For­ystu­fólk rík­is­stjórn­ar­innar Katrín Jak­obs­dóttir sagði í ræðu fyrir rúmu ári að um það hefði verið talað í tutt­ugu ár að láta þá sem þéna fjár­magnstekjur borga útsvar, en að nú væri kom­inn tími aðgerða. Þær aðgerðir, sem þurfa að koma frá ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar, hafa látið á sér standa. Mynd: Golli

Fjármagnstekjufólk eykur tekjur sínar en sleppur áfram við að borga útsvar

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar var lofað að loka ehf-gat­inu og láta þá sem afla fjár­magnstekna borga útsvar. Frumvarp þess efnis var boðað en það svo dregið til baka og starfs­hópur skip­aður. Hann átti að skila af sér í sumar og nýtt frum­varp að koma í haust. Hvorugt gerð­ist og enn bólar ekk­ert á frum­varp­inu sem gæti skilað hinu opin­bera millj­örðum króna í nýjar tekjur.

Í des­em­ber í fyrra bætti Bjarni Bene­dikts­son, þá fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, fram­lagn­ingu um end­ur­skoð­aðar og ein­faldar reglur um reiknað end­ur­gjald inn á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar. Frum­varpið átti að efna lof­orð sem sett var fram í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar um að komið yrði í veg fyrir „óeðli­lega og óheil­brigða hvata til stofn­unar einka­hluta­fé­laga“.

Þeir óeðli­legu hvatar fela í sér að þeir sem eiga eign­ar­halds­fé­lög utan um ein­hvers konar rekstur geta reiknað sér afar lág laun fyrir þá vinnu sem felst í rekstr­inum. Þess í stað telja þeir fram meg­in­þorra tekna sem fjár­magnstekjur. Þetta getur sparað þeim umtals­verðar skatt­greiðslur, enda er hæsta skatt­­þrepið í almennum tekju­skatti 46,25 pró­­sent en sam­an­lagður skattur á hagnað og arð­greiðslur er tals­vert lægri, eða 37,6 pró­­sent. Auk þess er ekki greitt útsvar til sveit­ar­fé­laga vegna fjár­magnstekna þrátt fyrir að þeir sem eru með fjár­magnstekjur nýti sann­ar­lega þá þjón­ustu sem útsvarið greiði fyrir.

Heim­ildin nefndi dæmi um þessa …

Kjósa
53
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • LDA
    Lilja Dögg Arnþórsdóttir skrifaði
    Kristrún Frostadóttir baunaði þessu á Sigurð Inga í Kastljósi rétt fyrir þinglok í sumar, þegar hún talaði um að vera með fullfjármagnaðar aðgerðir fyrir fólkið í landinu með því að loka þessu EHF gati .. Þá svaraði Siguður kok hraustur að þetta mál væri á leiðinni, fjármálaráðherra væri að vinna í því og að HANN hefði tekið málið fyrir á þingi árið 2010 .. og ég hugsaði bara VÁ hvað við erum með öfluga stjórnaflokka á Íslandi.
    2
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Allt eins, og VG liðar gera bara það sem sjálfstæðisflokkurinn vill .
    Hvaða tilgang á VG í íslenska pólitík ?
    3
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Djöfull góð mynd! "Hr Bjarni Ben. má ég náðarsamlega.......?
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár