Þögult auðmagn og þögult vald

Ríkasta eina prósent heimsins hefur breytt neyslu­mynstri sínu og farið frá því að keppast við að sýna hver er ríkastur með lífsstíl, snekkjum og merkja­vöru, yfir í að fjárfesta í menntun, heilsu og langlífi. Félags­fræðingur segir það gert til að aðgreina sig, bæði frá almenningi og öðrum sem bera það utan á sér að eiga peninga. Það þykir þeim allra ríkustu ekki lengur smart.

Að hanna einkennis­klæðnað auðkýfinga,“ þannig lýsti hönnuður tísku­hússins Brunello Cucinelli, sem vinsælt er á meðal ríkasta eina prósentsins, starfi sínu í viðtali við New York Times. 

Merkið er kennt við hönnuð sem hætti í verk­fræðinámi og notaði 550 dollara lán til að koma á markað tískulínu úr hágæða­efnum árið 1978. Fyrir vikið er hann stundum kallaður konungur kasmírsins. Klæðnaðurinn er látlaus og merkja­laus, eitt af því sem einkennir hið þögla auðmagn. 

Hugmyndin um hið þögla auðmagn og þögla vald birtist í hinum sívinsælu sjónvarps­þáttum Succession. Frá því að þeir hófu göngu sína árið 2018 hafa þeir sópað að sér bæði verð­launum og lofi. Þættirnir fylgja eftir Roy-systkinunum, þeim Kendall, Shiv, Roman og Connor. Systkinin keppast við að ná athygli og samþykki föður síns, Logan Roy fjölmiðla­móguls, í þeirri von að verða einn daginn, þrátt fyrir vanhæfi þeirra, arftakar hans. Það er sú togstreita sem vísað er í titli …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár