980. spurningaþraut: Þau hefðu orðið 100 ára 2022, ef þau væru ekki öll dáin

Þema­þrautin þennan síð­asta árs­ins 2022 snýst um þau sem fædd­ust fyrir einni öld. Nema auka­spurn­ing­arnar snú­ast um atburði árs­ins 1922 á Íslandi.

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá merki­legt fyr­ir­bæri sem fram­kvæmdir hófust við 1922. Hvað er það?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver er þessi karl sem fædd­ist 27. maí 1922 (og var víst ekki mikið fyrir blóð í raun og veru)?

***

2.  Þessi fædd­ist 21. jan­úar 1922 og varð frægur fyrir leik í sjón­varps­s­eríu. Hvað hét hann?

***

3.  Þessi söng- og leik­kona fædd­ist 10. júní 1922 en and­að­ist langt fyrir aldur fram 1969, enda fór hún víst ekki vel með sig. Hún hét ... hvað?

***

4.  Þessi rit­höf­undur fædd­ist 12. mars 1922 en lést sama ár og konan hér að ofan, 1969, enda fór hann heldur ekki vel með sig. Hann var frægur fyrir að skrifa kunn­ustu skáld­sögu sína í miklum spreng á eina sam­fellda papp­írs­rúllu í rit­vél sinni, þótt á þess­ari mynd sé hann með venju­legt A4 blað í vél­inni. Hvað hét hann?

***

5.  Karlinn lengst til vinstri fædd­ist 1. mars 1922 en var myrtur árið 1995. Hvað hét hann?

 

***

6.  Þessi kvik­mynda­leik­stjóri (sá til hægri) fædd­ist 16. júlí 1922 en lést 2010. Hann hét ... hvað?

***

7.  Hvít­hærði tísku­hönn­uð­ur­inn á mynd­inni fædd­ist 2. júní 1922 á Ítalíu en bjó lengst af í Frakk­landi. Hann lést fyrir aðeins tveim árum, 98 ára. Hann þótti á sínum tíma fram­úr­stefnu­legur í formum og oftar en ekki lit­ríkur. Hann hét ... hvað?

***

8.  Þessi glað­lega leik- og söng­kona fædd­ist 3. apríl 1922. Það eru ekki nema þrjú ár síðan hún lést í hárri elli, en alltaf var hún jafn kát og glöð og hét ... hvað?

***

9.  Þessi rit­höf­undur fædd­ist 11. nóv­em­ber 1922 og kom einu sinni í heim­sókn til Íslands. Þá birt­ist þessi mynd af honum í Morg­un­blað­inu. Hann hét ... hvað?

***

10.  Þessi fædd­ist 26. nóv­em­ber 1922. Og hann hét ... hvað?

***

Svo er hér sér­stök auka­spurn­ing sem gefur sér­stakt 1922-stig!

Lista­mað­ur­inn á mynd­inni hér að neðan fædd­ist 5. mars 1922 en lést voveif­lega 1975. Hvað hét hann?

***

Og þá kemur hér seinni auka­spurn­ing:

Þessi mynd er til vitnis um merk­is­at­burð sem gerð­ist 1922. Hver var sá? Svarið þarf að vera nákvæmt.

***

Svör við aðal­spurn­ingum — og eft­ir­nöfn duga í öllum til­fellum:

1.  Christopher Lee.

2.  Telly Savalas.

3.  Judy Garland.

4.  Jack Kerouac.

5.  Yitzhak Rabin.

6.  Blake Edwards

7.  Pierre Cardin.

8.  Doris Day.

9.  Kurt Vonnegut.

10.  Charles M. Schulz.

***

Og svarið við sér­stöku auka­spurn­ing­unni er:

Pasolini, ítalskur kvik­mynda­leik­stjóri.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Flóa­á­veitan.

Neðri myndin sýnir fyrstu kon­una á þingi, en Ingi­björg H. Bjarna­son var kosin í kosn­ingum sum­arið 1922.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár