Mynd: Óskar Hallgrímsson

Geta aldrei ræktað neitt aftur og fóru að breyta pallbílum í færanlega skotpalla

Það er erfitt að finna sterk­ari hvatn­ingu til nýsköp­unar en ógn við sjálfa til­ver­una. Feðgar sem stund­uðu land­búnað á jörð sinni í Úkraínu fyrir stríð eru nú komnir í „Gerðu það sjálfur“-vopna­fram­leiðslu. Þeirra nýsköpun felur í sér að breyta pall­bílum í fær­an­lega skot­palla til að nýt­ast í stríð­inu.

Við lítum oft á sög­una sem eins konar upp­skrift að því sem koma skal. Auðvelt er að bera saman hin ýmsu stríð úr for­tíð­inni við þau sem við heyjum í nútím­anum og þannig reynum við að hafa ein­hverja hug­mynd um það sem koma skal. Stríðið í Úkraínu hefur kennt okkur þá lexíu að það er í raun ekk­ert sem heitir hefð­bundið stríð og jafn­vel hug­takið um nútíma­stríð, er ein­göngu síð­asta stríð. Þó sagan sé stutt, þá er hún svo sann­ar­lega í for­tíð.

Einhver sagði mér að sagan end­ur­tekur sig ekki en hún á það til að ríma og það er vissu­lega til­fellið hér. Það sem rímar er að stríð eru í flestum til­fellum hörmu­leg, sprengjur springa og skotið er úr byssum. Það kemur manni jafn­vel á óvart hversu oft gam­al­dags verk­færi og kænska svipa til milli stríða.

Skot­grafir eru gott dæmi um end­ur­tekið rím milli stríða en þær eru eitt­hvað …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Konráð Eyjólfsson skrifaði
    Skrifaðu meira Óskar. Ég upplifi að þessi hlið málanna svona vel framsett hrærir upp í doðanum sem ofgnótt upplýsinga og umfjallana frá pólitíkusum og bútafréttum skapar. Þarna er fólk að gera hluti sem maður samsamar sig við og langar að leggja lið
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár