Skaupið í hættu eftir að framleiðendur hættu samskiptum

Leik­stjóri Skaups­ins kvart­aði til RÚV undan fram­göngu fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins sem gerði ára­mótaskaupið. Þrýst­ingur um að taka Skaupið í nýja mið­bænum á Selfossi, duldar aug­lýs­ingar og falin fjár­hags­á­ætlun varð til þess að upp úr sauð. Reynt var að afmá Ölf­usár­brú út úr senu, eftir að Sigurjón Kjart­ans­son sagði rangt frá um að engar úti­tökur hefðu farið fram á Selfossi.

Skaupið í hættu eftir að framleiðendur hættu samskiptum
Næstum ekki með Hefði Dóra Jóhanns­dóttir og Saga Garð­ars­dóttir ekki tekið á sig auknar byrðar við fram­leiðslu ára­mótaskaups­ins hefði poka­lagið, sem orðið er afar vin­sælt, ekki náð inn í skaupið. Sömu sögu er að segja um loka­lagið. Mynd: skjáskot RÚV

Ára­mótaskaupið lagð­ist að því er virð­ist óvenju vel í þjóð­ina í þetta skiptið og fékk verð­skuldað og almennt lof. Loka­lagið og skets um plast­poka­skömm, með til­heyr­andi söng, hittu að því er virð­ist sér­stak­lega í mark og brenndu sig inn í heila margra.

Það að koma Skaupinu út og þá sér­stak­lega þessum tveimur atriðum í því, gekk þó langt í frá átaka­laust. Þetta kemur fram í skýrslu leik­stjór­ans, Dóru Jóhanns­dóttur, sem send var RÚV viku fyrir jól. Þar lýsir hún því hvernig fram­leið­endur Skaups­ins hafi í raun hætt vinnu við Skaupið óklárað. Ástæðuna segir hún hafa verið við­brögð þeirra við spurn­ingum um eign­ar­hald á fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu, athuga­semdum um vöruinn­setn­ingar í mynd og krafa hennar um að fá að sjá fjár­hags­á­ætlun, sem þeir hafi neitað.

„Leik­stjóri vil vita hvort fram­leið­endur hafi á ein­hvern hátt gerst brot­legir gagn­vart samn­ing sínum við RÚV með hegðun sinni. Þeir hafi að mörgu leyti hætt að sinna skyldum sínum í verk­efn­inu eftir að fréttin í Stund­inni birt­ist og leik­stjóri spurði út í það og annað,“ segir í bréfi Dóru til dag­skrár­stjóra RÚV sem dag­sett er 17. des­em­ber.

Furðu­legar senurDóra lýsir því að sam­skipti við fram­leið­endur Skaups­ins hafi verið stórfurðu­legar. Svo hafi bein­línis verið skorið á þau.

Einn, tveir Selfoss

Heim­ildin hefur bréf Dóru til RÚV undir höndum. Þar er því lýst hvernig frétt Stund­ar­innar um eign­ar­hald Krist­jáns Vil­helms­sonar, eig­anda Samherja, á fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu, S800, og tengslum þess við fast­eigna­fé­lagið Sigtún, sem á og reisti nýja mið­bæ­inn á Selfossi, hafi komið Dóru og fleirum í opna skjöldu. Ekki síst í ljósi þess sem á undan hafði gengið þar sem mikil áhersla hafði að sögn verið á að tökur á Skaupinu færu fram í Nýja-mið­bænum á Selfossi.

„Pressan að fara á Selfoss var mjög mikil frá fyrsta degi. Ekkert var hlustað á sí end­ur­teknar óskir leik­stjóra um að fara ekki þangað í tökur og finna frekar aðrar lausnir á spít­ala­rými til að missa ekki dýr­mætan töku­tíma í ferða­lög. Af ein­ungis 8 töku­dögum eru 2-3 tímar í óþarfa ferða­lög mjög dýr," segir í bréfi Dóru þar sem vísað er til þess að svar starfs­manna fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins við neit­unum hennar um að taka upp á Selfossi, hafi alltaf verið að að slíkt væri ein­dregin vilji Sig­ur­jóns Kjart­ans­sonar, yfir­fram­leið­anda Skaups­ins og helm­ings­eig­anda S800, sem fram­leiddi Skaupið.

Í sam­tali við Heim­ild­ina segir Sigurjón Kjart­ans­son að ástæðan fyrir því fara hefði þurft á Selfoss í tökur hefði verið sú að nauð­syn­legt hefði verið að taka upp atriði sem gerð­ist á sjúkra­húsi. Að slíku sé ekki hlaupið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Það er mjög vel þekkt að fara þurfi út úr bænum til að taka upp á spít­ala því það er ill finn­an­legt rými til þess ann­ars staðar.“

„Engan veg­inn, enda sést hann ekki.“
Sigurjón Kjart­ans­son
um hvort það hefði verið mark­miðið að Sel­foss­bær sæist í Skaupinu.

Í sam­tali við blaða­mann Stund­ar­innar í nóv­em­ber síð­ast­liðnum full­yrti Sigurjón að engar úti­tökur hefðu farið fram á Selfossi. Það er hins vegar ekki rétt því meðal ann­ars var sena þar sem hann sjálfur lék verð­bólgu­draug­inn tekin úti, á Selfossi, með Ölf­usár­brúna í bak­sýn. Sigurjón segir að honum hafi hrein­lega yfir­sést að nefna það á sínum tíma. „Þetta er smá bútur sem til­heyrir öðrum skets og það sést ekk­ert að þetta sé á Selfossi.“

Þannig að það var ekki sér­stakt mark­mið í sjálfu sér að Selfoss, bær­inn sem slíkur, sæist í Skaupinu?

„Engan veg­inn, enda sést hann ekki.“

Verð­bólgu­draug­ur­inn - á SelfossiSigurjón Kjart­ans­son, fram­kvæmda­stjóri S-800, sagði í við­tali við Stundina í byrjun des­em­ber að það væri ekki rétt að ein­hver pressa hefði verið af hálfu eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins að taka Skaupið á Selfossi og engar úti­tökur hefðu farið fram þar. Það var rangt og fyrir vikið varð að grípa til þess að reyna að eyða út úr senu af verð­bólgu­draugnum, áber­andi Ölf­us­sár­brú sem blasti við í bak­grunn­inum. Brúin er enn sjá­an­leg, í móðu ofan við fremsta hluta bíl­húdds­ins á mynd­inni.

Selfossáherslan vakti ekki áhyggjur RÚV

Skarp­héð­inn Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri Sjón­varps, segir við Heim­ild­ina að RÚV hafi ekki verið sér­stak­lega upp­lýst um mein­tan þrýst­ing um að tökur færi fram á Selfossi, og í raun hafi RÚV ekki sér­staka skoðun á slíku. Val á töku­stöðum sé eitt­hvað sem fari fram á milli fram­leið­enda og leik­stjóra og RÚV hafi ekk­ert um það að segja. „Við lítum á þetta sem list­rænt úrlausn­ar­efni þeirra á milli og þekkjum ekki hvað býr þar að baki, annað þá en praktísk úrlausn­ar­efni.“

„Annars fór ekki fram neitt sam­tal sér­stak­lega um hvar Skaupið yrði tekið upp“
Skarp­héð­inn Guð­munds­son
dag­skrár­stjóri Sjón­varps.

Vakti það ein­hverjar áhyggjur á RÚV þegar greint var frá eign­ar­haldi á fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu, stað­settu á Selfossi og bein­tengdu nýjum miðbæ Selfoss, að það væri með ein­hverjum hætti verið að ota bænum áfram og nota til þess Ára­mótaskaupið?

Ekkert óeðli­legt við SelfossSkarp­héð­inn segir að ekki hafi verið hægt að greina neitt óvenju­legt þegar rýnt var í töku­staði Skaups­ins.

„Nei, þarna á í hlut fram­leiðslu­fyr­ir­tæki sem stað­sett er á Selfossi. Rétt eins og fram­leiðslu­fyr­ir­tæki sem stað­sett eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa til­hneig­ingu til að fram­leiða sitt efni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þá þarf ekki að koma á óvart að það vilji fram­leiða sitt efni á Selfossi. Annars fór ekki fram neitt sam­tal sér­stak­lega um hvar Skaupið yrði tekið upp. Það er eitt af því sem við rýnum við loka­yf­ir­ferð, hvort sem er Skaups­ins eða ann­ars efnis sem fram­leitt er fyrir okkur, hvort eitt­hvað sé óvenju­legt við val á töku­stöðum.“

Og það var ekki hægt að greina slíkt?

„Nei, við gátum ekki séð að svo væri.“

Sama krónutala ár eftir ár í Skaupið

Dóra segir enn­fremur í bréf­inu til for­svars­manna RÚV að þessi áhersla á að verja dýr­mætum tíma í flutn­ing tökuliðs og leik­ara á Selfoss, hafi verið enn furðu­legri í ljósi þess að á sama tíma hafi fram­leiðslu­fyr­ir­tækið sniðið leik­stjóra óvenju þröngan stakk þegar kom að töku­dögum. Það er ein­ungis átta dagar í stað ell­efu eins og verið hefði und­an­farin ár. Þá hafi verið skorið tölu­vert niður víða við fram­leiðslu Skaups­ins, sem skapað hafi til­heyr­andi erf­ið­leika. 

Spurður hvort rétt sé að mikið hafi verið skorið niður við fram­leiðslu Ára­mótaskaups­ins í fyrra segir Sigurjón að það sé rétt. „Að sjálf­sögðu var skorið niður af því að allt hefur hækkað svo mikið síðan að síð­asta Skaup var fram­leitt. Við vorum með mjög lítið budget, budget á Skaupinu hefur ekki hækkað síðan að ég held 2016, það hefur verið sama krónu­tala síðan þá.“

Skarp­héð­inn stað­festir að fram­lag RÚV hafi verið hið sama til ára­mótaskaups­ins 2022 og var árið áður, að krónu­tölu. Hann segir enn fremur að RÚV hafi ekki verið ljóst að fram­leið­andi hefði fækkað töku­dögum og skorið niður í fram­leiðslu Skaups­ins frá því sem verið hafði. „Við gerum samn­ing við fram­leiðslu­fyr­ir­tæki og það ábyrgist að skila til okkar Skaupi sem upp­fyllir þær kröfur sem við gerum.“

RÚV fann ekki vísbendingar um spons

Dóra nefnir einnig í skýrslu sinni til RÚV að starfs­menn fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins og leik­stjór­inn hafi deilt um ítrek­aðar til­raunir fram­leið­end­anna til að reyna að koma duldum aug­lýs­ingum inn í Skaupið. Svoköll­uðu sponsi. Samkvæmt lögum um Rík­is­út­varpið er vöruinn­setn­ing bönnuð í efni sem sýnt er og fram­leitt fyrir RÚV. Engu að síður virð­ist sem til­tekin vöru­merki hafi átt að fá sinn sess í ára­mótaskaup­inu vegna samn­inga fram­leið­enda við þau. 

„Þetta er ekki spons, það er líka ekki leyft“
Sigurjón Kjart­ans­son

Spurður, neitar Sigurjón því stað­fast­lega. „Nei, það var ekk­ert svo­leiðis. Öll skaup hafa verið unnin þannig að það er kannski gerður sam­starfs­samn­ingur við ákveðna aðila, gegn ein­hverjum afslætti. Þetta er ekki spons, það er líka ekki leyft.“

Voru þá slíkir samn­ingar gerðir núna?

„Það voru ein­hverjir afslættir hér og þar.“

En fólu þessir samn­ingar í sér að vörur við­kom­andi fyr­ir­tækja kæmu fram í Skaupinu?

„Engan veg­inn. Það er þakk­arlisti í lokin og ef menn skoða þetta með þessum gler­augum þá sjá menn ekki að ein­hverju sér­stöku brandi umfram önnur hafi verið ýtt þarna að. Þetta er auð­vitað alltaf ákveðið mats­at­riði, ef þú ferð í leikið efni til að mynda sem ger­ist í sjoppu þá er allt þar fullt af vörum sem koma í mynd. Það eru þarna senur sem ger­ast í mat­höll hjá okkur. Þú veist ekk­ert hvað er sam­kvæmt svona samn­ingi eða ekki og þetta kemur hvort eð er allt fram í þakk­arlist­anum.“

En bíddu, þegar þú segir að fólk viti ekki hvort eitt­hvað sé í mynd sam­kvæmt samn­ingi eða ekki, má þá skilja þig svo að eitt­hvað hafi birst í mynd í Skaupinu vegna þess að gerðir hefðu verið slíkir samn­ingar?

„Nei, ekk­ert. Þú sérð þakk­arlist­ann, þar birt­ast ein­hverjir sem við gerðum samn­inga við. Það er eina birt­ingin.“

Spurður hvort að RÚV hafi kannað sér­stak­lega, í ljósi bréfs Dóru, hvort finna mætti spons, eða vöruinn­setn­ingar, í Skaupinu svarar Skarp­héð­inn Guð­munds­son því til að það hafi að sjálf­sögðu verið gert. „Þegar við fáum ein­hvern grun um slíkt bregð­umst við við því. Við könn­uðum það því sér­stak­lega.“

Og hver var nið­ur­staðan af þeirri könnun?

„Að svo væri ekki. Fram­leið­endur full­yrtu að svo væri ekki og þegar við skoð­uðum Skaupið var ekk­ert sem benti til þess sér­stak­lega.“

Hefur RÚV vit­neskju um að slíkt hafi þá verið klippt út í eft­ir­vinnslu?

„Nei, RÚV hefur ekki vit­neskju um að neitt hafi verið klippt út til að fjar­lægja vöruinn­setn­ingu. Vinnulag okkar er að skoða end­an­lega útgáfu og sé ekk­ert sem bendir til vöruinn­setn­inga í loka­af­urð, þá upp­fyllir efnið kröfur okkar. Það er fast ákvæði í samn­ingum RÚV við alla fram­leið­endur að öll vöruinn­setn­ing óheimil og á ábyrgð fram­leið­enda að engin slík sé staðar.“

Skorið á samskipti og Dóra sögð erfið

Í bréf­inu segir Dóra að þegar henni varð ljóst að eig­endur Nýja-mið­bæj­ar­ins á Selfossi væri eig­endur fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins með Sig­ur­jóni, eftir að Stundin birti fréttir um eign­ar­haldið á S800, hafi hún áttað sig á „Selfoss-press­unni“ og farið fram á skýr­ingar á því, vöruinn­setn­ingum og hvers vegna hún hefði ekki fengið að sjá fjár­hags­á­ætlun Skaups­ins, eins og sögð er venjan í slíkum verk­efnum. Viðbrögð starfs­manna fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins hafi komið henni í opna skjöldu. 

„Leik­stjóri upp­lifir að fram­leiðslan hafi hagað sér mjög óeðli­lega gagn­vart henni“
Dóra Jóhanns­dóttir

„Fram­leið­andi og aðstoð­ar­leik­stjóri hætta sam­skiptum við leik­stjóra þrátt fyrir að tökur á loka­lagi og pikkup tökur væru eftir,“ skrifar Dóra í bréfi sínu og lýsir því að skýr­ingin sem hún hafi fengið, frá Sig­ur­jóni, hafi verið sú að umræddir menn hafi lýst því að svo erfitt væri að vinna með henni. Það hefði hann sjálfur þó ekki upp­lifað, hefur Dóra eftir Sig­ur­jóni. „Leik­stjóri upp­lifir að fram­leiðslan hafi hagað sér mjög óeðli­lega gagn­vart henni og hafi ætlað að koma sér undan að þurfa að svara óþægi­legum spurn­ingum hennar með því að mála hana upp sem erf­iða í sam­skiptum á sein­ustu metrum verk­efn­is­ins,“ skrifar Dóra enn fremur.

Heim­ildin innti Sigurjón eftir þessu og spurði hvers vegna hann, sem yfir­fram­leið­andi, hefði látið það við­gang­ast að fram­leið­andi og aðstoð­ar­leik­stjóri hefðu klippt á sam­skipti við Dóru, leik­stjóra Skaups­ins, þegar enn átti eftir að taka senur. „Ég ætla ekki að svara fyrir þá. Þetta voru bara erfið sam­skipti sem þau áttu,“ segir Sigurjón.

En áttir þú í erf­ið­leikum með að eiga í sam­skiptum við Dóru, nú eða þá?

„Nei nei, ég var bara þarna að reyna að láta þetta allt saman ganga upp.“

En hafðir þú ekki áhyggjur af þess­ari stöðu? Þarna átti eftir að taka mik­il­vægan þátt í Skaupinu, loka­lagið, auk ann­ars. Var það ekki áhyggju­efni að svona væri komið?

„Jú absalút. Enda unnum við bara öll að þessu, að klára tökur og það tókst.“

RÚV á hliðarlínunni

Skarp­héð­inn segir að RÚV hafi verið upp­lýst um að sam­skipti leik­stjóra og fram­leið­enda væru erfið, og raunar svo erfið að á þau hefði verið klippt áður en Skaupið var til­búið. RÚV hafi verið sett inn í málið af Dóru og hafi virkað sem milli­liður milli hennar og fram­leið­enda við að miðla málum. Slíkt væri ekki óþekkt. Spurður hvort RÚV hefði þá stigið inn í fram­leiðsl­una á Skaupinu, þar á meðal varð­andi tökur á loka­lag­inu, svarar Skarp­héð­inn því ekki beint. „Við fylgj­umst alltaf með á hlið­ar­lín­unni og við reynum alltaf að bregð­ast við og leggja svona fram­leiðslu lið eftir þörfum.“

Með hvaða hætti var það gert við vinnslu þessa ára­mótaskaups?

„Það hefur alltaf loðað við Skaupið að það hefur verið ákveð­inn vilji fram­leið­enda að vinna ákveðna þætti þess hér í húsi. Eins og með loka­at­riðið þá hefur það gerst oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að það hefur verið fram­leitt í stúd­íó­inu okkar, enda það eitt af örfáum stúd­íóum á land­inu sem eru not­hæf í slíkt.“

Oddfellow og Mæðrastyrksnefnd hagnast

Í bréfi Dóru kemur fram að vegna þess­arar stöðu hafi hún, og Saga Garð­ars­dóttir hand­rits­höf­undur, þurft að taka á sig mikla auka­vinnu við skipu­lagn­ingu, meðal ann­ars við tökur á atrið­inu um kon­una sem gleymir poka og einnig loka­lags­ins. Þá hafi Dóra þurft að biðja RÚV um að greiða útgjöld Bríetar, aðal stjörnu loka­lags­ins, vegna bún­inga, sökum þess að þær greiðslur komu ekki frá fram­leið­endum. Flytj­endur hafi einnig ekki fengið greitt fyrir sína vinnu. 

Sigurjón segir hins vegar að þetta sé algjör mis­skiln­ingur. „Það var algjör­lega búið að ræða þessi mál við þá sem að þessu komu og semja um þessi mál. Ég get ekk­ert svarað fyrir hennar upp­lifun af þessu. Það var þannig að þeir sem komu fram í loka­lag­inu gáfu vinnu sína til góð­gerð­ar­mála. Þetta var ákveðin lausn sem við fundum, að við myndum styrkja Mæðra­styrks­nefnd um ákveðna summu. Það voru margir þjóð­þekktir ein­stak­lingar sem komu þarna fram og öllum var kynnt þetta ræki­lega.“

Hefur sá styrkur verið veittur?

„Já, allt í allt var þetta 580 þús­und. 500 þús­und voru veittar í stuðn­ing við Mæðra­styrks­nefnd og 80 þús­und var veitt til Oddfellow, að beiðni leik­ara. Þessir styrkir hafa þegar verið greiddir.“ 

Loka­lag­inu bjargaðRÚV neydd­ist til að hlaupa undir bagga og greiða fyrir bún­inga Bríetar. Eins og sjá má þá þurfti ekki að kosta miklu til í bún­ing fyrir Aron Can.

RÚV þurfti að greiða fyrir búninga utan samningsins

Heim­ildin spurði Skarp­héð­inn hvort RÚV hefði neyðst til að greiða eitt­hvað umfram samn­ing sinn við fram­leiðslu­fyr­ir­tækið S800. Skarp­héð­inn sagði að svo hefði verið en það væru ekki telj­andi fjár­hæðir. „Það var lít­il­ræði sem til féll sem var sam­þykkt á okkur en ekki fram­leið­and­ann.“

Geturðu nefnt ein­hver dæmi þess?

„Ekkert í smá­at­riðum, þetta voru engar veru­legar fjár­hæðir, bara eitt­hvað sem fallið hefur til og er þá sam­þykkt af okkur að standa undir þeim kostn­aði.“

Var það þá gert að beiðni leik­stjóra, Dóru?

„Leik­stjóra, já.“

Er það rétt að RÚV hafi þurft að greiða fyrir bún­inga eða bún­ing fyrir flytj­anda loka­lags­ins?

„Já, við komum að því. Við brugð­umst við með skömmum fyr­ir­vara og féll­umst á að afgreiða það, enda eins og ég segi, þá var um óveru­legar fjár­hæðir að ræða. Til þess að láta allt ganga upp þarf stundum að bregð­ast hratt við.“

Segir framlag Sigurjóns hafa verið lítið 

Í bréfi Dóru lýsir hún því að sam­skipti hennar við Sigurjón, yfir­fram­leið­anda, hefðu verið stopul, hann hafi svarað henni bæði seint og illa. Sigurjón segir að það sé ekki sín upp­lifun, hann hafi reynt að svara Dóru eftir bestu getu og hafi oft verið að svara sömu spurn­ing­unum oftar en einu sinni. 

Dóra segir enn fremur í bréf­inu að Sigurjón hafi gefið lítið af sér við samn­ingu Skaups­ins, sem hann hafi þó verið með­höf­undur að. Hann hafi mætt á fáa höf­unda­fundi og lítið sem ekk­ert skrifað. Sigurjón kann­ast ekki við þetta. „Ég vísa þessu nú til föð­ur­hús­anna. Ég var reyndar alveg búin að upp­lýsa leik­stjóra um það, strax í byrjun þegar hún leit­aði til mín um að vera í höf­unda­hópnum, að ég myndi ekki vera mjög mikið við­staddur, þar sem ég var í ýmsu öðru líka. Það eru líka tölu­vert miklar annir tengdar því að fram­leiða Skaupið. Þannig að ég var alveg búinn að veifa því strax í byrjun. Hins vegar get ég ekki sagt að ég hafi lagt eitt­hvað minna af mörkum heldur en aðrir. Það er alltaf dálítið afstætt líka, fólk á þetta mikið í einum skets og ein­hver annar í öðrum. En mér finnst leið­in­legt að heyra að Dóra sé að halda þessu fram.“

„Mér finnst mjög leið­in­legt að Dóra sé að fara niður þennan veg“
Sigurjón Kjart­ans­son

Eins og greint er frá að framan óskaði Dóra eftir svörum um hvort fram­leiðslu­fyr­ir­tækið, S800, hefði gerst brot­legt við samn­ing sinn við RÚV, með hegðun sinni. Þegar Heim­ildin innti Skarp­héð­inn eftir því hvort RÚV telji að fram­leið­endur Skaups­ins hafi upp­fyllt þann samn­ing sem gerður var svarar hann: „Við getum alveg stað­fest það að þessi fram­leið­andi skil­aði til okkar afskap­lega vel heppn­uðu Skaupi, það sem við höfum greint er að það sé sam­dóma álit þjóð­ar­innar. Það er það sem við semjum við fram­leið­anda um. Það sem síðan á sér stað milli fram­leið­enda, leik­stjóra og ann­arra sem koma að gerð Skaups­ins, það er þeirra á milli.“

Mun þetta hafa ein­hver áhrif á frekara sam­starf RÚV við fram­leiðslu­fyr­ir­tækið, eða hvort gerðar verði breyt­ingar á fram­leiðslu næsta Skaups?

„Við drögum alltaf ákveð­inn lær­dóm af þeim verk­efnum sem við tökum þátt í. Það er ýmis­legt sem kemur upp við svona fram­leiðslu og við drögum okkar lær­dóm af þessu, sem og öðru. Við vegum og metum allt sam­starf og okkar við­skipti út frá hverju verk­efni fyrir sig og hvaða mat við leggjum á hvernig til hefur tek­ist og hvernig sam­starfið tókst.“

Þannig að það er ekki hægt að slá neinu föstu um það?

„Nei, alls ekki.“

Þegar Sigurjón var spurður hvernig það slægi hann að heyra lýs­ingar Dóru á fram­leiðslu­ferli Skaups­ins, og sam­skipt­unum, svar­aði hann því til að honum þætti það leið­in­legt. „Mér finnst mjög leið­in­legt að Dóra sé að fara niður þennan veg, mér þykir það miður. Ég sé ekki betur en að við höfum gert alveg frá­bært Skaup svo að þetta slær mig ekk­ert sér­stak­lega vel.“

Rétt er að hnykkja á því Dóra var ráð­inn sem leik­stjóri Ára­mótaskaups­ins af RÚV og bar því í raun skylda til að upp­lýsa þá vinnu­veit­endur sína um stöðu mála, bæði á meðan á fram­leiðslu­ferl­inu stóð og eins eftir að fram­leiðsl­unni var lokið, með því að skila skýrsl­unni til RÚV. 

Spurður hvort hann teldi að með þessu væri tekið fyrir frekara sam­starf hans og Dóru í fram­tíð­inni vildi Sigurjón engu svara um það. „Það eina sem ég vil segja er að mér þótti Dóra standa sig mjög vel sem leik­stjóri á þessu Skaupi og hún gerði frá­bært Skaup.“

Samstarfið vonbrigði

Dóra sagð­ist í sam­tali við Heim­ild­ina ekki vilja tjá sig um bréfið, þar sem það væri trún­að­ar­mál. Hún kvaðst fyrst og fremst þakk­lát þeim sem lögðu allt í að gera gott Skaup og þakk­lát fyrir við­tökur. „Fram­leiðslan olli mér miklum von­brigðum en ég er reynslunni rík­ari eftir þetta ferli. Fram­leiðslan hafði ekki áhrif á efn­is­tökin sem betur fer, en ef við Saga [Garð­ars­dóttir] hefðum ekki tekið á okkur ábyrgð sem fram­leiðslan vildi ekki taka á sig fyrir Poka-skets­inn og Loka­lagið, þá hefðu þau atriði ekki verið með,“ sagði Dóra og kvaðst aðspurð ekki sjá fyrir sér að eiga frekara sam­starf við fyr­ir­tækið. 

„Fram­leiðslan olli mér miklum von­brigðum“
Dóra Jóhanns­dóttur

„Leikarar og crew brunnu fyrir þessu verk­efni og margir lögðu á sig meira en þau fengu borgað fyrir og það er þeim öllum að þakka að við gátum við gert þetta Skaup undir þeim kringumstæðum sem fram­leiðslan bauð upp á,“ sagði Dóra enn­fremur og bætti við að aðal­at­riðið væri loka­af­urðin, sem hún og sam­starfs­fólk hennar séu stolt af. 

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Reyndar held ég að skaupið hafi ekki höfðað til eldri borgara. En mér finnst reyndar furðulegt að svona verkefni sé útvistað. Þá vaknar spurningin um þáttinn um Vikulokin. Eru það ákveðin fyrirtæki sem borga fyrir þátttöku iðulega sama fólkið hjá Gísla Marteini?
    -1
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Skaupið var ágætt. Dóra segist hafa verið ráðin af RÚV. Sigurjón segir (frétt RÚV) að hún hafi verið ráðin af S800. Hvort er rétt? Hefur Heimildin aðgang að ráðningarsamningi hennar??
    1
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Leiðinlegt að sjá Sigurjón lagstan í fjóshaugin samherja en allter jú falt,hinir óseðjandi láta ekki deigan síga og skara endalaust að eigin köku.Að SÚF verji hægrisinaða arðræningja er ekkert nýtt,en gott að geta verið stoltur af DÓRU að standa í lappirnar og gera þetta skaup og við þessar aðstæður.
    6
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Seisei, kemur einhverjum á óvart að spilling ríki í úthlutun verkefna þegar sami maður hefur verið alvaldur í 11 ár?! Er kannski stefnt að því að Skarphéðinn jafni metið hennar Laufeyjar Guðjónsdóttur?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Átök í Áramótaskaupinu

„Hótuðu því að taka sketsinn úr Skaupinu ef við samþykktum ekki“
FréttirÁtök í Áramótaskaupinu

„Hótuðu því að taka skets­inn úr Skaupinu ef við sam­þykktum ekki“

Söngv­arar sem tóku upp lagið í poka atriði Ára­mótaskaups­ins voru snuð­aðir um greiðslu fyrir. Í stað þess að greiða hverjum og einum rúmar 50 þús­und krónur eins og kjara­samn­ingar gera ráð fyrir hugð­ust fram­leið­endur greiða hverjum söngv­ara rúmar 5.000 krónur. Þegar farið var fram á að greitt yrði sam­kvæmt taxta hót­uðu fram­leið­endur að taka atriðið út úr Skaupinu.
Munaði hársbreidd að Spaugstofan hætti við þátttöku í Skaupinu
FréttirÁtök í Áramótaskaupinu

Munaði hárs­breidd að Spaug­stofan hætti við þátt­töku í Skaupinu

Spaug­stofu­mönnum var til­kynnt af fram­leið­endum Ára­mótaskaups­ins að þeir fengju ekki borgað fyrir þátt­töku sína heldur yrði pen­ingum veitt til Mæðra­styrks­nefndar. Leik­arn­arnir leit­uðu til stétt­ar­fé­lags síns vegna þessa. Fram­kvæmda­stjóri stétt­ar­fé­lags­ins segir það hvernig staðið var að málum „gjör­sam­lega galið“.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár