Ríkisendurskoðun segir starfsmann ráðuneytis hafa setið báðum megin borðs

Í skýrslu Ríkis­endur­skoðunar um laxeldi á Íslandi er bent á að Jón Þrándur Stef­ánsson hafi á sama tíma starfað fyrir ráðuneyti sjávar­útvegs­mála og hjá ráðgjafa­fyrirtæki stjórnar­formanns Arnarlax.

Starfaði fyrir ráðuneyti og hagsmunaðila
Starfaði fyrir ráðu­neyti og hags­mun­að­ila Jón Þrándur Stef­áns­son starf­aði fyrir atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið að fisk­eld­is­málum en vann á sama tím fyrir ráð­gjafa­fyr­ir­tæki stjórn­ar­for­manns Arnarlax, Kjartans Ólafs­sonar. Mynd: mbl/Ómar Óskarsson

Starfs­maður ráðgjafar­fyrirtækis sem er í eigu stjórnar­formanns Arnarlax vann samhliða fyrir atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytið að því að undirbúa ný lög um fiskeldi sem samþykkt voru árið 2019. Á þetta er bent í nýrri skýrslu Ríkis­endur­skoðunar um sjókvíaeldi á Íslandi. Maðurinn heitir Jón Þrándur Stef­ánsson og var hann samtímis starfs­maður Markó Partners ehf., fyrir­tækis Kjartans Ólafs­sonar, stjórnar­formanns Arnarlax. Ítrekað hefur verið fjallað um aðkomu og áhrif Kjartans Ólafs­sonar í íslensku laxeldi en Arnarlax er stærsta slíka fyrirtæki landsins. 

Jón Þrándur var starfs­maður starfs­hóps sem þáverandi ráðherra sjávar­útvegs­mála, Gunnar Bragi Sveinsson, skipaði árið 2016 og var ráðuneytið meðvitað um tengsl hans við Markó Partners og Kjartan Ólafsson þegar hann var ráðinn þangað sem verktaki. Um þetta segir í skýrslunni: „Starfs­maður hópsins var verktaki á vegum sjávar­útvegs- og landbúnaðar­ráðuneytis. Greint var frá því á opinberum vettvangi að viðkomandi hafi á sama tíma og nefndin var að störfum verið fastráðinn …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár