Annaðhvort ertu lesandi eða ekki

Glæpa­skáldin Yrsa Sig­urð­ar­dóttir og Ragnar Jónasson njóta bæði alþjóð­legra vin­sælda. Þau hafa á sinn hátt skrifað nýjan veru­leika inn í íslenskan bók­mennta­heim, rétt eins og ísbrjót­ur­inn Arnaldur Ind­riða­son. Kannski má segja að þau séu kyn­slóðin sem hélt áfram að brjóta ísinn, þó að Yrsa hafi fyrir löngu hlotið nafn­bót­ina glæpa­sagna­drottn­ing.

Annaðhvort ertu lesandi eða ekki

Raunar má líka segja að Ragnar hafi klifið fjöll sem áttu að vera ókleif, líkt og þegar hann átti þrjár bækur í einu á met­sölu­lista Der Spiegel, svo eitt­hvað sé nefnt, en lík­lega er það heims­met. Rosa­legar vin­sældir íslenskra glæpa­sagna, bæði hér heima og erlendis, hafa umbreytt lands­lagi bók­mennt­anna – og að velta því fyrir sér er lík­lega hinn glæp­sam­legi til­gangur þessa við­tals.

Mig lang­aði að hitta þau til að for­vitn­ast hvort þau upp­lifi að hafa á ein­hvern hátt brot­ist inn í bók­mennt­irnar – jafn­vel brotið og bramlað eitt­hvað með ísöxum. Eða hver eru áhrif glæpa­sög­unnar?

Í síð­asta blaði var Kjartan Örn Ólafsson í við­tali, en hann vann um ára­bil hjá Random House, auk þess að hafa árum saman starfað með föður sínum sem reyndi að búa til grund­völl fyrir glæpa­sögur á Íslandi með því að gefa út Arnald, á tíma þegar álitið var að glæpa­sögur gætu ekki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár