Leið­rétt­ingin Leið­togar rík­is­stjórn­ar­innar sem mynduð var árið 2013 kynntu Leið­rétt­ing­una tæpu ári síðar. Mynd: Pressphotos

Tugir milljarða í húsnæðisbætur fyrir ríkasta hluta þjóðarinnar

Fyrir níu árum síðan var tekin ákvörðun um að umbylta húsnæðis­bótakerfi Íslands. Vaxta­bótakerfið, sem studdi best við tekju­lægri hópa, var veikt verulega og í stað þess komið á fyrir­komulagi skattaí­vilnana til þeirra sem nota séreignar­sparnað til að borga niður íbúðalán. Fjármála- og efnahags­ráðuneytið metur eftirgjöf hins opinbera á tekjum vegna þessa á um 50 milljarða króna. Um 77 prósent þeirrar upphæðar hefur lent hjá þremur efstu tekju­hópunum. Um sjö prósent hennar hefur farið til þess helmings lands­manna sem hefur lægstu tekjurnar.

Í mars 2014 voru kynntar aðgerðir sem áttu að hjálpa fólki á íbúða­markaði. Þær byggðu á kosninga­loforði Framsóknar­flokksins frá árinu áður um svokallaða skulda­leið­réttingu. Markmiðið var að aðgerðirnar, sem voru tvær, myndu samanlagt lækka höfuðstól íbúðaláns þess sem naut þeirra beggja um allt að 20 prósent. Umrætt kosninga­loforð, sem fékk nafnið Leið­réttingin, var megin­forsenda þess að Framsóknar­flokkurinn, þá leiddur af Sigmundi Davíð Gunnlaugs­syni, vann stórsigur í kosningunum 2013 og fékk sína bestu kosningu síðan 1979. 

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár