Fyrirbæri: Miðstöð listamanna og áhugafólks um myndlist

Í húsi á Ægis­götunni sem byggt var fyrir verksmiðju eru nú vinnu­stofur lista­manna, sýningar­salur og vettvangur fyrir fólk sem vill kaupa samtíma­list beint af vinnu­stofum lista­manna.

Listamaðurinn
Lista­mað­ur­inn Katrín Inga Jóns­dóttir Hjör­dís­ar­dóttir hafði lengi horft löng­un­ar­augum á rýmið, en hún er ein þeirra sem stendur að baki Fyr­ir­bæri. Mynd: Heiða Helgadóttir

Það hefur ekki farið framhjá neinum í lista­senunni að Ægisgata 7 hefur lifnað við og innan veggja hússins vex múltí-komplexið Fyrirbæri/Phenomenon. Fyrirbæri hýsir vinnu­stofur fjölmargra lista­manna og sameiginlega sýningar­aðstöðu þeirra.

„Þetta er listamanna­rekið fyrirbæri; vinnu­stofurnar, gallerí­rýmið og residensíu-prógram að þróast,“ segir Katrín Inga Jóns­dóttir Hjördísar­dóttir, sem rekur rýmið. Hún bætir því við að Fyrir­bæris-rýmið tilheyri kjallara, fyrstu og annarri hæð í hinni fagurgulu Ægisgötu 7. „Þetta eru um 1.100 fermetrar í heildina, brúttó. Við erum yfir 35 listamenn, þvert á list­greinar, sem erum með vinnu­stofur og svo erum við með sýninga­rými sem er um 10 prósent af heildar­stærðinni.“

Eru enn þá laus pláss? „Já, í opnum rýmum er laust.“ 

Myndlistarfjölskylda og nágranni

Markmið Fyrir­bæris er að skapa tækifæri fyrir framþróun mynd­listar og mikil­vægasti grunnur til þess eru góðar vinnu­stofur, sem Ægisgata 7 býr að. „Aðgengi inn á vinnu­stofur er fullkomið, þar sem byggingin er …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

MenningHús & Hillbilly

Suður­land­st­ví­ær­ingur: tala, borða og kanna þanþol

Hópur myndlistar­fólks, hönnuða, arkitekta og tónlistar- og fræða­fólks starfar – borðar og spjallar – saman undir formerkjum Suður­land­st­ví­ær­ingsins. Tvíær­ingurinn (South Iceland Biennale) er lifandi, marg­þjóðlegur, þver­faglegur vettvangur lista, menningar og náttúru. Síðan í sumar hefur hópurinn þróað alls kyns list­viðburði í uppsveitum Suður­lands en fyrst og fremst búið til rými til að eiga frjótt samtal, innan hópsins og út fyrir endimörk tvíær­ingsins.

9 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár