Mynd: Pétur Maack

Umhyggjan er lykillinn

Ásgeir Brynjar, ritstjóri Vísbendingar, ræðir við Önnu Maríu Boga­dóttur, dósent í arkitektúr, um Tatiönu Bilbao sem er mikilvæg rödd í samtíma­arkitektúr. Eðli málsins samkvæmt var samtalið jafnframt um arkitektúr í nútímanum.

Heimsókn Tatiönu var skipulögð í tilefni þess að tuttugu ár eru liðin frá því að kennsla í arkitektúr hófst hérlendis og þess að fyrr í ár luku nemendur í fyrsta sinn fullnaðar­námi í arkitektúr hérlendis, í kjölfar þess að haustið 2021 hófst kennsla í arkitektúr á meistara­stigi við Lista­háskóla Íslands.

Það var að frumkvæði Sigríðar Maack, formanns Arkitekta­félags Íslands, sem hitti Tatiönu í Kaupmanna­höfn og falaðist eftir því að hún kæmi til Íslands, að Tatiana kom til landsins.

Fyrir­lestur Tatiönu í Grósku og vikulöng vinnu­stofa hennar með öllum nemendum arkitektúr­deildarinnar var gjöf Arkitekta­félagsins til Lista­háskólans og nemenda í arkitektúr í tilefni þessa mikilvæga áfanga í arkitektúr­menntun hérlendis. Lista­háskóli Íslands, Reykja­víkurborg, Framkvæmda­sýslan-Ríkis­eignir, Fræða­garður, ræðis­maður Mexíkó á Íslandi og um fimmtíu íslenskar arkitekta­stofur lögðu hönd á plóg með Arkitekta­félaginu til þess að gera heimsókn Tatiönu að veruleika en vikulöng vinnu­stofa allra nemenda í arkitektúr fór fram undir leiðsögn hennar með …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár