Haraldur þénaði 46 milljónir á mánuði en launin voru samt helmingi lægri en árið áður

Tveir Íslend­ingar þén­uðu yfir 100 millj­ónir króna á mán­uði í laun á árinu 2021. Sá sem var með hæstu launa­tekjur á land­inu á árinu 2021 þén­aði ein­ungis um fjögur pró­sent af þeim í fyrra en var samt með marg­föld reglu­leg íslensk heild­ar­laun. Hinn, Haraldur Ingi Þor­leifs­son, var enn með hæstu launa­tekjur allra Íslend­inga á síð­asta ári, og borg­aði yfir 250 millj­ónir króna í skatta.

Haraldur þénaði 46 milljónir á mánuði en launin voru samt helmingi lægri en árið áður

Magnús Steinarr Norðdahl var sá Íslend­ingur sem hafði hæstu launa­tekj­urnar á árinu 2021. Hann fékk tæp­lega 118 millj­ónir króna í laun að með­al­tali í hverjum mán­uði á því ári. Ástæðan var sú að Magnús, sem hafði verið for­stjóri hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins LS Retail, fékk gerðan upp risa­stóran kaup­rétt­ar­samn­ing þegar fyr­ir­tækið var selt í októ­ber 2021 til Aptos, félags í eigu banda­ríska fjár­fest­inga­bank­ans Goldman Sachs. Kaup­rétt­ur­inn var gerður upp sem launa­tekjur og af honum því borg­aður launa­skattur, ekki fjár­magnstekju­skattur sem er mun lægri. 

Í sam­tali við Heim­ild­ina í fyrra sagði Magnús að það væri honum mikil ánægja að borga háa skatta. „Ég hef alltaf greitt háa skatta og það hefur verið mark­miðið mitt lengi,“ Hann sagði að þrátt fyrir að hafa látið af störfum sem for­stjóri LS …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Kauprétturinn var gerður upp sem launatekjur og af honum því borgaður launaskattur, ekki fjármagnstekjuskattur sem er mun lægri"
    - Það gildir önnur regla þegar kvótarétturinn er seldur. Þar er bara greiddur 22% fjármagnsskattur, ekki 46.25% launaskattur.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár