„Það er hreinlega vegið að tjáningarfrelsi fjölmiðla á Íslandi í dag“

Lilja Alfreðs­dóttir, sá ráð­herra sem fer með mál­efni fjöl­miðla, segir að Íslend­ingar séu á „rauðu ljósi“ hvað starfs­um­hverfi þeirra varðar. Vegið sé að tján­ing­ar­frelsi þeirra og telur hún að staðan sé óásætt­an­leg.

„Það er hreinlega vegið að tjáningarfrelsi fjölmiðla á Íslandi í dag“
Tekju­módel íslenskra fjöl­miðla gengur ekki upp Menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra segir að tekju­módel íslenskra fjöl­miðla gangi hrein­lega ekki upp. „Það er ekki áskorun sem aðeins við hér á landi erum að fást við heldur um heim allan. Okkur ber skylda til þess að stuðla að því að starfs­um­hverfi fjöl­miðla hér á Íslandi verði sjálf­bært.“ Mynd: Heiða Helgadóttir

Íslend­ingar eru á „rauðu ljósi“ hvað varðar starfs­um­hverfi fjöl­miðla, sam­kvæmt menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, Lilju Alfreðs­dóttur. Hún segir að vegið sé að tján­ing­ar­frelsi fjöl­miðla á Íslandi í dag og sú staða sem uppi er í sam­an­burði við fjöl­miðla á Norð­ur­lönd­unum sé óásætt­an­leg.

Þetta kom fram í máli ráð­herr­ans í sér­stakri umræðu um fjöl­miðla­frelsi á Alþingi í dag. Jódís Skúla­dóttir þing­maður Vinstri grænna var máls­hefj­andi umræð­unnar og var ráð­herr­ann til and­svara. 

Í fámennu landi er erfitt að treysta á sölu blaða

Jódís sagði í fyrri ræðu sinni að frjálsir fjöl­miðlar væru horn­steinn lýð­ræð­is­ins, fjórða valdið. Þeir veittu þing­mönnum nauð­syn­legt aðhald og drægju athygl­ina að þeim mál­efnum sem brýn­ust væru hverju sinni.

„Fjöl­miðlar eru allt í senn helsti far­vegur og vett­vangur sam­fé­lags­legrar umræðu. Því ber stjórn­völdum að verja sjálf­stæði þeirra og rit­stjórn­ar­legt frelsi í hví­vetna. Þetta á við í stóru og smáu. Þannig geta fjöl­miðlar ljáð þeim rödd sem minnst mega sín, vakið athygli á því sem miður fer og haldið okkur öllum ábyrgum fyrir orðum okkar og gjörðum og á það treystum við. Til þess þarf fjár­hags­staða þeirra að vera trygg en án fjár­magns er erfitt að halda úti starf­sem­inni og í fámennu landi er erfitt að treysta á sölu blaða. Þetta er kunn­ug­legt stef,“ sagði hún.

Pólarís­er­ing í umræð­unniJódís bendir á að um allan heim eigi sér stað mikil pólarís­er­ing og skautun í þjóð­mála­um­ræðu og stjórn­málum.

Jódís vildi halda á lofti stöðu hér­aðsmiðl­anna. Þeir væru oftar en ekki í miklu návígi við ákvarð­anir sem varða hag alls almenn­ings og nátt­úru lands­ins. „Hér má til dæmis nefna áform um vind­myllur og sjó­kvía­eldi. Við verðum þess vegna að tryggja fjár­hags­lega burði fjöl­miðla, allra fjöl­miðla, til að sinna því mik­il­væga hlut­verki sem við ætlum þeim í þágu lýð­ræðis og lýð­ræð­is­legrar og upp­lýstrar umræðu,“ sagði Jódís. 

Ásakanir, áreitni og hótanir í garð fjölmiðlafólks alvarlegt mál

Benti þing­mað­ur­inn á að ekki hefði farið fram hjá neinum sem fylgst hefði með í sam­fé­lag­inu und­an­farin miss­eri að frelsi fjöl­miðla til að sinna hlut­verki sínu hefði ítrekað verið dregið í efa, ekki bara af einka­að­ilum heldur einnig dóm­stólum. „Nýleg umfjöllun Heim­ild­ar­innar leiddi í ljós að fyr­ir­tækið Norðurál hafði dreift mis­vísandi upp­lýs­ingum og áróðri með skipu­lögðum hætti með það að mark­miði að hafa áhrif á almenn­ings­á­litið. Ekki er annað hægt en að minn­ast á hið svo­nefnda Sam­herj­a­mál, en fram­gangan gagn­vart ákveðnu fjöl­miðla­fólki í tengslum við umfjall­anir um það mál var væg­ast sagt skelfi­leg.“

Hún sagði að ásak­anir, áreitni og hót­anir í garð fjöl­miðla­fólks væru alvar­legt mál og mik­il­vægt væri að öryggi þeirra væri tryggt í hví­vetna. „Um allan heim horfum við upp á mikla pólarís­er­ingu í umræð­unni og mikil skautun á sér stað í þjóð­mála­um­ræðu og stjórn­málum. Þetta veldur því að almenn­ingur veigrar sér jafn­vel við að ræða fréttir um stjórn­mál. Grunn­for­senda þess að koma í veg fyrir slíka þróun er að standa vörð um tján­ing­ar­frelsið og tryggja fjöl­miðlum og blaða­mönnum öruggt starfs­um­hverfi þar sem þeim er gert kleift að rækja skyldur sínar án þess að eiga það á hættu að verða fyrir aðkasti, áreiti eða lög­sóknum. 

Við höfum orðið vitni að mjög alvar­legum atburðum í kjöl­far starfa fjöl­miðla og þá er nær­tækt að nefna dæmi eins og þegar fjöl­miðlum var varnað að sinna starfi sínu við brott­flutn­ing fólks á Kefla­vík­ur­flug­velli. Blaða­menn sem boð­aðir voru í skýrslu­töku vegna umfjöll­unar um hina svoköll­uðu skrímsla­deild Samherja telja margir að með því hafi verið gerð aðför að frjálsri fjöl­miðlun í land­inu,“ sagði hún. 

Tryggja verður fjölmiðlum það „öryggi og starfsumhverfi sem þeim ber“

Jódís spurði Lilju hver geta fjöl­miðl­anna væri til að verja fjöl­miðla­fólk sem fjallar um erfið mál fyrir áreiti og/eða hót­unum sökum vinnu sinnar, sér í lagi þegar efn­is­drög sneru að valda­miklum ein­stak­lingum eða fyr­ir­tækjum sem nota skoð­ana­mynd­andi aðferðir til að hafa áhrif á sam­fé­lags­um­ræð­una eins og nýleg dæmi sýndu. 

„Það er hlut­verk okkar hér á hinu háa Alþingi að skapa það lagaum­hverfi og þær leik­reglur sem gilda eiga í sam­fé­lag­inu,“ sagði hún og spurði í fram­hald­inu hvort  ráð­herra væri kunn­ugt um áform sem lúta að því að efla öryggi blaða­manna með það að mark­miði að vinna gegn áreitni eða hót­unum sem þeir gætu orðið fyrir sökum vinnu sinnar.

„Á und­an­förnum árum hefur umræðan um fals­fréttir og upp­lýs­inga­óreiðu auk­ist. Er ráð­herra kunn­ugt um að slíkir miðlar hafi starf­semi hér á landi, hljóti styrki til jafns við aðra miðla og hvort ástæða sé að skerpa á úthlut­un­ar­reglum með til­liti til þessa?“ spurði hún enn fremur. 

Jódís vildi í lok síð­ari ræðu sinnar hvetja sam­fé­lagið til að „leyfa því aldrei að ger­ast að vegið sé að tján­ing­ar­frels­inu; að við séum með­vituð um það að í heimi þar sem ógnir, stríð og nátt­úruvá sökum lofts­lags­breyt­inga eru orðin partur af okkar dag­lega lífi, þá verðum við að tryggja fjöl­miðlum það öryggi og starfs­um­hverfi sem þeim ber til að geta sinnt mik­il­vægum skyldum sínum.“

Stefna að því að umhverfi íslenskra fjölmiðla verði svipað og á Norðurlöndunum

Lilja sagði í fyrri ræðu sinni að það væri alveg ljóst að frjálsir fjöl­miðlar væru for­senda opinnar lýð­ræð­is­legrar umræðu og veittu stjórn­völdum, atvinnu­lífi og helstu stofn­unum sam­fé­lags­ins nauð­syn­legt aðhald. „Rík­is­stjórnin leggur ríka áherslu á fjöl­breytni í flóru fjöl­miðla með öfl­ugu almanna­út­varpi og einka­reknum fjöl­miðlum og svo segir í stjórn­ar­sátt­mála sitj­andi rík­is­stjórnar. Að því sögðu er ég auð­vitað hugsi yfir þeirri stöðu íslenskra fjöl­miðla hvað varðar fjöl­miðla­frelsi, að við séum í 15. sæti á lista alþjóð­legra sam­taka. Ísland á auð­vitað að skipa sér á bekk með öðrum Norð­ur­löndum og vera þarna á lista með þeim ríkjum sem eru efst.“

„Já, að sjálf­sögðu erum við með­vituð um fals­fréttir en ég hef ekki fengið það inn á borð til mín að við séum að veita styrki til aðila sem iðka það að breiða út fals­fréttir.“
Lilja Alfreðs­dóttir
menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra

Varðandi það hvað verið væri að gera til að efla öryggi blaða­manna og hvort ráð­herra væri með­vit­aður um umræðu um fals­fréttir þá sagði Lilja að þau í ráðu­neyt­inu væru að vinna fjöl­miðla­stefnu sem yrði kynnt öllum hag­að­ilum og vildu þau vinna hana í góðri sam­vinnu við þá sem starfa við fjöl­miðla á Íslandi. Það væri gríð­ar­lega mik­il­vægt. 

„Við sjáum auð­vitað hvað hefur verið að ger­ast, ekki bara hér á landi heldur ann­ars staðar, vegna þeirrar tækni­bylt­ingar sem við stöndum frammi fyrir. Í Svíþjóð er það svo að um 73 pró­sent af öllum aug­lýs­inga­tekjum fara til erlendra aðila, ann­ars vegar erum við að tala um streym­isveitur og svo aðrar veitur. Við erum að bregð­ast við þessu eins og við getum og viljum auð­vitað gera enn betur í þeim efnum og erum, eins og ég hef ítrekað sagt, að horfa til Norð­ur­land­anna. Annars vegar mun fjöl­miðla­stefnan ná að ein­hverju leyti utan um það hvernig við hlúum betur að fjöl­miðla­fólki á Íslandi og mark­miðið er auð­vitað að við förum upp í þessu mati. Í öðru lagi fylgj­umst við mjög vel með, til að mynda spurði hátt­virtur þing­maður hvort við værum með­vituð um fals­fréttir. Já, að sjálf­sögðu erum við með­vituð um fals­fréttir en ég hef ekki fengið það inn á borð til mín að við séum að veita styrki til aðila sem iðka það að breiða út fals­fréttir,“ sagði hún. 

Ráð­herr­ann nefndi að saga Íslend­inga væri þannig að fjöl­miðla­menn á 19. öld og 20. öld hefðu séð til þess að hér væri mjög öflug umræða um öll fram­fara­mál lands­ins. „Það er ekki að ástæðu­lausu sem við tölum fjórða valdið vegna þess að það veitir, eins og ég sagði í upp­hafs­orðum mínum, þetta nauð­syn­lega aðhald sem við þurfum. Eitt af því sem við tökum eftir, þegar við erum að vinna að fjöl­miðla­stefn­unni, eru þessar stóru breyt­ingar, streym­isveit­urnar og þessir risar. Við stefnum að því að umhverfi íslenskra fjöl­miðla verði svipað og kollega okkar á Norð­ur­lönd­unum og það er mjög mik­il­vægt að það tak­ist á þessu kjör­tíma­bili að búa þannig um hnút­ana.“

Tekjumódel íslenskra fjölmiðla gengur hreinlega ekki upp

Margir þing­menn lögði orð í belg í umræð­unum og bar helst á góma vera Rík­is­út­varps­ins á aug­lýs­inga­mark­aði en skiptar skoð­anir eru á milli þing­manna hvað það varðar. 

Lilja benti á í seinni ræðu sinni að allir sem tóku til máls væru sam­mála um mik­il­vægi þess að stuðla að því að umhverfi fjöl­miðla styrkt­ist. „Það er svo að við erum á rauðu ljósi hvað varðar starfs­um­hverfi fjöl­miðla. Ef við förum yfir þá umræðu sem hefur átt sér stað hér ber fyrst að nefna að það er hrein­lega vegið að tján­ing­ar­frelsi fjöl­miðla á Íslandi í dag og sú staða, þ.e. hvar við erum stödd í sam­an­burði við fjöl­miðla á Norð­ur­lönd­unum, er óásætt­an­leg. Ég von­ast til þess að fjöl­miðla­stefnan geti tekið á þessu að ein­hverju leyti.“

Hún benti jafn­framt á að tekju­módel íslenskra fjöl­miðla gengi hrein­lega ekki upp. „Það er ekki áskorun sem aðeins við hér á landi erum að fást við heldur um heim allan. Okkur ber skylda til þess að stuðla að því að starfs­um­hverfi fjöl­miðla hér á Íslandi verði sjálf­bært.“

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár