Hnúfu­bakur Undir sporð­unum á hnúfu­bökum er sér­stakt mynstur, líkt og fingrafar manna.

Höfðingjar hafsins: Á heimavelli hvala

Hvalir eiga í flóknum sam­skiptum sín á milli og minnir margt í þeirra atferli á mann­fólkið. Edda Elísabet Magn­ús­dóttir, lektor í líf­fræði, segir höfr­unga þá teg­und sem kemst næst vits­munum manns­ins. Þegar hval­veiði­bann rík­is­stjórn­ar­innar var kynnt þann 20. júní síð­ast­lið­inn var Heim­ildin um borð í hvala­skoð­un­ar­skipi á Faxaflóa.

Klukkan er 09:00 að morgni þriðju­dags­ins 20. júní 2023. Hópur af grunn­skóla­börnum gengur um borð í hvala­skoð­un­ar­bát Eldingar. Hinum megin við bryggj­una er hval­veiði­skip Krist­jáns Lofts­sonar þar sem sjó­menn eru að und­ir­búa ver­tíð sum­ars­ins, en hún hefst á morgun. Einn af þeim tekur hólk­inn af byss­unni fremst á skip­inu og stillir stóran skut­ul­inn. Allt er eins og það á að vera.

Heim­ildin / Davíð Þór

„Ef ein­hver dýr kom­ast nálægt okkar vits­munum þá eru það vissu­lega höfr­ungar,“ segir Edda Elísabet Magn­ús­dóttir, lektor í líf­fræði við Háskóla Íslands. Edda Elísabet hefur stundað rann­sóknir á hvölum um ára­bil. Áhugi hennar á dýra­teg­und­inni vakn­aði þegar hún var barn en eftir að hafa skrifað loka­rit­gerð sína í Kvenna­skól­anum í Reykja­vík um hvali var ekki aftur snúið. 

Rannsóknir

Sam­skipti hvala hafa verið rann­sökuð allt frá 7. ára­tug síð­ustu aldar en þær rann­sóknir sem gerðar voru á þeim tíma myndu margar hverjar ekki stand­ast sið­ferð­is­legar kröfur sam­tím­ans. „Þá voru til dæmis fram­kvæmdar alls konar rann­sóknir á höfr­ungum í haldi. En svo ger­ist það fyrir til­viljun að það heyr­ast hljóð á upp­tökum neð­an­sjáv­ar­dufla sem notuð eru í hern­að­ar­legum til­gangi. Fyrir þessa til­viljun komst fólk að því með vissu að þetta væru hvalir,“ segir Edda Elísabet.

Eftir upp­götv­un­ina miklu fundu vís­inda­menn mynstur í hljóð­unum en í vatni berst hljóð hraðar en á landi og eyð­ist hægar út. „Mynstrin benda til þess að þarna séu hval­irnir að syngja ein­hverja fyrir fram til­búna runu, kannski eins og fugla­söngva nema bara miklu lengri.“ Hljóðin vöktu mikla athygli og þóttu svo fögur að gefnar voru út plötur svo almenn­ingur gæti hlustað sér til skemmt­unar. „Það eru ein­hverjir á Íslandi sem hafa komið til mín og sagst eiga þessa plötur,“ segir Edda Elísabet og brosir. 

Enn hefur vís­inda­fólk ekki kom­ist að því hvað hvert og eitt kall þýðir en það er alveg skýrt að sam­skiptin eru háþróuð og höfð í ein­hverjum til­gangi. Edda Elísabet greinir frá því að hvalir séu í tíðum sam­skiptum til að senda upp­lýs­ingar sín á milli, líkt og við mann­fólkið. „Á fengi­tím­anum syngja steypireyðar og lang­reyðar svipað og hnúfu­bak­ur­inn, en hljóð­merkin eru ekki eins fjöl­breytt. Steypireyð­arnar fara svo­lítið mikið niður í bass­ann og senda út löng djúp baul sem ber­ast lengra.“ Með hljóð­upp­töku­tækjum er hægt að gera vís­inda­fólki kleift að stað­setja hvali og fylgja þeim eftir. Einnig eru festir á hval­ina svo­kall­aðir sund­rit­arar með sog­skálum í sól­ar­hring í senn og þannig er hægt að greina hljóð, lík­ams­stöðu, sund­hraða, stað­setn­ingu og stefnu­breyt­ingar hvals­ins. 

Þrátt fyrir að rann­sóknir hafi auk­ist síðan um alda­mótin segir Edda Elísabet enn halla á þekk­ingu hvala miðað við land­dýr enda er umhverfið neð­an­sjávar veru­lega krefj­andi fyrir vís­inda­menn. 

Sjálf hefur Edda Elísabet orðið vitni að hraða og krafti hvala í rann­sóknum sínum. Í eitt skipti var hún að safna líf­sýnum úr lang­reyðum og steypireyðum. „Með sporð­blak­inu einu komst steypireyð­urin hund­ruð metra áfram. Þú þurftir að gera ráð fyrir að næst þegar hún kæmi upp til að anda yrði hún jafn­vel kíló­metra í burtu. Hún er fljót að synda og getur haldið niðri í sér and­anum lengi.“ 

Nemendur leita að hvölumÞennan dag hopp­aði eng­inn hvalur á skipið.

Hjálpsamir hnúfubakar

Um borð í hvala­skoð­un­ar­bátnum koma grunn­skóla­nem­arnir sér fyrir fremst uppi á dekki til­búin að taka mynd­bönd á snjall­sím­ana sína ef sjást skyldi í hval. Nokkrir túristar eru einnig um borð en flestir þeirra sitja kyrrir neðar í bátnum og fylgj­ast með litlum grá­leitum öldum skella á bátnum. „Þú veist að hvalir hoppa oft á svona skip,“ segir einn níu ára strákur við vin sinn. Vinurinn svarar engu en starir ótta­sleg­inn út Faxaflóa. Þá bætir strák­ur­inn hug­hreystandi við: „Eða bara stundum.“

Heim­ildin / Davíð Þór

Sumar hvala­teg­undir eru for­vitn­ari en aðrar og veitir atferli þeirra vís­inda­mönnum inn­sýn inn í lífið neð­an­sjávar. „Þökk sé hnúfu­baknum höfum við fengið að kíkja inn í einka­líf skíð­is­hvala,“ segir Edda Elísabet. Eins og mann­fólk eru hnúfu­bakar með sinn eigin per­sónu­leika. Einn getur verið klókur, annar for­vit­inn og sá þriðji feim­inn.

Þónokkur dæmi eru um að hnúfu­bakar skipti sér af veiðum ann­arra dýra­teg­unda og jafn­vel bjargi þeim dýrum sem eru í hættu. „Við vitum um nokkur dæmi þar sem hnúfu­bakar skipta sér af þegar háhyrn­ingar eru að veiða hvalkýr, bæði af annarri teg­und og eigin teg­und. Þeir synda inn í aðstæður og reyna að skilja háhyrn­ing­ana í sundur frá hvöl­unum. Stundum gengur það og stundum ekki.“ Líf­fræð­ing­ur­inn segir atferl­is­fræð­inga hafa greint slíka hegðun sem fórn­fýsi en hún getur líka verið hern­að­ar­taktík. „Ef þú dregur úr árangri veiði­dýrs­ins sem ógnar þinni til­vist þá ertu að veikja hann.“ 

Hnúfu­bakar bjarga ekki bara öðrum hvölum heldur hafa þeir líka komið mann­fólki til aðstoðar. Edda Elísabet rifjar upp atvik sem fór eins og eldur í sinu um inter­netið. Vís­inda­kona nokkur var á sundi í Kyrra­haf­inu á æxl­un­ar­svæði hnúfu­baka. „Hún er að reyna að nálg­ast hval­ina en allt í einu fer hnúfu­bakur að synda undir hana og reynir að lyfta henni upp. Þetta gera þær við kálf­ana sína. Konan kemst ekki undan heldur fer hval­ur­inn alltaf undir hana aftur. Stuttu seinna sér hún að undir henni synti hákarl. Auðvitað drögum við þá ályktun að mögu­lega hafi farið af stað ein­hver eðl­is­á­vísun hjá hvalnum um að bjarga kon­unni.“

Einnig eru dæmi um að tann­hvalir hafi tekið að sér kálfa ann­arra teg­unda. Edda Elísabet tekur fram að það sé óal­gengt í dýra­rík­inu enda áskorun fyrir mæður að hugsa um tvö afkvæmi í stað eins. „En þarna alla­vega er ein­hvers konar eðl­is­á­vísun, þessi umönnun sem er svo sterk hjá okkur mann­fólki og fjölda ann­arra dýra. Þarna er móð­irin í raun­inni svo­lítið að fórna sér til þess að hjálpa yfir­gefnum kálfi.“ 

Glettnir grindhvalir

Í hvala­skoð­un­inni er lítið að frétta. „Ég vil alla­vega sjá einn hval,“ heyr­ist einn nem­and­inn segja óþol­in­móður út í loftið. Nokkru seinna sést loks­ins í höfr­unga. Krakk­arnir taka við sér og hóp­ast saman æsispennt. „Höfr­ungar eru upp­á­halds dýra­teg­undin mín,“ segir skæl­bros­andi stelpa. Félagi hennar setur sím­ann í vas­ann og talar við æðri mátt: „Takk, guð. Núna ætla ég bara að horfa með aug­unum mínum þegar við sjáum hvali.“ Sjó­ferðin var þess virði.

Aðspurð hvort hvalir eigi í sam­skiptum milli teg­unda segir Edda Elísabet: „Hvalir heyra svo sann­ar­lega hver í öðrum líkt og við gerum þegar við erum á landi. Til dæmis læra dýrin á sléttum Afríku á hljóð­merki hvert ann­ars og þar getur verið ákveðin sam­hjálp milli teg­unda. Þannig að for­sendur í dýra­rík­inu segja að svo geti verið.“ Edda Elísabet nefnir annað dæmi þar sem háhyrn­ingur tók að sér kálf úr grind­hvala­hópi. „Það gæti alveg verið að háhyrn­ing­ur­inn hafi átt í ein­hverjum hljóð­sam­skiptum við þennan kálf.“ 

Nú fara fram rann­sóknir hjá Vest­manna­eyjum á sam­skiptum háhyrn­inga og grind­hvala en það eru náskyldar teg­undir. „Háhyrn­ingar eru gjarnan kall­aðir úlfar hafs­ins en þegar grind­hvalir mæta á svæðið þá fara þeir, þrátt fyrir að vera stærri og meiri. Rann­sóknin snýst um að skilja hvernig þeir lesa í fjöl­breytt og mikil hljóð­merki grind­hvala sem ferð­ast oft saman í stórum hópum og eru málglaðir. Þannig er verið að reyna að meta ákvarð­ana­töku og sam­skipti milli teg­unda og sömu­leiðis dýpka skiln­ing okkar á vits­muna­lífi hvala.“

Veiðar

Sjáv­ar­líf­fræð­ingur selur nammi og gos fyrir sjó­veika. Skóla­liðar og kenn­arar arka um hvala­skoð­un­ar­bát­inn og aðstoða fjölda barna sem æla í poka. Sjórinn rétt fyrir utan land­stein­ana er flestum ofviða sem sitja fölir á víð og dreif um bát­inn. Nýjustu pollagall­arnir frá 66 Norður og vatns­heldu iPhone-arnir breyta því ekki að nú erum við land­dýr á heima­velli hval­anna. 

Veiði­að­ferðir hvala snú­ast oftar en ekki um hóp­vinnu og fylgj­ast hval­irnir gaum­gæfi­lega með hver öðrum til að hámarka árangur. Algengt er að eldri kven­dýr hópanna stjórni athöfn­inni. „Við náðum mynd­bandi í rann­sókn­ar­leið­angri af lang­reyðum veiða þar sem þær voru þrjár saman og röð­uðu sér sam­hliða upp, ein fremst, ein í miðj­unni og sú þriðja aðeins aftar. Þannig voru þær að auka getu sína til að ná fæðu­torf­unni sem sam­an­stóð af svif­lægum krabba­dýrum. Þetta var ekki til­vilj­un­ar­kennd upp­setn­ing heldur voru þær að vinna saman á kerf­is­bund­inn hátt,“ segir Edda Elísabet. Í aðstæðum sem þessum skipta sam­skipti hval­anna gíf­ur­lega miklu máli. 

Á veiðum nota hnúfu­bakar stundum loft­bólur til að veiða. „Þá er einn hvalur sem stað­setur torf­una og byrjar að mynda loft­bólur með jöfnu milli­bili. Þær stíga upp og mynda loft­bólu­net. Síðan byrjar næsti að kalla hávær köll sem fá torf­una til að þjappa sig meira saman.“ Að lokum gefa hval­irnir hver öðrum merki um hvenær eigi að láta til skarar skríða og synda undir torf­una. „Veiði­að­ferð­irnar eru alveg ofboðs­lega háþró­aðar, alla­vega í okkar augum, og þær eru ekki til­vilj­ana­kenndar heldur úthugs­aðar. Svona vís­bend­ingar úr dýra­rík­inu sýna okkur að þarna eru miklir vits­munir í gangi. Tilvera hvala er ekki bara að þeir séu ein­farar sem ráfa um hafið, heldur er miklu meira í gangi.“

Leið­sögu­konan hefur nýlokið við að kynna fyrir far­þegum und­ir­skrifta­lista gegn hval­veiðum sem er um borð í skip­inu þegar einn krakk­anna réttir henni sím­ann sinn. Nýjustu fréttir! Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra hefur bannað hval­veiðar í sumar. Leið­sögu­konan fagnar ógur­lega.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár