Hærri skattur á vistvæna bíla er helsta breytingin í nýjum fjárlögum stjórnarinnar

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttir sagð­ist „setja lofts­lags­mál í for­gang“ en mesta breyt­ingin á skatt­heimtu í nýju fjár­laga­frum­varpi er skatta­hækkun á vist­væna bíla. Á þessu ári hafa verið fluttir inn örlítið fleiri dísil­bílar en raf­bílar. Framundan eru veru­legar skatta­hækk­anir á raf­bíla.

Hærri skattur á vistvæna bíla er helsta breytingin í nýjum fjárlögum stjórnarinnar
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttir kynnti nýjan stjórn­ar­sátt­mála í nóv­em­ber í fyrra. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Við ætlum að setja lofts­lags­mál í for­gang,“ sagði í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur í nóv­em­ber á síð­asta ári. 

Nú þegar Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra sömu rík­is­stjórnar, hefur kynnt ný fjár­lög er helsta skatta­hækk­unin lögð á svo­kall­aða vist­væna bíla, þeirra sem hvorki losa koltví­oxíð né krefj­ast inn­flutts elds­neytis. Eitt helsta mark­mið fjár­lag­anna er að vinna gegn verð­bólgu, en skatta­hækk­an­irnar auka hins vegar verð­bólgu til skamms tíma.

Skatt­lagn­ing vist­vænna bíla er langá­hrifa­mesta breyt­ingin í fjár­laga­frum­varp­inu ef frá er talin hefð­bundin hækkun ýmissa gjalda sem fylgja verð­bólgu.

Á lista sem fylgir fjár­laga­frum­varp­inu yfir „tekju­á­hrif helstu skatt­breyt­inga á rík­is­sjóð“ eru tvær efstu þeirra „breyt­ingar á vöru­gjaldi á öku­tæki“, 2,7 millj­arðar í auknar tekjur, og „breyt­ingar á bif­reiða­gjaldi“ sem færa 2,2 millj­arða króna í auknar tekjur. 

Minni skatttekjur vegna orkuskipta

Rík­is­stjórnin boðar í fjár­laga­frum­varp­inu að hún taki nú „fyrsta skrefið“ í auk­inni skatt­heimtu á vist­væna bíla. Því er ráð­gert að skatta­hækk­unin á hrein­orku­bíla nú sé aðeins upp­hafið. Ástæðan er að tekjur rík­is­ins af elds­neyti, sem hlut­fall af vergri lands­fram­leiðslu, hafa lækkað og eru nú rétt um 1,2% en voru upp undir 1,8% fyrir ára­tug. Skatta­hækkun á raf­bíla er „stærsta verk­efnið á tekju­hlið rík­is­sjóðs á kom­andi árum“, segir í kynn­ingu frum­varps­ins. „Samhliða miklum árangri í orku­skiptum fólks­bíla­flot­ans og sífellt spar­neytn­ari bílum í umferð hafa tekjur rík­is­ins af öku­tækjum og elds­neyti dreg­ist veru­lega saman. Við því þarf að bregð­ast með nýjum lausnum, svo áfram megi standa undir öfl­ugu við­haldi og upp­bygg­ingu í sam­göngu­kerf­inu,“ segir þar.

Helstu breyt­ingar sam­kvæmt frum­varp­inuHér sjást helstu breyt­ing­arnar sem afleið­ing af fjár­lögum 2023 fyrir rík­is­sjóð, að með­tal­inni tíma­bund­inni fram­leng­ingu á virð­is­auka­skatts­af­slætti af raf­bílum.

Aðferðin nú er tví­þætt.

Sú fyrri felur í sér að verð á raf­bílum muni hækka um 5% . Samhliða verð­hækk­un­inni hækkar vísi­tala neyslu­verðs um 0,2%, sem þýðir að verð­bólga eykst um 0,2% og höf­uð­stóll verð­tryggðra hús­næð­is­lána hækkar um sama hlut­fall.

Við þessa breyt­ingu verður lagt á 5% lág­marks vöru­gjald á alla bíla, sem þýðir með öðrum orðum að inn­flutn­ings­gjöld á raf­magns­bíla hækka sem nemur því, þar sem þeir hafa ekki borið vöru­gjöld vegna við­leitni til að fjölga hrein­orku­bílum og lækka útblástur efna sem valda lofts­lags­breyt­ingum. Fjár­mála­ráðu­neytið greinir jafn­framt frá því að lík­legt sé að not­aðir bílar hækki í verði, rétt eins og nýir. „Gera má ráð fyrir að útsölu­verð nýrra fólks­bíla geti hækkað um allt að 5% og leiða má að því líkum að verð­mæti þeirra fólks­bíla sem fyrir eru í land­inu muni auk þess hækka vegna hærra end­ur­sölu­verðs,“ segir í fjár­laga­frum­varp­inu.

Annar liður í hækkun vöru­gjalda er að fækka þeim bílum sem fá íviln­anir með breyttum við­miðum um losun á CO2.  Vöru­gjöld hafa byggt á því hversu mikið koltví­oxíð bíll­inn losar við notkun. Los­un­ar­mörkin, sem marka gjaldið, verða lækkuð svo fleiri bílar taki á sig gjaldið. 

Seinni leiðin til þess að hækka skatta á bíla nær yfir allar teg­undir þeirra. Það er gert í gegnum bif­reiða­gjöld.

Frekari hækkanir á rafbíla framundan

Samkvæmt kynn­ingu Bjarna Bene­dikts­sonar í morgun má gera ráð fyrir að í fyrsta skref­inu hækki bif­reiða­gjöld á Teslu raf­bíl úr 20 þús­und krónum í 30 þús­und krónur á ári, en vöru­gjöld og virð­is­auka­skattur hækki um 300 þús­und kró­unr fyrir inn­flutta raf­magns­bíla. Hækkun á bif­reiða­gjöldum snertir einnig jarð­efna­elds­neyt­is­bíla og tvinn­bíla. Samtals er um 2,2 millj­arða króna í auka­sköttum að ræða með hækk­uðum bif­reiða­gjöldum og 2,7 millj­arða króna vegna hækk­unar á inn­flutn­ings­gjöldum á raf­bíla.

Enn verður við lýði lækk­aður virð­is­auka­skattur af hreinum raf­bílum, allt að rúm­lega 1,5 milljón króna fyrir hvern bíl, allt þar til 20 þús­und raf­bílar hafa verið seldir. Frá því íviln­unin var sett á hafa um 15 þús­und raf­bílar verið fluttir inn. Hins vegar eru 20 þús­und bílar aðeins brot af bíla­flota Íslend­inga.

Jarð­efna­elds­neyti fyr­ir­ferða­mestAf 332 þús­und bif­reiðum á land­inu eru aðeins tæp­lega 15 þús­und raf­bílar, eða sem nemur 4,4%.

Rafmagnsbílar lítill hluti bílaflotans

Þrátt fyrir að skatta­hækk­anir á raf­bíla byggi á því að hrein­orku­bílum hafi fjölgað eru raf­bílar aðeins lítið brot af bif­reiða­flota Íslend­inga. Jafnvel þegar tengilt­vinn­bílar og hybrid-bílar eru teknir með í reikn­ing­inn er restin, 86% bíla á Íslandi, ennþá alfarið knúnir af jarð­efna­elds­neyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjárlagafrumvarp 2023

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár