Umboðsmaður Alþingis sendi forsætisráðherra bréf vegna rafbyssumálsins

Umboðs­maður vill að for­sæt­is­ráð­herra taki afstöðu til þess hvort ákvörðun Jóns Gunn­ars­sonar um að heim­ila lög­reglu almennt að bera og nota raf­byssur hafi falið í sér „mik­il­væga stefnu­mörkun eða áherslu­breyt­ingu“ og hafi þar af leið­andi átt að ræða á rík­is­stjórn­ar­fundi áður en regl­unum var hrint í fram­kvæmd.

Forsætisráðherra
For­sæt­is­ráð­herra Katrín Jak­obs­dóttir las um ákvörðun Jóns í Morg­un­blað­inu 30. des­em­ber, sama dag og hann gaf út reglur sem heim­ila lög­reglu­mönnum að bera og nota raf­byssur. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Skúli Magn­ús­son, umboðs­maður Alþingis, sendi bréf til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í síð­ustu viku og óskaði eftir því að hún lýsi afstöðu sinni til þess hvort ákvörðun Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra um að heim­ila lög­regl­unni að bera raf­byssur hafi falið í sér „mik­il­væga stefnu­mörkun eða áherslu­breyt­ingu“. Hann vill einnig fá að vita hvort að ákvörð­unin hafi að öðru leyti verið þannig vaxin að  berea hafi átt málið upp á rík­is­stjórn­ar­fundi áður en regl­unum var veitt gildi eða þeim hrint í fram­kvæmd. 

Í ljósi þess að í starfs­reglum rík­is­stjórn­ar­innar er ekki að finna nán­ari afmörkun á því hvaða mál­efni telj­ist mik­il­væg stjórn­ar­mál­efni þá fer umboðs­maður fram á að for­sæt­is­ráð­herra veiti honum upp­lýs­ingar um verk­lag sem kunni að vera tíðkað af henni í því skyni að tryggja að mál sem falli undir starfs­regl­urnar séu borin upp á rík­is­stjórn­ar­fundum.

Í bréf­inu, sem má lesa hér, er farið fram á að svar ber­ist eigi síðar en 3. mars, eða fyrir lok næstu viku. 

Fékk símtal sama dag og hann gaf reglurnar út

Umboðs­maður Alþingis hafði áður óskað eftir upp­lýs­ingum og skýr­ingum frá Jóni Gunn­ars­syni um hvernig staðið hafi verið að ákvörðun hans um að heim­ila lög­regl­unni að bera og nota raf­byssur, en hana kynnti Jón í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu undir lok síð­asta árs , nánar til­tekið 30. des­em­ber, sam­hliða því að hann und­ir­rit­aði reglu­gerð­ar­breyt­ingu þess efnis. 

Í svari Jóns til umboðs­manns kom fram að honum hafi verið kunn­ugt um þá ósk for­sæt­is­ráð­herra að hinar end­ur­skoð­uðu reglur yrðu kynntar í rík­is­stjórn og að sú afstaða hafi verið gerð honum kunn að morgni 30. des­em­ber í sím­tali, sama dag og hann gaf regl­urnar út og sendi til birt­ingar í Stjórn­ar­tíð­indum. Jón taldi ákvörðun sína um að heim­ila lög­reglu almennt að bera og nota raf­byssur ekki telj­ast „mik­il­vægt stjórn­ar­efni“ og því hefði hann ekki þurft að kynna málið sér­stak­lega fyrir rík­is­stjórn. 

Svandís lét bóka að hún væri andsnúin ákvörðun Jóns

Heim­ildin greindi frá því í gær að Katrín hafi fyrst lesið um ákvörðun Jóns í áður­nefndri grein sem hann birti í Morg­un­blað­inu á næst­síð­asta degi árs­ins 2022. Málið var svo tekið fyrir á rík­is­stjórn­ar­fundi tveimur vikum síðar, 13. jan­úar. Jón var fjar­ver­andi á fund­inum og það kom í hlut Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, að leggja fram fram og kynna minn­is­blað um málið fyrir hans hönd. 

Í frétt Heim­ild­ar­innar, sem byggði á svari for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Halldórs Auðar Svans­sonar vara­þing­manns Pírata, kom fram að í umræðum um málið á rík­is­stjórn­ar­fundi hafi Katrín gert athuga­semd við að málið hefði ekki verið kynnt í rík­is­stjórn áður en dóms­mála­ráð­herra skrif­aði undir reglu­gerð um málið og kynnti ákvörðun sína í fram­an­greindri blaða­grein. „Þá kom fram skýr afstaða for­sæt­is­ráð­herra um að boð­aðar breyt­ingar köll­uðu á frek­ari kynn­ingu á mál­inu.“

Á umræddum fundi rík­is­stjórnar óskaði Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra eftir því að bókað yrði í fund­ar­gerð rík­is­stjórnar að hún væri andsnúin ákvörðun Jóns og gerði athuga­semd við það hvernig málið hafði verið unnið, þar með talið að það hafi ekki verið rætt í rík­is­stjórn áður en það var kynnt opin­ber­lega.

Jóns að meta hvort breytingarnar væru „mikilvægt stjórnarmálefni“

Í gild­andi reglum um vald­beit­ingu lög­reglu­manna og með­ferð og notkun vald­beit­ing­ar­tækja og vopna frá árinu 1999 er að finna heim­ild rík­is­lög­reglu­stjóra til að heim­ila lög­reglu notkun raf­magns­vopna. Katrín telur að breyt­ingar dóms­mála­ráð­herra fela á í sér að heim­ila lög­reglu notkun raf­byssa sem almennu vald­beit­ing­ar­tæki við störf sín. „Að mati for­sæt­is­ráð­herra felur það í sér áherslu­breyt­ingu á þeirri fram­kvæmd sem fylgt hefur verið sam­kvæmt fram­an­greindum reglum. Af þeim sökum óskaði for­sæt­is­ráð­herra sér­stak­lega eftir því að dóms­mála­ráð­herra gerði grein fyrir mál­inu í rík­is­stjórn en hann hafði þá þegar tekið ákvörðun um að gera breyt­ing­arnar.“ 

For­sæt­is­ráð­herra svar­aði því hins vegar til að það væri Jóns Gunn­ars­sonar að meta hvort breyt­ing­arnar telj­ist til mik­il­vægra stjórn­ar­mál­efna í skiln­ingi stjórn­ar­skrár­innar, og feli þar af leið­andi í sér mik­il­væga stefnu­mörkun eða áherslu­breyt­ingar.

Umboðs­maður Alþingis vill hins vegar vita hvert hennar mat á því álita­efni sé.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár