Rússar á Íslandi gefa Pútín flugmiða til Haag í afmælisgjöf

Rússar mót­mæltu fyrir framan sendi­ráð Rúss­lands í til­efni af sjö­tugs­af­mæli Vla­dimírs Pútín. Vilja þeir senda hann til Haag þar sem hann svari fyrir glæpi sína fyrir Alþjóða saka­mála­dóm­stólnum. Flug­núm­erið á tákn­rænum flug­miða for­set­ans er 666.

Óska Pútín óhamingjusams lífs í fangelsi Hópur Rússa á Íslandi gaf Pútín Rússlandsforseta táknræna afmælisgjöf í dag, flugmiða aðra leið til Haag þar sem Alþjóða sakamáladómstóllinn er til húsa.

Hópur Rússa sem búsettir eru á Íslandi kom saman í hádeg­inu í dag við sendi­ráð Rúss­lands í Garða­stræti. Vildi hóp­ur­inn koma afmæl­is­gjöf til Valdimírs Pútín Rúss­lands­for­seta til skila en hann er sjö­tugur í dag. Afmæl­is­gjöfin var tákn­ræn ávísun á flug­miða fyrir for­set­ann til Haag í Hollandi, þar sem alþjóð­legi saka­mála­dóm­stóll­inn er stað­settur.

Á ávís­un­inni segir: „Til ham­ingju með afmælið herra for­seti. Til Vladimír Pútín frá Rússum, í til­efni allra þeirra glæpa sem hann hefur framið gegn úkra­ínsku þjóð­inni og gegn þegnum í eigin landi. Við óskum þér langs og óham­ingju­sams lífs í fang­elsi.“

Á flug­mið­anum er nafn Pútíns til­greint og flug­tím­inn sagður vera klukkan 12.35 í dag. Samkvæmt mið­anum er Pútín ætlað sæti 1A á for­setaf­ar­rými í flugi HUI 666. Talan 666 er í sögu­legu sam­hengi alla jafna sögð vera tala djöf­uls­ins.

„Við óskum þér langs og óham­ingju­sams lífs í fang­elsi“
Kveðja Rússa á Íslandi í til­efni afmælis Pútíns.

Enginn sendi­ráðs­starfs­maður kom til að veita afmæl­is­gjöf Pútíns mót­töku og brugðu mót­mæl­endur á það ráð að skila henni í póst­kassa sendi­ráðs­ins. Mót­mæl­endur veif­uðu hvít­bláum fána sem er tákn rúss­nesks and­ófs­fólks gegn inn­rás rúss­neskra stjórn­valda í Úkraínu. Ástæðan fyrir því að ekki er rauður litur í fán­anum, eins og á hefð­bundnum fána Rúss­lands, er sú að með því að vill and­ófs­fólk fjar­lægja sig frá ofbeldi og blóði.

Utanríkisráðuneytið segir Pútín bera alla ábyrgð

Alþjóð­legi saka­mála­dóm­stóll­inn opn­aði fyrir rann­sóknir á stríðs­glæpum í Úkraínu 2. mars síð­ast­lið­inn, tæpri viku eftir inn­rás Rússa í landið. Þá þegar hafði dóm­stól­inn fengið til­vís­anir frá 39 löndum, þar á meðal Íslandi, um að rann­saka þyrfti mögu­lega stríðs­glæpi í land­inu.

Innrás Rússa í Úkraínu hefur sætt gríð­ar­lega harðri gagn­rýni og hefur hún auk­ist hægt og bít­andi innan Rúss­lands eftir því sem á stríðið hefur liðið. Sú gagn­rýni hefur orðið enn ljós­ari frá því að Pútín til­kynnti herkvaðn­ingu í Rúss­landi 21. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Rússar hafa farið hall­oka gegn Úkra­ínu­mönnum víða í bar­dögum síð­ustu vikur, einkum í Kharkív-hér­aði, sem enn hefur aukið á gagn­rýn­ina heima fyrir. Þá hefur alþjóða­sam­fé­lagið lýst því yfir að atkvæða­greiðslur sem fram fóru í fjórum hér­uðum í Úkraínu, Donetsk, Luhansk, Zaporizhizia og Kherson, séu marklausar, brjóti gegn alþjóða­lögum og að inn­limun hér­að­anna í Rússland sé ólög­leg og verði ekki við­ur­kennd.

Utan­rík­is­ráðu­neyti Íslands kall­aði sendi­herra Rúss­lands hér á landi, Mikhaíl Noskov, á sinn fund 3. októ­ber síð­ast­lið­inn þar sem for­dæm­ing Íslands á til­raunum Rúss­lands til að inn­lima úkra­ínsk lands­svæði var áréttuð. Sú fram­ganga, auk óábyrgra hót­ana um beit­ingu kjarna­vopna væri óásætt­an­leg. Pútín bæri alla ábyrgð á hinu grimm­lega árás­ar­stríði og það væri undir honum komið að binda á það enda. Það var í fimmta sinn sem sendi­herr­anum er stefnt í utan­rík­is­ráðu­neytið síðan inn­rásin var gerð í byrjun árs. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár