„Það er erfitt að hætta þessu“

Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra, sem fer með hús­næð­is­mál í rík­is­stjórn­inni, segir að sá hús­næð­is­stuðn­ingur sem verið sé að veita í gegnum skatt­frjálsan sér­eign­ar­sparnað til að greiða niður íbúða­lán sé „gríð­ar­legur“. Hann gengst við því að stuðn­ing­ur­inn sé að uppi­stöðu ekki að lenda hjá hópum sem þurfi helst á honum að halda. Reynt hafi verið að hætta með úrræðið en þrýst­ingur hafi verið settur á að við­halda því. Því verði þó hætt í lok næsta árs og fram undan sé við­snún­ingur á því hús­næð­is­stuðn­ings­kerfi sem verið hefur við lýði.

„Það er erfitt að hætta þessu“
Hús­næð­is­mála­ráð­herra Sigurður Ingi Jóhanns­son hefur boðað nýja heild­ræna hús­næð­is­stefnu hins opin­bera í haust. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra segir þá hópa, sem eru að nýta sér sér­eign­ar­sparnað skatt­frjáls til að greiða niður íbúða­lán sín, séu ekki þeir hópar sem þurfi mest á hús­næð­is­stuðn­ingi að halda á Íslandi í dag. Það hafi enda verið til­laga starfs­hóps um hús­næð­is­stuðn­ing sem hann skip­aði, og skil­aði af sér skýrslu í des­em­ber í fyrra, að setja inn sól­ar­lags­á­kvæði fyrir úrræðið. Það þýðir að úrræðið verður í gildi út árið 2024 en svo end­an­lega aflagt. Hann segir að það væri óeðli­legt að við­halda kerf­inu umfram þann tíma­punkt. „Við höfum alveg haft hug á því að hætta fyrr en í kjara­við­ræðum þá hefur það oft komið fram frá ákveðnum aðilum innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar að það sé nauð­syn­legt að hafa þetta inni til þess að koma með ávinn­ing til þeirra hópa.“

Aðspurður hvaða aðilar það séu segir Sigurður Ingi að það hafi til að mynda verið BHM og að hann minni að …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigridur Hjaltadottir skrifaði
    Á ekkert að fjalla um ofurhagnað bankanna meðan vextir hækka og íbúðalán hafa hækkað margfalt?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár