„Alþýðusambandið hefur engin völd“

Ragnar Þór Ingólfsson gæti nú verið forseti Alþýðu­sambands Íslands en valdi að draga framboð sitt til baka. Hann segir það vera vegna orðræðu um sig sem eigi þátt í morðhótun sem honum barst í síðustu kjara­samnings­átökum. Forysta í Alþýðu­sambandinu var ekki þess virði, enda skipti sambandið engu nema með stóru félögunum.

Það deilir enginn um að Ragnar Þór Ingólfsson hafi haft forseta­stól Alþýðu­sambands Íslands, stærstu fjölda­hreyfingar landsins, í hendi sér og að hans helstu bandamenn hefðu að öllum líkindum svifið inn samhliða honum. En það er ekki raunin. Af hverju ekki?

„Bara val. Þetta snýst allt um val. Augljós­lega lít ég ekki á það þannig að þetta hafi verið eitthvað í hendi, þetta átti eftir að fara í gegnum lýðræðis­lega ferla innan ASÍ,“ segir Ragnar Þór, sem fullyrðir að ákvörðunin hafi verið tekin morguninn sem þing ASÍ hófst, þar sem hann drakk morgun­kaffið með konunni sinni, Guðbjörgu Magnúsdóttur. Þá hafi hann fengið sent skjáskot af stöðu­uppfærslu annars verkalýðs­leiðtoga, Halldóru Sveins­dóttur, formanns Bárunnar á Selfossi, sem var og er andstæðingur Ragnars innan verkalýðs­hreyfingarinnar.

„Ég vildi ekki trúa því að þetta væri botnlaust hatur í garð okkar, eitthvað sem er bara óútskýrt, og á sér kannski lengri sögu, frá tíð Gylfa, …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GE
    Guðmundur Einarsson skrifaði
    Málefnalegur eins og alltaf. Svo sammála, um að ekkert annað væri hægt, eins og staðan var.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár