öllu núna. 

Það var erfitt að kynn­ast henni fyrst því ég var svo feim­inn, en svo bara breytt­ist ég. Ég veit ekki nákvæm­lega hvað það var en ég breytt­ist. Ég veit ekki hvernig ég á að útskýra það en þetta er alla­vega góð breyt­ing. Lífið er öðru­vísi þegar maður er ekki jafn feim­inn lengur, maður kynn­ist sam­fé­lag­inu meira og gerir hluti sem maður þorði ekki áður. Ég veit ekki hvernig er best að orða þetta. 

Ég er búinn að kynn­ast mörgum Grind­vík­ingum og þetta er indælt fólk og það er gott að vera hérna. Andinn í hús­inu er góður og við stöndum saman í þessu og reynum að hjálp­ast að. 

Kjósa
57
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár