Tvær konur í möstrum á móti körlum með skutulsprengjur

Elissa Bijou hefur aldrei séð lif­andi lang­reyði. En hún hefur séð fjöl­margar dauðar og segir það mann­skemm­andi reynslu. Þegar hún heyrði af því að leyfa ætti veiðar á þeim að nýju hér á landi var hún ákveðin í að gera eitt­hvað í mál­inu. Örfáum dögum seinna var hún stödd í mast­urstunnu íslensks hval­veiði­skips. Nokkrum metrum frá henni var kona sem hún hafði aðeins þekkt í tæpa þrjá sól­ar­hringa. Anahita Babaei. Þær ræða reynsl­una við Heim­ild­ina í ítar­legu mynd­bands­við­tali.

„Ertu viss um að við séum að fara að gera þetta?“ spurði Anahita Babaei Elissu Bijou rétt áður en þær klifr­uðu upp í möstur hval­veiði­skipa við Reykja­vík­ur­höfn með það að mark­miði að koma í veg fyrir að skip Krist­jáns Lofts­sonar kæmust út á miðin. 

„Já,“ sagði Elissa. „Stóra hug­myndin“ sem hafði fæðst í sam­tali hval­veiði­and­stæð­ing­anna tveggja á mót­mælum þremur dögum áður var að verða að veru­leika. 

Þetta var á fimmta tím­anum síð­ast­lið­inn mánu­dags­morgun. 

Anahita var svöng og þyrst því hún hafði ákveðið að reyna að halda sig frá mat og drykk síð­ustu klukku­stund­irnar áður en upp var haldið til þess að geta haldið lengur í sér uppi í mast­urstunn­unni sem myndi verða hennar sama­staður næstu 33 klukku­stundir. 

„Ef við getum bjargað einum hval verður þetta virði allrar áhættunnar“

Þegar …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið undanfarið ár