Slökkvum á samfélagsmiðlum

Ari Grétar Björns­son, leigu­bíl­stjóri, vaknar klukkan sjö alla morgna og kemur sér til vinnu í borg­inni en hann býr á Akranesi. Að sögn Ara þarf að vinna mikið á Íslandi, ástandið sé orðið þannig. Vinnan nægir þó ekki til að dreifa huga hans frá því þegar hann missti kon­una sína úr krabba­meini fyrir sex árum.

Hlustaðu · brot09:28 · Fólkið í borginni

Ég er leigu­bíl­stjóri og dag­ur­inn byrj­aði þannig að ég bý á Akranesi og ég vakn­aði klukkan sjö og skutl­aði dóttur minni í skól­ann og síðan fór ég til borg­ar­innar að vinna. Það er afskap­lega mis­jafnt hvað ég vinn lengi, stundum eru það átta tímar, tíu tímar og allt upp í sextán tíma. Ég er í annarri vinnu líka og þá byrjar vaktin klukkan fimm og er til mið­nættis.  Ég keyri lækna­bíl­inn á Lækna­vakt­inni. Það er föst og góð vinna. 

Það sem er mér efst á huga þessa dag­ana eru vextir, verð­bólga og verð­trygg­ing á Íslandi. Þetta er að ganga frá okkur öllum. 

Sá atburður sem breytti lífi mínu mest var þegar ég missti eig­in­konu mína árið 2017. Það tók átján mán­uði, það bar skjótt að þegar hún greind­ist með krabba­mein. Dóttir okkar var sjö ára þegar hún grein­ist og níu ára þegar hún fellur frá. Það tók mjög á. Ég er afskap­lega stoltur af dóttur minni og hvernig henni hefur vegnað eftir þetta. Við erum mjög náin, stundum eins og gömul hjón. 

Vinnan hjálpar ekki mikið til við að dreifa hug­anum frá þessu. Ísland er bara þannig að það þarf að vinna mikið. Það er mjög mikil til­breyt­ing falin í því að keyra leigu­bíl en ég get nú ekki sagt að þetta sé skemmti­legt. Það er mjög skemmti­legt að maður hittir yfir­leitt skemmti­legt fólk og maður ræður sér sjálfur. Ég get farið heim núna ef mér dettur það í hug. Jú heilt yfir er þetta kannski bara skemmti­legt. 

Það kemur fyrir að fólk spjallar mjög mikið við mig í bílnum en ég hef það fyrir reglu að tala ekki við fólk nema það tali við mig fyrst. Mér finnst það fag­legt, ég læt fólk í friði, spyr bara hvert það er að fara og svona og reyni svo að láta það í friði en það segir mér oft líf­sög­una sína. Sem betur fer gleymi ég því jafn óðum, ég hef þann eig­in­leika að þurrka þetta út en svo er einn og einn kúnni sem maður gleymir aldrei. Það eru þeir sem sýna mér hroka. 

Ég hef áhyggjur af þróun mann­lífs­ins. Við þurfum ekki annað en að horfa á öll þessi voða­verk sem verða í bænum, ég hef áhyggjur af því. Maður sér það bara í blöð­unum.  Ég held að sam­fé­lags­miðlar valdi þessu. Ung­lingar eru bara á sam­fé­lags­miðlum allan dag­inn. Þar tekur það inn alls kyns óæski­legt efni. Við ættum bara að slökkva á þeim.

Ég geri meira af því að hringja bara í fólk, mér finnst að fólk ætti að gera meira af því. Það er miklu nán­ara og eðli­legra sam­tal en eitt­hvert pikk. Þegar konan mín dó hringdi fólk mikið fram að jarð­ar­för en eftir hana sá ég ekki nokkurn mann, bara kalt mat. Svona er þetta. Tvær konur studdu mig gíf­ur­lega á veik­inda­tíma kon­unnar, ein frænka hennar og vin­kona mín sem er hjúkr­un­ar­fræð­ingur. Ég fékk einnig gríð­ar­legan stuðn­ing í mínu Bræðra­sam­fé­lagi, Drúidum. Þar á ég minn besta vin sem studdi mig gíf­ur­lega ásamt öðrum bræðrum þar.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár