„Alþýðusambandið hefur engin völd“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son gæti nú verið for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands en valdi að draga fram­boð sitt til baka. Hann segir það vera vegna orð­ræðu um sig sem eigi þátt í morð­hótun sem honum barst í síð­ustu kjara­samn­ings­á­tökum. Forysta í Alþýðu­sam­band­inu var ekki þess virði, enda skipti sam­bandið engu nema með stóru félög­unum.

„Alþýðusambandið hefur engin völd“

Það deilir eng­inn um að Ragnar Þór Ing­ólfs­son hafi haft for­seta­stól Alþýðu­sam­bands Íslands, stærstu fjölda­hreyf­ingar lands­ins, í hendi sér og að hans helstu banda­menn hefðu að öllum lík­indum svifið inn sam­hliða honum. En það er ekki raunin. Af hverju ekki?

„Bara val. Þetta snýst allt um val. Aug­ljós­lega lít ég ekki á það þannig að þetta hafi verið eitt­hvað í hendi, þetta átti eftir að fara í gegnum lýð­ræð­is­lega ferla innan ASÍ,“ segir Ragnar Þór, sem full­yrðir að ákvörð­unin hafi verið tekin morg­un­inn sem þing ASÍ hófst, þar sem hann drakk morg­un­kaffið með kon­unni sinni, Guð­björgu Magn­ús­dóttur. Þá hafi hann fengið sent skjá­skot af stöðu­upp­færslu ann­ars verka­lýðs­leið­toga, Halldóru Sveins­dóttur, for­manns Bárunnar á Selfossi, sem var og er and­stæð­ingur Ragnars innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar.

„Ég vildi ekki trúa því að þetta væri botn­laust hatur í garð okkar, eitt­hvað sem er bara óút­skýrt, og á sér kannski lengri sögu, frá tíð Gylfa, …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GE
    Guðmundur Einarsson skrifaði
    Málefnalegur eins og alltaf. Svo sammála, um að ekkert annað væri hægt, eins og staðan var.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár