Ausa sér yfir ríkisstjórnina vegna vaxtahækkana

Nokkrir þing­menn létu stór orð falla á Alþingi í dag eftir stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands. Einn þing­maður sagði að rík­is­stjórnin væri „kjark­laus og verk­stola“ og annar að hún styddi „aðför að almenn­ingi“. Enn annar sagði að nú þyrfti þingið að hefja sig yfir „hvers­dags­þrasið“ og leita sam­eig­in­legra lausna til að rétta við bók­hald rík­is­ins.

Ausa sér yfir ríkisstjórnina vegna vaxtahækkana
Pressa á rík­is­stjórn­inni Mikil pressa er á rík­is­stjórn­ina að bregð­ast við með ein­hverjum hætti í ljósi þess efna­hags­á­stands sem upp er komið. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þingmenn vöktu máls á stýri­vaxta­hækkun Seðla­bank­ans á Alþingi í dag en vextir voru hækk­aðir um eitt pró­sentu­stig í morgun og eru því komnir í 7,5 pró­sent.

Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði í ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins að vaxta­hækkun dags­ins hefði komið fáum á óvart enda „kjark­laus og verk­stola rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur við völd hér á landi“. 

„Stýri­vextir eru nú 114 til 188 pró­sent hærri hér en ann­ars staðar á Norð­ur­löndum og Seðla­bank­inn hefur fá önnur ráð í glímunni við óða­verð­bólg­una en að hækka stýri­vexti. Það er sterkt sam­band milli geng­is­þró­unar, vaxta­stigs og verð­lags og rétt eins og Þórólfur Matth­í­as­son hag­fræði­pró­fessor hefur bent á er þetta keðju­verkun. Hækki verð­lag örar hér en erlendis lækkar gengið. Sé vaxta­stig hér hærra en erlendis hækkar gengið. 

Jafn­framt því að ýta undir geng­is­hækkun virkar vaxta­hækkun letj­andi á eft­ir­spurn og þar með verð­lags­hækk­anir innan lands. Fyr­ir­tækin þurfa svo að taka afstöðu til óorð­inna hluta og gera sér ein­hverjar hug­myndir um þróun þess­ara stærða, þ.e. gengis krón­unnar og vaxta, og taka svo ákvörðun um verð til almenn­ings í kjöl­farið því að fyr­ir­tækin ætla sér ekki að bera hall­ann í þessu flökt­andi umhverfi óða­verð­bólgu og him­in­hárra stýri­vaxta,“ sagði hún. 

Spyr hvort kominn sé tími á að ríkisstjórnin skili lyklunum

Helga Vala benti á, og vitn­aði aftur til Þórólfs Matth­í­as­sonar, að fjár­festar væru ekki til­búnir til að fjár­festa í eignum í íslenskum krónum nema gegn ávöxtun sem væri nægi­lega miklu hærri en ávöxtun á sam­bæri­legum eignum erlendis til að bæta mögu­legt tjón vegna óvæntrar verð­bólgu­þró­unar eða óvæntra árása spá­kaup­manna á íslensku krón­una.

Kjark­laus og verk­stola rík­is­stjórnHelga Vala segir að kjark­laus og verk­stola rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur sé við völd hér á landi.

„Við rík­is­stjórn­ar­borðið rúm­ast svo engin ráð önnur en að fjölga ferða­lögum ráð­herra, fjölga starfs­fólki í ráðu­neytum og ræða svo helst eitt­hvað allt annað en það hvernig efna­hags­stjórn rík­is­stjórn­ar­innar hefur beðið skip­brot sem bitnar harka­lega á öllum almenn­ingi. 

Hér ríkir villta vestrið á hús­næð­is­mark­aði í örhag­kerfi með smá­gjald­miðli og rík­is­stjórn sem er kjark­laus og verk­stola fer ekki í nauð­syn­legar aðgerðir, svo sem tekju­öflun í formi hval­reka­skatts, svo dæmi séu tekin. Er ekki kom­inn tími á að rík­is­stjórnin skili bara lyklunum að Stjórn­ar­ráð­inu?“ spurði hún að lokum. 

25% heimila undir þessu „fjárhagslega ofbeldi“

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son þing­flokks­for­maður Flokks fólks­ins sagði undir sama lið að enn og aftur hefði „hryðju­verka­nefndin skotið grófu fjár­hags­legu ofbeldi á útvalin heim­ili með stýri­vaxta­hækkun“. 

„Ólíkt öðrum stríðum er þessum gegnd­ar­lausu stýri­vaxta­of­beld­is­sprengjum beint að ákveðnum hópi fólks sem trúði sömu aðilum, að Ísland væri orðið lág­vaxta­land. Senni­lega eru um 25 pró­sent heim­ila núna undir þessu fjár­hags­lega ofbeldi og annað eins á leið­inni í sömu skulda­gryfju og stefnir í að fólk þurfi að ákveða hvort það eigi að selja íbúð­irnar sínar, leigja þær eða tapa þeim í gjald­þrot. 1 pró­sent hækkun á stýri­vöxtum núna veldur því að greiðslu­byrði 40 millj­óna króna láns hækkar um nær 35.000 krónur á mán­uði og heild­ar­greiðslur vegna þessa fjár­hags­lega ofbeldis eru orðnar yfir 200.000 krónur á mán­uði og hátt í 3 millj­ónir á ári auka­lega,“ sagði þing­mað­ur­inn. 

Hug­mynda­fræði Seðla­bank­ans í eðli sínu stór­hættu­legGuð­mundur Ingi segir að blind trú á hug­mynda­fræði um „stjórn­laust fjár­hags­legt ofbeldi“ gagn­vart fólki sem ekk­ert hefur gert af sér sé algjör and­staða heil­brigðra efa­semda og sé í eðli sínu stór­hættu­leg.

Hann sagði enn fremur að Seðla­bank­inn væri mjög valda­mikil stofnun. „Hreintrú seðla­banka­stjóra og hans nefndar virð­ist tak­marka­laus á að nota stýri­vaxta­sprengju­hækk­anir á ungt fólk sem gerði ekk­ert annað en að kaupa sér íbúð. Líkja má strang­trú­ar­stefnu seðla­banka­stjóra og félaga hans í stýri­vaxta­málum við trú­ar­kreddur klerka­veld­is­ins og sú kredda magn­ast upp í berg­máls­helli rík­is­stjórn­ar­innar þar sem hún styður þessa aðför að almenn­ingi. Þessi blinda trú á hug­mynda­fræði um stjórn­laust fjár­hags­legt ofbeldi gagn­vart fólki sem ekk­ert hefur gert af sér er algjör and­staða heil­brigðra efa­semda og er í eðli sínu stór­hættu­leg. 

Til­gang­ur­inn hlýtur að vera sá að sjá til þess að lág­tekju- og með­al­tekju­heim­ili muni kikna undan þessum stýri­vaxta­hryðju­verkum og þá á fólk hrein­lega að gef­ast upp í hrönnum. Þeir sem stjórna þess­ari aðför að fólki sem er bara að kaupa sér íbúð fyrir sig og fjöl­skyldu sína eru pott­þétt ekki að borga þessa vexti og eiga senni­lega hús sín skuld­laus. Nei, það kemur stjórn­völdum greini­lega ekk­ert við, þessi sívax­andi greiðslu­byrði, og til­gang­ur­inn helgar greini­lega ógeðs­með­alið, þ.e. að ungt fólk geti ekki séð sér og sínum far­borða og éti það sem úti frýs í þeirra boði,“ sagði hann í lok ræðu sinnar. 

Heimilin sitja uppi með reikninginn

Þing­flokks­for­maður Við­reisnar, Hanna Katrín Frið­riks­son, tók einnig til máls í störfum þings­ins en hún sagði að vaxta­hækkun Seðla­bank­ans í dag hefði verið eftir svart­sýn­ustu spám og ramm­aði inn það ástand í rík­is­fjár­málum sem flokkur hennar hefði varað við um langa hríð. 

„Heimilin sitja uppi með reikn­ing­inn, meðal ann­ars í formi dýr­ari mat­ar­körfu og hærri afborg­ana af hús­næði og þung­inn fer vax­andi – það finnum við öll. Við hér á Alþingi verðum að bregð­ast við. Við þurfum að stíga upp úr póli­tískum skot­gröfum til þess. Vaxandi vanda­mál líkt og þau sem við stöndum frammi fyrir nú krefj­ast jarð­bund­inna lausna sem hægt er að ráð­ast í strax og þar kemur að kjarna máls. 

Það hefur sjaldan verið mik­il­væg­ara en nú að ráð­ast í það verk­efni að hemja stjórn­litla útþenslu rík­is­sjóðs til að bregð­ast við vaxta­hækk­un­unum. Viðreisn er sem fyrr reiðu­búin að leggja sitt á vog­ar­skál­arnar til þess að koma með til­lögur í þá veru og til þess að standa með góðum málum sem aðrir kunna að leggja á borðið. Stór lausn sem Viðreisn boðar er svo öllum kunn en hún verður því ver og miður ekki að veru­leika á morgun,“ sagði hún. 

Reiðu­búin að standa með góðum málumHanna Katrín segir að Viðreisn sé reiðu­búin að leggja sitt á vog­ar­skál­arnar til þess að koma með til­lögur til þess að standa með góðum málum sem aðrir kunna að leggja á borðið.

Hanna Katrín sagði jafn­framt að gagns­laus­ustu við­brögðin við neyð­ar­á­stand­inu sem nú ríkir væru samt þeirra sem heit­ast trúa á krón­una. Þau spyrðu hvort ekki hlakk­aði í Við­reisn­ar­fólki nú þegar krónan brygð­ist þjóð­inni enn á ný. „Svarið er nei. Það hlakkar ekki í okkur. Til þess er ástandið allt of alvar­legt. Það ríður á að við hefjum okkur yfir hvers­dags­þrasið og leitum sam­eig­in­legra lausna á því að rétta við bók­hald rík­is­ins, íslenskum heim­ilum til hags­bóta því þetta þarf sann­ar­lega ekki að vera svona og svo þurfum við að ræða hinar raun­veru­legu lausn til lengri tíma en rík­is­stjórnin getur ekki leyft sér að dvelja lengur í Hvergilandi,“ sagði hún. 

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár