Leigufélagið Alma hækkar leigu hjá flóttamönnum frá Úkraínu um allt að 114 prósent

Leigu­fé­lagið Alma hefur ákveðið að hækka leig­una á íbúðum í Urriða­holts­stræti í Garðabæ um allt að 100 pró­sent. Í íbúð­unum búa flótta­menn frá Úkraínu í sextán íbúðum, þar á meðal börn, sem eru að flýja stríðið í Úkraínu. Garðabær hefur lofað Úkra­ínu­mönnum að greiða hluta leig­unnar fyrir þá ef þeir halda áfram að leigja hjá Ölmu. Til­raunir til að fá Ölmu til að inn­heimta lægri leigu hjá flótta­mönn­unum hafa ekki borið árangur.

Leigufélagið Alma hækkar leigu hjá flóttamönnum frá Úkraínu um allt að 114 prósent
Hækkar leig­una um allt að 100 pró­sent Leigu­fé­lagið Alma hefur ákveðið að hækka leig­una hjá 16 flótta­mönnum frá Úkraínu sem búa í fjöl­býl­is­húsi í Garðabæ um allt að 100 pró­sent. Með­al­hækk­unin á leig­unni er 83 pró­sent. Hér eru þrír af eig­end­unum: Gunnar, Eggert og Halldór Gísla­synir. Mynd: Stundin

Leigu­fé­lagið Alma mun hækka leig­una hjá flótta­mönnum frá Úkraínu í fjöl­býl­is­hús­inu á Urriða­holts­stræti 26 í Garðabæ um allt að 114 pró­sent. Um er að ræða 16 íbúðir sem í búa flótta­menn, þar á meðal börn, sem eru að flýja inn­rás­ar­stríð Rúss­lands í Úkraínu. Flótta­menn­irnir hafa leigt út íbúð­irnir á hag­stæðu verði af öðrum leigu­sala en leigu­samn­ingar þeirra renna út í lok mars.  Þetta kemur fram í bréfi frá Garðabæ til leigj­end­anna og sam­tölum Stund­ar­innar við heim­ild­ar­menn. Með­al­hækkun leig­unnar á þessum 16 íbúðum er 83 pró­sent. 

Í bréf­inu frá Garðabæ til leigj­end­anna segir orð­rétt: „Garðabær hefur fengið upp­lýs­ingar um fyr­ir­hug­aða hækkun á íbúðum í Urriða­holts­stræti 26 sem mun taka gildi þegar leigu­samn­ingi ykkar við Einhorn (núver­andi leigu­sala lýkur) og Alma leigu­fé­lag tekur yfir útleigu íbúð­anna. Hækkunin er umtals­verð og Garðabær gerir sér grein fyrir að mörgum íbúum mun reyn­ast erfitt að greiða svo háa leigu.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðbjörg Leifsdóttir skrifaði
    Þetta er staðfesting á því að heimskunni og græðginni eru engin takmörk sett. Vonandi verða þessir glæpahundar dæmdir af dómstólum í dag. Ef ekki, þá mun sagan klárlega sjá til þess! Þeirra skíta- "orðstír, deyr aldregi." Og hana nú!
    0
  • Lárus Andri Jónsson skrifaði
    Eigendur Ölmu greinilega komnir í jólaskap
    1
  • Hope Henry skrifaði
    Almar er ágjarn...........
    0
    • HR
      Hildigunnur Rúnarsdóttir skrifaði
      meinarðu ekki Alma? Almar bæjarstjóri virðist vera að reyna að hjálpa.
      0
  • Þorsteinn Bjarnason skrifaði
    Er þetta gráðuga pakk þarna alveg sálarlaust og siðblint.
    Hvað er hægt að leggjast lágt .
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leigufélagið Alma

Leigufélagið Alma vill sækja þriggja milljarða fjármögnun
FréttirLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma vill sækja þriggja millj­arða fjár­mögnun

Alma leigu­fé­lag heldur áfram að bjóða fjár­festum upp á skulda­bréf og víxla til að fjár­magna félagið. Stjórn­ar­for­maður félags­ins, Gunnar Þór Gíslason, hefur sagt að snið­ganga líf­eyr­is­sjóða á félag­inu grafi undan hús­næð­is­mark­aðnum en Alma hefur reynt að fá þá til að fjár­festa í félag­inu. Formaður VR. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, er á önd­verðum meiði og segir líf­eyr­is­sjóð­ina eiga að snið­ganga Ölmu.
Leigufélagið Alma stærir sig af samfélagslegri ábyrgð og segir ávinning hluthafa og almennings fara saman
GreiningLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma stærir sig af sam­fé­lags­legri ábyrgð og segir ávinn­ing hlut­hafa og almenn­ings fara saman

Í nýjum árs­reikn­ingi Leigu­fé­lags­ins Ölmu svarar félagið fyrir leigu­verðs­hækk­anir sínar. Félagið und­ir­strikar að það sé sam­fé­lags­lega ábyrgt og rök­styður að hækk­anir leigu­verðs séu stundum bæði eðli­legar og óhjá­kvæmi­legar. Félagið hefur verið harð­lega gagn­rýnt fyrir okur.
Saga Olgu: „Mér líður eins og svikara“
VettvangurLeigufélagið Alma

Saga Olgu: „Mér líður eins og svik­ara“

Úkra­ínskir flótta­menn í hót­el­í­búðum Ölmu við Lind­ar­götu þurfa að flytja út úr þeim í mars. Samn­ing­ur­inn sem gerður var við Ölmu er einn versti og óhag­stæð­asti leigu­samn­ingur sem íslenska ríkið hefur gert. Í hús­inu búa úkra­ínskir flótta­menn sem hafa lent sér­stak­lega illa í stríð­inu í Úkraínu. Meðal þeirra eru Olga, sem gat ekki verið við­stödd jarð­ar­för for­eldra sinna vegna flótt­ans og Dima, en fjöl­skylda hans hefur þrisvar sinnum þurft að flýja stríðs­á­tök Rússa.
Þúsund verðtryggðir leigusamningar skila Ölmu 230 milljónum á mánuði
GreiningLeigufélagið Alma

Þúsund verð­tryggðir leigu­samn­ingar skila Ölmu 230 millj­ónum á mán­uði

Leigu­fé­lagið Alma hefur um eitt þús­und heim­ili til útleigu til ein­stak­linga. Íbúð­irnar eru aðal­lega stað­settar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Suð­ur­nesjum; um 800 íbúðir. Í hverjum mán­uði tikka 220 millj­ónir inn í kass­ann vegna þess­ara íbúða, auk þess sem virði þeirra hefur vaxið veru­lega á síð­ustu árum. Nær allir samn­ingar Ölmu við ein­stak­linga eru verð­tryggðir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár