Ísland ræður ekki við svona mikinn vöxt

Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri, segir í við­tali við afmæl­is­rit Vís­bend­ingar að ástæðan fyrir mik­illi umfram­eft­ir­spurn í hag­kerf­inu sé snörp við­reisn ferða­þjón­ust­unnar. Innleiða þurfi stýri­tæki til að dempa vöxt í ferða­þjón­ustu þegar hann verði of mik­ill.

Ísland ræður ekki við svona mikinn vöxt
Horfir yfir lið­inn tíma Í við­tal­inu í Vís­bend­ingu horfir Már í bak­sýn­is­speg­il­inn og fer yfir ýmis­konar átök sem urðu á tíma hans sem seðla­banka­stjóra. Meðal þess sem hann ræðir þar er Sam­herj­a­málið svo­kall­aða. Mynd: Hari

„Það er mín skoðun, og það eru fleiri á henni af gömlu seðla­banka­stjór­unum, að kannski hafi verið gerð mis­tök þar varð­andi það hvernig var brugð­ist við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Þá er ég ekk­ert að tala um Ísland sér­stak­lega.“

Þetta segir Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri, í ítar­legu við­tali sem birt­ist við hann í 40 ára afmæl­is­riti Vís­bend­ingar sem kemur út í dag. Þar ræðir hann meðal ann­ars stöð­una sem er uppi í hag­kerf­inu á Íslandi nú um stundir en líka stöð­una alþjóð­lega. Auk þess horfir Már yfir þann ára­tug, frá 2009 til 2019, sem hann gegndi stöðu seðla­banka­stjóra og tjáir sig opin­skátt um ýmis álita­mál og átök sem komu upp á þeim tíma.

Mikill ruglingur í umræðu um aðhald

Már segir í við­tal­inu að það sem sé í gangi á Íslandi sé eft­ir­spurn­ar­verð­bólga. Umsvifin í hag­kerf­inu séu ein­fald­lega of mikil. „Við verðum að hætta að tala um að þetta sé fast­eigna­mark­aðnum að kenna. Að þetta sé Reykja­vík að kenna. Að þetta sé hinu og þessu að kenna. Þetta er bara það sem þetta er. Umsvifin eru umfram það sem kerfið þolir. Það er of mikil inn­lend eft­ir­spurn og það verður auð­vitað að kæla hana. Oft segir fólk: Já, það er verð­bólga en góðu frétt­irnar eru að það er mik­ill hag­vöxtur. Það er hins vegar bara hin hliðin á sama pen­ingnum.“

Hann segir mik­inn rugl­ing vera í umræð­unni um aðhald í rík­is­fjár­málum. „Þegar hag­fræð­ingar eins og ég tala um aðhald í rík­is­fjár­málum þá eigum við ekki við aðhald í rík­is­út­gjöldum heldur aðhaldið sem útgjöld og skattar hins opin­bera hafa á inn­lenda eft­ir­spurn. Því er hægt að ná fram bæði á skatta- og útgjalda­hlið­inni.“

40 ára afmæliVeglegt afmæl­is­rit Vís­bend­ingar kom út í dag. Við­burður verður hald­inn í dag í Öskju í sam­starfi við Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands af í til­efni afmæl­is­ins.

Þótt verð­stöð­ug­leiki sé aðal­mark­mið Seðla­bank­ans þá geti það ekki verið eina mark­mið stjórn­valda sem hafi almenn­ari mark­mið um að efla almanna­hag með sjálf­bærum hætti. „Það er auð­vitað hægt að ná niður verð­bólgu á morgun með nógu drastískum aðgerðum. Með því að tæma hús, senda fólk úr landi í stórum stíl og loka heilu atvinnu­grein­unum. Þá dettur þenslan niður. En það er ekki það sem við viljum. Við viljum hafa aðlög­un­ar­ferli að þessu mark­miði og forð­ast of mik­inn fórn­ar­kostnað af of snöggri nið­ur­keyrslu verð­bólg­unnar. Við viljum gefa okkur tíma til þess.“ 

Ísland ræður ekki við svona vöxt

Mikill hag­vöxtur á Íslandi á und­an­förnum árum hefur verið drif­inn áfram af vexti í ferða­þjón­ustu. Í við­tal­inu segir Már að hag­vöxtur hér­lendis, sem var 6,4 pró­sent, hafi ekki verið sjálf­bær og að Ísland ráði ekki við svo mik­inn vöxt. „Það ástand sem við erum að horfa upp á nú, og er ein ástæðan fyrir því að það er svona mikil umfram­eft­ir­spurn í hag­kerf­inu, er snörp við­reisn ferða­þjón­ust­unnar. Þá þarf að beina sjónum að því að vera með ein­hvers konar stýri­tæki sem dempar sveiflur og vöxt í ferða­þjón­ustu þegar hann verður of mik­ill.“

Aðspurður um hvers konar stýri­tæki, bendir Már í fyrsta lagi á að það þurfi ekki að vera með örvandi hvata fyrir grein sem sé orðin jafn öflug og raunin er með ferða­þjón­ust­una. „Aukinn straumur ferða­manna veldur hlið­ar­á­hrifum á aðra og sum þeirra eru nei­kvæð. Hún býr til kostnað fyrir þá sem fyrir eru og í prinsipp­inu ættu ferða­menn­irnir og greinin að greiða þann kostnað, til dæmis með komu­gjöldum, gistin­átta­gjöldum eða með gjald­töku á ferða­manna­stöðum. Það er þó ekki mitt að koma með patent­lausnir á því. Það er hlut­verk kjör­inna full­trúa að ákveða það kerfi.“

„Það þarf að hýsa þessar hendur“

Ferða­þjón­ustan hafi aukið tekju­flæði inn í hag­kerfið, keyrt upp raun­gengi og búið til neyslu­spennu. „Þetta er vinnu­afls­frek grein og hún tekur til dæmis undir sig mikið hús­næði, bæði til að hýsa ferða­menn­ina og starfs­menn­ina. Þá skap­ast þær aðstæður að það vantar hús­næði og allir fara að tala um að það þurfi að byggja meira. En til þess þarf meira en lóðir og lánsfé. Það verða að vera til vinn­andi hendur og það þarf að hýsa þessar hendur. Þarna er eitt­hvað sem vantar upp á. Það þarf að taka umgjörð­ina í kringum ferða­þjón­ust­una til skoð­unar til að draga úr nei­kvæðum hlið­ar­á­hrifum hennar.“

Áskrif­endur Vís­bend­ingar geta lesið við­talið við Má í heild sinni í 40 ára afmæl­is­rit­inu,eða á glæ­nýrri heima­síðu rits­ins, sem verður opnuð síðar í dag. Slóðin á hana er www.visbending.is.

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Mummi Týr skrifaði
    Hagspár og veðurspár eru svona gisk-fræði í allri umræðu. Hagfræðingar tala oft eins og flæði peninga séu náttúrulegir ferlar eins og veðurkerfin, en öll hagfræði er í raun mannanna verk og forsendurnar sem þeir gefa sér. Veðurgiskari segir okkur að það sé mögulega að koma rigning og þá eru börnin send út í regngalla. Hagfræðingar segja okkur að það sé að koma dýfa og engin regngalli til við því ástandi. Hagfræðin gefur sér forsendur í reiknilíkunum út frá manngerðum forsendum og að manngerða aðferðin í útreikningum á fjármagni sé að fara ekki til Tene og sýna aðald út frá manngerðu reikniformúlunni sem einhver mannvera bjó til. Umræðan sjálf er alltaf rædd eins og veðurkerfi og þetta sé bara svona og einhvernvegin þó þú tapir heimili þínu þá bara díl viþ it því peningar eru einhverskonar náttúrulögmál og engin veit hvað gerist næst. Tómt gisk og ef rangt gisk, taparðu aleigunni af því að manngerða formúlan segir það.....
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár