Kraginn veitir ákveðna vörn

Séra Sveinn Valgeirsson segir að starf prestsins geti reynt á, en það sé eðlilegt.

Hlustaðu · brot23:29 · Fólkið í borginni

Ég er mestmegnis á skrif­stofunni hérna í safnaðar­heimili Dómkirkjunnar á daginn. Ég er búinn að eiga þennan kontrabassa í fjögur, fimm, ár, ég spila ekki mikið á hann en fikta eitthvað. Svo er töluvert að gera uppi í kirkju líka, maður fer á milli bara. Það er yfirleitt frí á mánudögum því við vinnum gjarnan um helgar en ég er að vinna í dag því ég er smá vinnualki. Ég þarf að ganga frá nokkrum svona skrifstofu­málum. Ég þarf að skrifa grein og þegar maður þarf að skrifa ræður er gott að vera á skrif­stofunni.

Margir prestar eru vinnu­alkar. Þetta var alltaf þannig, allavega hérna áður fyrr, að þá var maður bara 24/7, embættið var þannig. Þegar maður tekur við prests­embætti þá þýðir það að það á að vera hægt að ná í mann alla daga. Þetta er nú samt að breytast núna, eðlilega, sem er kannski allt í …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár