Mynd: Heiða Helgadóttir

Einni bílaviðgerð frá vandræðum

Afborganir allra lána hafa hækkað á síðustu misserum og hefur það knúið Sigtrygg Ara Jóhannsson ljós­myndara til að skoða af alvöru að flytja búferlum til annars lands til að komast í skjól. „Ég átta mig á því að það er ekki eins og happdrættis­vinningur að flytja í annað land,“ segir hann, „en einhverju er hægt að fórna fyrir stöðug­leika.“

„Já, þetta er nátt­úrlega sturlun, þetta ástand. Þetta er algjört rugl,“ segir ljós­myndarinn Sigtryggur Ari Jóhannsson um aukna greiðslu­byrði samfara verðbólgu og síhækkandi vöxtum. Undan­farið eitt og hálft ár hefur greiðslu­byrðin af íbúðar­láninu hans vaxið um fjörutíu prósent; hækkað úr rúmum 140 þúsund krónum í rúmar 200 þúsund krónur. 

Lánið tók hann árið 2021 til að kaupa hóflega íbúð fyrir sig og dætur sínar tvær. „Ég keypti mér íbúð eftir skilnaðinn fyrir einu og hálfu ári síðan. Hún kostaði 50 milljónir, bara lítil og ég gat ekki keypt herbergi fyrir alla, sem er allt í lagi. Ég átti tíu milljónir og tók svo lán. Ég var að borga svona hundrað og fjörutíu þúsund á mánuði af því. Sem er komið upp fyrir 200 þúsund krónur hjá mér í dag,“ segir Sigtryggur Ari. 

„Þetta er verð­tryggt. Eins mikið og mig langar að taka óverðtryggð lán þá treysti ég …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífskjarakrísan

FréttirLífskjarakrísan

Býr sig undir „skell fasteigna­eigenda á næsta ári“

Ásta Sigrún Helga­dóttir, umboðs­maður skuldara, segir að embættið sé að búa sig undir fjölda umsókna frá fasteigna­eigendum í fjárhags­vanda. Greina megi aukinn óróleika og jafnvel kvíða hjá fólki sem þiggur síma­ráðgjöf hjá embættinu. Flest sem fá aðstoð eru öryrkjar og láglaunafólk á leigu­markaði og segir Ásta Sigrún að ríkis­stjórnin verði að bregðast við vanda þess hóps.

Mest lesið undanfarið ár