Segir ríkisstjórnina sitja og stara „út í tómið“

Formaður Við­reisnar, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ræddu efna­hags­mál á Alþingi í dag. Hin fyrr­nefnda spurði ráð­herr­ann hvort sjá mætti fram á aðgerðir af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar. Katrín vís­aði því á bug að ekk­ert væri gert í því efna­hags­á­standi sem nú ríkir.

Segir ríkisstjórnina sitja og stara „út í tómið“
Rík­is­stjórnin búin að „yfir­gefa leik­völl­inn“ Þor­gerður Katrín segir að rík­is­stjórnin séu búin að yfir­gefa leik­völl­inn og sitji nú inni í bún­ings­klefa – búin að taka af sér hné­hlíf­arnar og stari út í tómið og geri lítið annað. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég geri mér grein fyrir, haf­andi verið aðeins lengur en 2.000 daga á þingi, að það er ákveð­inn áfangi að halda rík­is­stjórn saman. En það verður samt að hlusta á það sem helstu hags­muna­að­ilar hafa verið að segja; verka­lýðs­hreyf­ingin, Samtök atvinnu­lífs­ins, fjár­mála­ráð.“

Þetta sagði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar þegar hún spurði Katrínu Jak­obs­dóttur út í aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar í erf­iðu efna­hags­á­standi. 

Þor­gerður Katrín benti á að grein­endur á mark­aði og hag­fræð­ingar teldu ólík­legt annað en að Seðla­bank­inn myndi hækka stýri­vexti síðar í þessum mán­uði, þrett­ánda skiptið í röð. 

„Þá munum við ná þeim áfanga að hafa hér hæstu stýri­vexti í um ára­bil. Þetta er um svipað leyti og rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur fagnar 2.000 daga afmæli, sama rík­is­stjórn og á að vera helsti liðs­fé­lagi Seðla­bank­ans í bar­átt­unni við verð­bólg­una. En þessi 2.000 daga gamli liðs­fé­lagi er ein­fald­lega búinn að yfir­gefa leik­völl­inn, situr inni í bún­ings­klefa, búinn að taka af sér hné­hlíf­arnar, starir út í tómið og gerir lítið annað,“ sagði hún. 

Byrðarnar settar á heimilin í landinu

Vísaði Þor­gerður Katrín í orð ráð­herr­ans um aðgerðir til þess að liðka fyrir kjara­við­ræðum og hjálpa heim­ilum lands­ins þar sem hún sagði að stóra verk­efnið væri að skapa for­sendur fyrir efna­hags­legum stöð­ug­leika og að félags­legur stöð­ug­leiki væri ekki síður mik­il­vægur fyrir vinn­andi fólk í land­inu. 

„Á sama tíma situr rík­is­stjórnin og starir út í tómið og setur reikn­ing­inn á þetta sama fólk og verka­lýðs­hreyf­ingin er að berj­ast fyrir og það situr uppi með reikn­ing­inn af aðgerða­leysi rík­is­stjórn­ar­innar, sama fólkið og hefur ekk­ert annað val en að borga fyrir mat og fá laun í verð­bólgu­krónum, annað en stærstu fyr­ir­tækin sem velja annan gjald­miðil. Byrð­arnar eru alltaf settar á heim­ilin í land­inu, á litlu og með­al­stóru fyr­ir­tækin. Mat­vöru­gátt stjórn­valda – það er verið að benda á hana, hvenær sem hún mun líta dags­ins ljós – mun ekki auka þeirra félags­lega rétt­læti en hún mun kannski draga fram það órétt­læti sem er í íslensku sam­fé­lagi.

Ég geri mér grein fyrir, haf­andi verið aðeins lengur en 2.000 daga á þingi, að það er ákveð­inn áfangi að halda rík­is­stjórn saman. En það verður samt að hlusta á það sem helstu hags­muna­að­ilar hafa verið að segja; verka­lýðs­hreyf­ingin, Samtök atvinnu­lífs­ins, fjár­mála­ráð. Það er verið að benda á að rík­is­stjórnin er ekki að gera nægi­lega mikið til þess að berj­ast gegn verð­bólg­unni og helstu hag­fræð­ingar lands­ins hafa bein­línis bent á að rík­is­stjórnin er að vinna gegn barna­fjöl­skyldum og heim­ilum í land­inu,“ sagði Þor­gerður Katrín. 

Spurði hún Katrínu hvort ekki væri öruggt að rík­is­stjórnin hefði strax fundað eftir síð­ustu verð­bólgu­tölur sem leiddu til hækk­unar vísi­töl­unnar. „Erum við ekki að sjá fram á aðgerðir af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar? Er ekki rík­is­stjórnin að fara að kalla á teppið verð­lags­nefnd búvara, sem er einn helsti áhrifa­vald­ur­inn í því að verð­bólgan er að hækka, og atvinnu­lífið líka? Hvar er aðhaldið frá rík­is­stjórn­inni, ekki bara á sjálfa sig heldur líka út í atvinnu­lífið sem slíkt?“ spurði hún. 

Allir þurfi að koma saman en Seðlabankinn beri höfuðábyrgð

Katrín sagði að fólk væri að sjálf­sögðu að tala saman. „Í síð­ustu viku fund­aði þjóð­hags­ráð, end­ur­nýjað þjóð­hags­ráð sem núver­andi rík­is­stjórn kom á, sem fjallar einmitt um nákvæm­lega þetta, efna­hags­legan og félags­legan stöð­ug­leika, þar sem mættu for­svars­menn heild­ar­sam­taka á vinnu­mark­aði, þar sem Seðla­bank­inn mætti, sveit­ar­fé­lögin. Þar var farið yfir þessa stöðu og hvað er unnt að gera í henni. Ég vísa því að sjálf­sögðu á bug þegar því er haldið fram að hér sé ekk­ert verið að gera. Þar nægir auð­vitað að nefna þær aðgerðir sem rík­is­stjórnin hefur gripið til til að tryggja hinn félags­lega stöð­ug­leika og það höfum við gert með því að standa vörð um við­kvæm­ustu hópana, til dæmis örorku­líf­eyr­is­þega, en líka með þeim mark­vissu aðgerðum sem voru kynntar í tengslum við síð­ustu kjara­samn­inga, um hús­næð­is­stuðn­ing og auk­inn stuðn­ing við barna­fjöl­skyldur. 

Gleymum því ekki að um síð­ustu ára­mót kynntum við kerf­is­breyt­ingar á barna­bóta­kerf­inu til að styðja enn betur við barna­fólk í land­inu. Við lögðum hins vegar fram fjár­mála­á­ætlun þar sem er verið að boða aukna tekju­öflun, meðal ann­ars af breiðu bök­unum sem hátt­virtur þing­maður hefur nefnt og ég þyk­ist vita að hún sé sam­mála mér um, hvort sem það er fisk­eldið, veiði­gjöldin eða ferða­þjón­ustan, í til­felli gistin­átta­skatts og sér­staks gjalds á skemmti­ferða­skip. Við erum að leggja til við­bót­ar­á­lag á atvinnu­lífið í land­inu til að standa með okkur í gegnum þetta. En við erum líka að boða hag­ræð­ingu, 2 pró­sent aðhald almennt í kerf­inu, við­bótarað­hald á stjórn­kerfið en líka sér­tækar aðgerðir upp á millj­arða króna þannig að fjár­mála­á­ætl­unin talar inn í það verk­efni sem við stöndum frammi fyrir. Ég vek athygli á því að þarna þarf auð­vitað allt að koma saman og Seðla­bank­inn ber höf­uð­á­byrgð. En að halda því fram að stjórn­völd séu ekki að skila sínu – ég vísa því ein­fald­lega á bug,“ sagði ráð­herr­ann. 

Vísar ásök­unum á bugKatrín vísar því á bug að stjórn­völd séu ekki að skila sínu.

Biður um skýr skilaboð út í atvinnulífið og til verkalýðshreyfingarinnar

Þor­gerður Katrín sagði í fram­hald­inu að eng­inn tæki undir með rík­is­stjórn­inni í þessu. „Það er eng­inn sem tekur undir það að rík­is­stjórnin sé að standa sig í stykk­inu, burt séð frá Viðreisn og okkar gagn­rýni sem er búin að vera sam­felld allt þetta kjör­tíma­bil um að rík­is­stjórnin eigi að sýna meira aðhald. Við erum að tala um fjár­mála­ráðið, við erum að tala um Samtök atvinnu­lífs­ins, Félag atvinnu­rek­enda, við erum að tala um verka­lýðs­hreyf­ing­una og svo virta hag­fræð­inga sem spanna allt lit­rófið. Það er verið að kalla eftir meira aðhaldi en rík­is­stjórnin gerir ekk­ert.“

Hún spurði því hvort ekki ætti að stíga fastar til jarðar. „Var ekki örugg­lega boðað til auka­fundar í rík­is­stjórn­inni? Annað eins hefur nú verið gert hjá rík­is­stjórn­inni varð­andi blaða­manna­fundi. Hvert er planið? Það er ekk­ert plan hjá rík­is­stjórn­inni. Hækkaði verð­bólgan eða ekki? Vísi­talan hækk­aði hérna meðan hún er byrjuð að lækka ann­ars staðar, meðal ann­ars í Evrópu. Þar hafa meðal ann­ars sam­tök fyr­ir­tækja verið kölluð inn á teppið. Þar hafa verið boð­aðar almenni­legar aðgerðir, ekki bara eitt­hvað sem er til skamms tíma og tekur ekki á verð­bólgu­töl­unum. Ég bið um aðhald í rík­is­rekstri. 

Ég bið um skýr skila­boð út í atvinnu­lífið, til verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, til sam­fé­lags­ins, að rík­is­stjórnin ætli sér að vera liðs­fé­lagi Seðla­bank­ans í þessu gríð­ar­lega mikla verk­efni sem er bar­áttan gegn verð­bólg­unni. Eins og staðan er núna er rík­is­stjórnin að skila auðu.“

Þörf á auknu aðhaldi í verðlagsmálum

Katrín svar­aði í annað sinn og sagði að áætl­unin væri alger­lega skýr. 

„Áætlunin snýst um aukið aðhald í rík­is­fjár­málum. Áætlunin snýst um aukna tekju­öflun nákvæm­lega þar sem fólk er aflögu­fært og á það hefur verið bent hér þegar við erum að benda á þá aðila sem við boðum auknar álögur á. Við erum hins vegar ekki að fara að fórna þeim árangri sem hefur náðst í að byggja upp heil­brigð­is­kerfi og ákveðna þætti vel­ferð­ar­kerf­is­ins, hvort sem það er hús­næð­is­stuðn­ing­ur­inn, sem hafði staðið í stað árum saman þegar við tókum við, eða barna­bóta­kerfið, sem á sama tíma hefur verið stór­eflt. Við erum ekki að fara að fórna þeim árangri. 

Við erum vissu­lega að hægja á til­teknum fjár­fest­ingum en við erum til dæmis ekki að fara að hætta við fjár­fest­ingu í upp­bygg­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu. Því er þetta plan alger­lega skýrt og liggur fyrir. Við eigum hins vegar að spyrja okkur – þessi verð­bólga er á breiðum grunni. Hátt­virtur þing­maður nefnir mat­vöru­gátt­ina sem ég von­ast til að opna fyrr en síðar. Það er verk­efni sem er unnið með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins og hefði svo sann­ar­lega mátt ganga hraðar. En horfum til dæmis á töl­urnar á dag­vöru­mark­aði. Þar vakna vissu­lega spurn­ingar hjá mér og er greini­lega þörf á auknu aðhaldi í verð­lags­málum,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra að lokum. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár