Samherji vildi bjóða „Stóra manninum“ frá Namibíu á Fiskidaginn

Fiski­dag­urinn mikli á Dalvík verður haldinn aftur í fyrsta skipti í ár frá því 2019 og styrkir Samherji hátíðina. Útgerðar­félagið Samherji hefur verið helsti styrktar­aðili Fiskidagsins í gegnum tíðina. Árið 2012 ræddu starfs­menn Samherja um mögu­leikann á því að bjóða sjávar­útvegs­ráðherra Namibíu, Bernhard Esau, á Fiskidaginn og var það sögð vera sérstök ósk Þorsteins Más Baldvins­sonar að hann væri á Íslandi í kringum þennan dag.

Stílað á Fiskidaginn
Stílað á Fiski­dag­inn Árið 2012 ræddu starfs­menn Samherja um mögu­leik­ann á því að bjóða Bernhard Esau, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, á Fiski­dag­inn mikla á Dalvík. Þor­steinn Már Bald­vins­son var sagður hafa viljað þetta. Esau og Þor­steinn Már sjást hér saman í Namibíu.

Starfs­menn útgerðar­félagsins Samherja ræddu um það í tölvu­póstum sín á milli árið 2012, um það leyti sem fisk­veiðar fyrir­tækisins í Namibíu voru að hefjast, að bjóða sjávar­útvegs­ráðherra landsins á Fiskidaginn mikla á Dalvík. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, vildi að ráðherrann myndi koma til Íslands í heimsókn þá daga í ágúst sem Fiskidagurinn er haldinn. Þetta kemur fram í nýjum gögnum sem Heimildin hefur undir höndum. 

Um var að ræða Bernhard Esau, sem í ljós kom árið 2019 að hafði tekið þátt í því að afhenda Samherja hesta­makrílskvóta gegn háum peninga­greiðslum frá íslensku útgerðinni. Þessar greiðslur eru til rann­sóknar sem mútu­greiðslur á Íslandi og í Namibíu. Esau er einn þeirra sem situr í gæslu­varðhaldi í Namibíu vegna málsins. Esau gekk meðal annars undir viðurnefninu „Stóri maðurinn“ (e. Big man) og er vísað til hans með þessu viðurnefni í gögnunum.

„Þessi tíma­setn­ing var beiðni …
Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár