Vilja fá allt ofbeldið viðurkennt

Konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og Lauga­landi eru ósáttar við þá nið­ur­stöðu að ekki séu vís­bend­ingar um að þar hafi verið beitt alvar­legu eða kerf­is­bundnu lík­am­legu ofbeldi. Vitn­is­burður á þriðja tug kvenna um að svo hafi verið sé að engu hafður í skýrslu um rekstur með­ferð­ar­heim­il­is­ins.

Vilja fá allt ofbeldið viðurkennt
Fjöldi frá­sagna af ofbeldi Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar kemur fram fjöldi frá­sagna af því að Ingj­aldur Arn­þórs­son, fyrr­ver­andi for­stöðu­maður með­ferð­ar­heim­il­is­ins, hafi beitt lík­am­legu ofbeldi.

Mikil óánægja ríkir meðal þeirra kvenna sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti, síðar Lauga­landi, um þá nið­ur­stöðu að á heim­il­inu hafi ekki verið beitt alvar­legu eða kerf­is­bundnu lík­am­legu ofbeldi. Yfir þriðj­ungur þeirra sem lýstu upp­lifun sinni af vist­un­inni á heim­il­inu greindu frá því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi og tæpur þriðj­ungur lýsti því að hafa orðið vitni að slíku ofbeldi.

Alls lýstu 12 af þeim 36 fyrr­ver­andi vist­börnum sem komu í við­tal við rann­sókn­ar­nefnd þá sem kann­aði hvort beitt hefði verið harð­ræði eða ofbeldi á með­ferð­ar­heim­il­inu því að þau hefðu verið beitt lík­am­legu ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni sem var for­stöðu­maður á tíma­bil­inu 1997 til 2007, þeim tíma sem könn­unin tók til. Sömu­leiðis lýstu tvær stúlkur því að þær hefðu verið beittar lík­am­legu ofbeldi af Áslaugu Brynjars­dóttur, for­stöðu­konu heim­il­is­ins. Þá lýstu ell­efu manns því að hafa orðið vitni að því að lík­am­legu ofbeldi væri beitt.

„Ekki …
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár