Samherji hótaði Forlaginu: Vildi láta innkalla bókina um Namibíumálið

Útgerðar­félagið Samherji reyndi að fá Forlagið til að innkalla bókina um Namibíu­málið í desember árið 2019. Samherji hótaði bæði Forlaginu sjálfu og blaða­mönnunum sem skrifuðu bókina að stefna þeim í London. Egill Örn Jóhannsson, framkvæmda­stjóri Forlagsins, segir að þessar tilraunir Samherja hafi verið fáránlegar og að um sé að ræða einstakt tilfelli í íslenskri útgáfu­sögu.

Skildi ekki heimsóknir Jóns Óttars
Skildi ekki heim­sóknir Jóns Óttars Egill Örn Jóhanns­son, fram­kvæmda­stjóri For­lags­ins, skildi ekki að hverju Jón Óttar Ólafsson kom óboð­inn á skrif­stof­una til hans í tvígang. Egill Örn sést hér fyrir utan skrif­stofu For­lags­ins á Bræðra­borg­ar­stíg í Reykja­vík. Mynd: Heiða Helgadóttir

Útgerðar­félagið Samherji hótaði útgefandanum Forlaginu málsókn ef bók sem fyrir­tækið gaf út um Namibíu­málið yrði ekki innkölluð frá sölu­aðilum. Þetta segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmda­stjóri Forlagsins, í viðtali við Stundina. Málsóknin átti að vera í London þar sem afar kostnaðar­samt er að ráða sér lögmann og benti starfs­maður Samherja sérstak­lega á þetta atriði í tölvu­pósti til Egils í desember 2019.  

„Við höfum aldrei fengið neitt þessu líkt: Þetta er alveg ein­stakt“
Egill Örn Jóhanns­son. fram­kvæmda­stjóri For­lags­ins

Forlagið hefur aldrei áður fengið sambærilegar hótanir: „Við höfum fengið einhverja tölvu­pósta frá einstaklingum úti í bæ sem mislíkar eitthvað sem stendur í einhverjum bókum eða mislíkar höfundur eða eitthvað. En nei, nei, nei, við höfum aldrei fengið neitt þessu líkt: Þetta er alveg einstakt,“ segir Egill.  

Bókin sem Samherji vildi láta innkalla heitir Ekkert að fela: Á slóð …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Rikisstórnin er í eignasafninu þeirra þannig að þetta er í fínu lagi.
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Gott hjá þér Egill minn.
    1
  • Kári Jónsson skrifaði
    Sjálfstæðisflokkurinn stendur dyggan vörð um fyrirtækið Samherja/starfsmenn og sakborningana í þessu Namíbíu-svindl máli, samstarfsflokkarnir xV og xB sitja þegjandi undir þessum vinnubrögðum xD-fólksins.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin í 1001 nótt

FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

„Þögn íslenskra stjórn­valda áberandi“

Í lok október fór fram umræða á Alþingi um rannsókn Samherja­málsins í Namibíu­málinu og orðspori Íslands þar sem stór orð féllu. Frum­mælandinn, Þórhildur Sunnar Ævars­dóttir, taldi að fá þyrfti svör við því hvort dráttur á rannsókn málsins á Íslandi væri eðlilegur, hvort yfirvöld á Íslandi tækju málið alvarlega og hvort rannsóknar­stofnanir á Íslandi væru nægilega vel fjár­magnaðar.
ÚttektSamherjaskjölin í 1001 nótt

Kaupa fólk utan fjöl­skyldunnar út í milljarða viðskiptum

Samherja­fjölskyldan hefur á undan­förnum mánuðum keypt eignar­hluti minni hluthafa í útgerðinni og á að heita má tíunda hvern fisk í land­helginni. Börn Þorsteins Más Baldvins­sonar og Kristjáns Vilhelms­sonar fara nú nær ein með eignar­hluti í félaginu fyrir utan litla hluti þeirra tveggja. Milljarða viðskipti hafa svo átt sér stað á milli fjölskyldu­fyrir­tækjanna í flóknu neti útgerð­ar­innar.
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Samherji sagður hafa boðið milljarða króna til að ljúka málum í Namibíu

Samherji hefur boðið að gefa eftir yfir 2 milljarða króna sem hald­lagðar voru í Namibíu, sem skaða­bætur til namibíska ríkisins í skiptum fyrir mála­lyktir. Namibísk yfirvöld tóku heldur fálega í tilboðið samkvæmt heimildum Stundarinnar. Lögmaður Wikborg Rein, sem starfar fyrir Samherja, stað­festir viðræður en segir tilboðið eingöngu hluta af einka­rétt­ar­legri deilu Samherja við yfirvöld, því sé ekki um að ræða viður­kenn­ingu á sekt í sakamáli.
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Rannsókn Samherja­málsins lokið í Namibíu og réttarhöld hefjast brátt

Werner Menges, blaða­maður The Namibian í Namibíu, segir að yfirvöld í Namibíu hafi lokið rannsókn Samherja­málsins. Tekist er á um meint vanhæfi dómarans í málinu, Kobus Muller, vegna ummæla sem hann hefur látið falla um málið. Hann segir afar ólíklegt að réttað verði yfir starfs­mönnum Samherja eða fyrir­tækjum útgerð­ar­innar í Namibíu þar sem Ísland framselji ekki Íslendinga til Namibíu.

Mest lesið undanfarið ár