Mynd: Pétur Maack

Umhyggjan er lykillinn

Ásgeir Brynjar, rit­stjóri Vís­bend­ingar, ræðir við Önnu Maríu Boga­dóttur, dós­ent í arki­tektúr, um Tatiönu Bilbao sem er mik­il­væg rödd í sam­tíma­arki­tektúr. Eðli máls­ins sam­kvæmt var sam­talið jafn­framt um arki­tektúr í nútím­anum.

Heimsókn Tatiönu var skipu­lögð í til­efni þess að tutt­ugu ár eru liðin frá því að kennsla í arki­tektúr hófst hér­lendis og þess að fyrr í ár luku nem­endur í fyrsta sinn fulln­að­ar­námi í arki­tektúr hér­lendis, í kjöl­far þess að haustið 2021 hófst kennsla í arki­tektúr á meist­ara­stigi við Lista­há­skóla Íslands.

Það var að frum­kvæði Sigríðar Maack, for­manns Arki­tekta­fé­lags Íslands, sem hitti Tatiönu í Kaup­manna­höfn og fal­að­ist eftir því að hún kæmi til Íslands, að Tatiana kom til lands­ins.

Fyr­ir­lestur Tatiönu í Grósku og viku­löng vinnu­stofa hennar með öllum nem­endum arki­tekt­úr­deild­ar­innar var gjöf Arki­tekta­fé­lags­ins til Lista­há­skól­ans og nem­enda í arki­tektúr í til­efni þessa mik­il­væga áfanga í arki­tekt­úr­menntun hér­lendis. Lista­há­skóli Íslands, Reykja­vík­ur­borg, Fram­kvæmda­sýslan-Rík­is­eignir, Fræða­garður, ræð­is­maður Mexíkó á Íslandi og um fimm­tíu íslenskar arki­tekta­stofur lögðu hönd á plóg með Arki­tekta­fé­lag­inu til þess að gera heim­sókn Tatiönu að veru­leika en viku­löng vinnu­stofa allra nem­enda í arki­tektúr fór fram undir leið­sögn hennar með …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár