Mynd: AFP

Þegar manndrápunum loksins linnir

Lausnin á deil­unni fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs hefur legið fyrir í þrjá­tíu ár. Hún felur í sér tveggja ríkja lausn með sæmi­lega sjálf­ráðu ríki Palest­ínu­manna á ríf­lega 20% af landi í Palest­ínu.

Það var ekki aðeins ára­tuga löng stefna Ísraels í mál­efnum Palest­ínu sem hrundi með hryðju­verka­árás Hamas. Stefna flestra öfl­ug­ustu ríkja á svæð­inu gerði það líka og frestaði í það minnsta draumum olíu­ríkj­anna um nýja ásýnd og skipan Mið-Aust­ur­landa. Um leið eru Banda­ríkin, með sitt sér­staka stjórn­mála­líf í aðdrag­anda kosn­inga, lent í svo þröngri stöðu að vand­séð er hvernig málið getur orðið til ann­ars en sögu­legs tjóns á áhrifum og til­trú Banda­ríkj­anna á heim­inum.  

Ríkjandi stefna í rústum

Mikil óvissa mun ein­kenna næstu vikur og mán­uði. Fernt er þó ljóst. Eitt er að hvorki Ísrael né Banda­ríkin eru með plan sem gæti virkað. Ekki einu sinni til skamms tíma. Annað er að ríki Araba munu ekki taka við stjórn Gaza eða upp­bygg­ingu þar nema þau geti gefið íbúum svæð­is­ins fyr­ir­heit um mjög breytta tíma fram undan. Það myndi krefj­ast stórra breyt­inga á stefnu Ísraels og Banda­ríkj­anna sem …

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Ekki voru og eru það þó hamas sem eru tilbúnir að viðurkenna tilvist Ísraelsríkis. Á þeirra stefnuskrá er útrýming Ísraels.
    Þeir voru kosnir í stjórn Palestínu 2007 og í kjölfarið lokuðu Ísraelsmenn á samskiptum - að vissu leyti skiljanleg viðbrögð. Hames eru víðar skráðir sem hryðjuverkasamtök og sýnir gegndarlausa ofbeldið þeirra og nauðganir þann 7.10. að það er ekki að ástæðulausu.
    Reyndar hafa Palestínumenn ekki fengið að kjósa síðan, hamas hefur líklega ekki séð ástæðu til þess.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár