Saka ráðuneyti um hræðslutaktík og þöggunartilburði gegn rétttindagæslufólki

Freyja Har­alds­dóttir, rétt­ar­gæslu­maður og þáver­andi tals­maður fatl­aðs hæl­is­leit­anda, sakar emb­ætt­is­menn í félags­mála­ráðu­neyt­inu um ítrekuð óeðli­leg afskipti af störfum sínum. Yfir­maður hennar stað­festir frá­sögn hennar og segir ráðu­neytið ítrekað hafa gert athuga­semdir við það þegar gagn­rýni beind­ist að ráðu­neyt­inu. Ótækt sé að sinna eft­ir­liti með ráðu­neyt­inu sem stýrir eft­ir­lit­inu.

Saka ráðuneyti um hræðslutaktík og þöggunartilburði gegn rétttindagæslufólki
Hætti í kjöl­far afskipta ráðu­neytis Freyja Har­alds­dóttir hafði verið einn af tólf rétt­inda­gæslu­mönnum fatl­aðra á Íslandi í þrjú ár þegar hún hætti störfum í sumar. Segir þögg­un­ar­til­burði og hræðslutaktík ráðu­neytis félags­mála eina stærstu ástæðu þess. Hún er ekki ein um að telja ráðu­neytið hafa höndlað það illa að fara með yfir­stjórn yfir rétt­inda­gæslu­fólki. Mynd: Golli

Það er ótækt að rétt­inda­gæsla fyrir fatlað fólk, sem oftar en ekki bein­ist gegn stjórn­völdum, skuli vera sett undir stjórn þess sem eft­ir­litið bein­ist gegn. Félags- og vinnu­mála­ráðu­neytið er sagt ítrekað hafa brugð­ist illa við gagn­rýni rétt­inda­gæslu­manna og kallað yfir­mann þeirra á teppið vegna þess. 

Kona sem sinnti rétt­inda­gæslu fyrir hæl­is­leit­anda með fötlun, segir ráðu­neyti félags­mála hafa reynt að hræða sig frá því að sinna og fjalla opin­ber­lega um aðstæður manns­ins. For­stöðu­maður rétt­inda­gæsl­unnar stað­festir afskipti ráðu­neyt­is­ins og segir það illa höndla gagn­rýni. Forveri hans segir rétt­inda­gæslu­kerfið hafa skað­ast af þessum sökum.

„Ég starf­aði við rétt­inda­gæsl­una þar til í sumar og var með málið hans Hussein Hussein og aðstoð­aði hann í eitt og hálft ár, þar til honum var brott­vísað í des­em­ber í fyrra,“ segir Freyja Har­alds­dóttir, fyrr­ver­andi rétt­inda­gæslu­maður, í sam­tali við Heim­ild­ina. Í nýlegri færslu á Facebook upp­lýsir hún um og gagn­rýnir harð­lega afskipti ráðu­neytis félags­mála af vinnu …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár