981. spurningaþraut: Gleðilegt ár!

981. spurningaþraut: Gleðilegt ár!

Gleði­legt ár, kæru vinir! Hér er fyrri auka­spurn­ing á nýju ári:

1. jan­úar árið 2000 var frum­sýnd ný íslensk kvik­mynd og skjá­skotið hér að ofan er af aug­lýs­ingaplakati mynd­ar­innar. Hvaða mynd er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver sendi frá sér lagið Læda slæda?

2.  Þann 1. jan­úar árið 1993 var ríki einu í Evrópu skipt upp í tvennt og ólíkt því sem þá gerð­ist á Balkanskaga, þá fór allt frið­sam­lega fram. Hvað hétu ríkin tvö sem þá urðu til?

3.  Hún er lög­fræð­ingur sem leysir erfið saka­mál. Hún hefur — í orði kveðnu — skrifað sjálf margar bækur um ævin­týri sína og gerðir hafa verið sjón­varps­þættir um glímu hennar við glæpa­hyskið. Í raun­inni er hún skáld­sagna­per­sóna en eng­inn veit hver höf­und­ur­inn er. Hvað heitir hún?

4.  Persónan er leikin af Heiðu Reed í fyrr­nefndum sjón­varps­s­er­íum, en hún lék eitt af aðal­hlut­verk­unum í breskri seríu á árunum 2015-2019 sem fjöll­uðu um karl einn á herra­garði á Englandi um 1800. Hvað hét þessi sería sem Heiða lék í?

5.  Greifi nokkur fædd­ist 1. jan­úar 1967. Hann vinnur nú í sjón­varp­inu — og útvarp­inu reyndar líka — og tekur þátt í að bera hróður íslenskrar tón­listar út um víða ver­öld. Hvað heitir hann?

6.  Í Tour de France hjólareiða­keppn­inni er fremsti maður ævin­lega í treyju með ákveðnum lit. Hvaða lit?

7.  Sér­stakri fræ­geymslu hefur verið komið upp á afskekktum stað til þess að menn hafi aðgang að fræjum nytja­jurta ef sér­stakar ham­farir útrýma jurt­unum á stórum svæðum. Hvar er þessi fræ­geymslan?

8.  Þann 1. jan­úar 1998 komust þeir Haraldur Örn Ólafsson, Ólafur Örn Har­alds­son og Ingþór Bjarna­son ... hvert?

9.  Árið 1994 hafn­aði þjóð nokkur í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu aðild að Evr­ópu­sam­band­inu og það reyndar í annað sitt. Hvaða þjóð var þetta?

10.  Þrjár aðrar þjóðir sam­þykktu hins vegar ESB aðild í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslum sama ár og urðu full­gildir með­limir að ESB 1. jan­úar 1995. Hvaða þrjár þjóðir voru það? Til að fá stig þarf að nefna tvær rétt en ef þið hafið allar þrjár, þá fáiði sér­stakt 1. jan­úar stig. 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Íslenskur mynd­list­ar­maður fædd­ist 1. jan­úar 1961 en lést langt fyrir aldur fram 2011. Hér að neðan er nokkuð dæmi­gerð mynd eftir hann. Hvað hét hann?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Prins Póló.

2.  Tékkland og Slóvakía.

3.  Stella Blóm­kvist.

4.  Poldark.

5.  Felix Bergsson.

6.  Gulum.

7.  Á Sval­barða.

8.  Á suð­ur­pól­inn.

9.  Norðmenn.

10.  Þjóð­irnar þrjár voru Svíar, Finnar og Aust­ur­rík­is­menn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Kvik­myndin er Englar alheims­ins.

Mynd­list­ar­mað­ur­inn Georg Guðni.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár