„Maður má ekki vera neikvæður“

Þorlákur Marteinsson seldi Verkfæra­söluna á síðasta ári og kaup­verðið fleytti honum upp í 13. sæti yfir þá sem hæsta skatta greiddu á Íslandi á síðasta ári. Þorlákur segist vilja góða heilbrigðis­þjónustu fyrir skattana sína en því sé því miður ekki að heilsa í dag. „Ég held að þetta sé handónýtt.“

Þorlákur Marteinsson greiddi alls tæpar 226 milljónir króna í skatta á síðasta ári, sem gerir hann að öðrum hæsta skatt­greiðanda Hafnar­fjarðar og setur hann í þrettánda sæti yfir þau sem hæsta skatta greiddu á landinu öllu árið 2022. Stærstur hluti skatt­greiðslna Þorláks voru fjármagns­tekju­skattar, alls tæpar 224 milljónir króna, sem eru að mestu tilkomnar vegna sölu á fyrirtæki Þorláks, Verkfæra­sölunni, sem Rubix Ísland keypti á síðasta ári.

„Jú, þakka þér fyrir,“ svaraði Þorlákur þegar blaða­maður Heimildarinnar byrjaði samtalið á að óska honum til hamingju með velgengnina á síðasta ári í tekjulegu tilliti. Aðspurður um hvernig það slægi hann að vera nú meðal efsta fólks á lista yfir skatta­kónga og -drottningar Íslands svaraði Þorlákur: „Þetta er bara lífið. Ég hef alltaf borgað mikla skatta, þannig lagað.“

Og ekki talið það eftir þér, eða hvað?

„Nei, nei, maður vill bara hafa góða sjúkrahús­þjónustu. Sem …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár