Djöfullinn, dauðinn og vorið á næsta leiti

Auður Jóns­dóttir lagði tarotspil fyrir Pedro Gunnlaug Garcia og rithöf­und­arnir röbbuðu þar til úr varð saga.

Árið 2023 hófst þannig hjá Pedro Gunnlaugi að Páll Valsson, útgefandi hans, hringdi í hann og sagði honum að hann hefði hlotið Íslensku bókmennta­verðlaunin fyrir skáld­söguna Lungu. Þetta er önnur bók höfundar, sú fyrsta hét Málleysingjarnir, en um hana sagði bókmennta­gagn­rýnandinn Þorgeir Tryggvason: Skrifað af feikilegu öryggi ... Rosalega mögnuð bók! Og Kolbrún Bergþórs­dóttir klykkti út með: Ein athyglis­verðasta bók ársins.

Að fyrsta verk höfundar hljóti svo háfleyga dóma er fátítt. Oftar er fjallað á passívum nótum um frumraun höfundar, og gjarnan gefinn ákveðinn slaki með orðinu frumraun. Óhætt er að segja að Pedro Gunnlaugur hafi sett svip á sögu íslenskra bókmennta um leið og hann byrjaði að skrifa, hann er eins konar ævintýri.

Ég las Lungu í einum rykk og strax á fyrstu síðunum blasti við að höfundur býr yfir svo flæðandi kátum hæfileika til að segja sögur að það tendrar hugrenninga­tengsl við ekki minni sagna­karla en …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár