Mikil ánægja með Skaupið í ár

Áttatíu og níu pró­sent þeirra sem horfðu á síð­asta Skaup fannst það gott. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu.

Mikil ánægja með Skaupið í ár

Mikil ánægja var með Ára­mótaskaupið 2022, að því er fram kemur í nýrri könnun Maskínu. Þar kemur fram að 66,2 pró­sent svar­enda hafi fund­ist Skaupið mjög gott og 22,9 pró­sent frekar gott. 2,6 pró­sent svar­enda fannst það frekar slakt og 2,4 mjög slakt. 

Maskína hefur síð­ast­liðin 12 ár spurt Íslend­inga út í Ára­mótaskaupið. Fram kemur á vef­síðu Maskínu að í ár hafi þeir ekki verið ánægð­ari á þessum 12 árum sem sýni sig bæði í því aldrei hafi fleiri sagt skaupið vera gott og aldrei færri þótt það slakt.

Ánægja lands­manna sveifl­ast mikið á milli ára þegar kemur að Skaupinu en árin 2013, 2020 og 2022 eru í sér­flokki þar sem hlut­fall ánægðra var yfir 80 pró­sent, þá var hlut­fall þeirra sem þótti skaupið slakt þessu þrjú sömu ár í algjöru lág­marki eða á bil­inu 5 til 9 pró­sent.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks (e. panel) sem dreg­inn er með til­viljun úr Þjóðskrá, á net­inu. Alls voru svar­endur 949, en þeir eru alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Könnunin fór fram dag­ana 13. til 18. jan­úar 2022.

Ólga í kringum framleiðsluna

Heim­ildin greindi frá því um miðjan jan­úar að leik­stjóri Skaups­ins, Dóra Jóhanns­dóttir, hefði kvart­að til RÚV und­an fram­göngu fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins sem gerði Ára­móta­s­kaup­ið. Þrýst­ing­ur um að taka Skaup­ið í nýja mið­bæn­um á Sel­fossi, duld­ar aug­lýs­ing­ar og fal­in fjár­hags­áætl­un hefði orðið til þess að upp úr sauð. Reynt hefði verið að afmá Ölfusár­brú út úr senu, eft­ir að Sig­ur­jón Kjart­ans­son sagði rangt frá um að eng­ar úti­tök­ur hefðu far­ið fram á Sel­fossi.

Jafn­framt greindi Heim­ildin frá því fyrir viku síðan að söngv­ar­ar sem tóku upp lag­ið í poka at­riði Ára­móta­s­kaups­ins hefðu verið snuð­að­ir um greiðslu fyr­ir. Í stað þess að greiða hverj­um og ein­um rúm­ar 50 þús­und krón­ur eins og kjara­samn­ing­ar gera ráð fyr­ir hugð­ust fram­leið­end­ur greiða hverj­um söngv­ara rúm­ar 5.000 krón­ur. Þeg­ar far­ið var fram á að greitt yrði sam­kvæmt taxta hót­uðu fram­leið­end­ur að taka at­rið­ið út úr Skaup­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár