Maður látinn eftir átök á bílastæði í gærkvöldi

Fjórir hafa verið hand­teknir eftir að maður á þrítugsaldri fannst alvarlega slasaður á bílastæði við Fjarðar­kaup í Hafnar­firði.

Bílastæði Fjarðarkaupa
Bíla­stæði Fjarð­ar­kaupa Maður fannst illa slas­aður eftir átök á bíl­stæð­inu í gær­kvöldi.

Maður á þrítugsaldri lést eftir átök á bíla­stæðinu við Fjarðar­kaup á Hóls­hrauni í Hafnar­firði seint í gærkvöldi. Lögreglan hefur handtekið fjóra vegna rann­sóknar málsins.

Samkvæmt frétta­tilkynningu lögreglu var tilkynnt um átökin á tólfta tímanum í gærkvöldi. Þolandi árásarinnar fannst á staðnum og var fluttur á slysa­deild. Þar var hann úrskurðaður látinn skömmu síðar. 

„Rann­sóknin er á frumstigi og ekki verða veittar frekar upplýsingar um málið að svo stöddu,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár