Þrettán ræðumenn lýst nasískum skoðunum - Sigmundur Davíð svarar ekki um þátttöku sína

Meiri­hluti þeirra sem deila sviði með Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni á ráð­stefnu í Svíþjóð hafa starfað með hægriöfga­sam­tökum, sumir í flokki sem vill senda milljón inn­flytj­endur úr landi. For­sæt­is­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi svarar ekki spurn­ingum.

Þrettán ræðumenn lýst nasískum skoðunum - Sigmundur Davíð svarar ekki um þátttöku sína
Af síðu bóka­messunnar Sig­mundur Davíð er kynntur til leiks ásamt tveimur fyrr­ver­andi þing­mönnum þjóð­ern­is­flokks­ins Sví­þjóða­demókrata sem tengj­ast nú fram­boði yst á hægri vængnum, Alt­ernativ för Sverige.

Af þeim 95 ræðu­mönnum sem koma fram á Sænsku bóka- og fjöl­miðla­mess­unni til­heyra 57 hægriöfga­hópum, -stjórn­mála­flokkum eða starfa hjá miðlum sem dreifa slíkum áróðri. Fimmt­ungur ræðu­manna hefur starfað með hægriöfga­flokknum Alt­ernativ för Sverige og þrettán af ræðu­mönn­unum hafa lofað Nas­ista­flokk Hitlers eða afneitað Hel­för­inni.

Þetta hefur rann­sókn Stund­ar­innar og sænska mið­ils­ins Expo leitt í ljós.

Stundin og Expo hafa sagt frá þátt­töku Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í Sænsku bóka- og fjöl­miðla­mess­unni sem fram fer í Stokk­hólmi 20. ágúst. Sig­mundur Davíð hefur verið aug­lýstur sem ræðu­maður á ráð­stefn­unni sem opin­ber­lega er kynnt sem vett­vangur umræðna um tján­ing­ar­frelsi, en er í raun skipu­lögð af sam­tökum sem hafa það að mark­miði að tengja saman aðila með ólíkar áherslur innan þjóð­ern­isöfga­hreyf­ingar Sví­þjóðar og efla hana.

Sig­mundur Davíð hefur ekki svarað sím­tölum eða spurn­ingum Stund­ar­innar í tölvu­pósti um málið.

Tengsl við sænskan hægriöfgaflokk

Ráð­stefnan er ein af mörgum við­burðum og félögum sem notuð eru sem yfir­varp fyrir sam­tökin Nät­verket, sem stýrt er af manni sem á sér langa sögu innan hægriöfga­hreyf­inga Sví­þjóðar, Tor Paulsson. Hefur Nät­verket tengst bæði net­miðlum sem breiða út kyn­þátta­hatur og flokknum Alt­ernativ för Sverige. Flokk­ur­inn byggir á fyr­ir­mynd frá Þýska­landi, hægriöfga­flokknum Alt­ernativ für Deutschland, en sænski flokk­ur­inn hefur það efst á stefnu­skrá sinni að senda eina milljón inn­flytj­enda úr landi. Flokk­ur­inn hefur ekki náð árangri í þing­kosn­ingum, en á þrjú sæti á sænska kirkju­þing­inu.

Athugun hefur leitt í ljós að 19 af 95 aug­lýstum ræðu­mönnum við ráð­stefn­una hafa tengsl við Alt­ernativ för Sverige, annað hvort sem fram­bjóð­endur eða sjálf­boða­liðar. Þar á meðal eru fyrr­ver­andi þing­menn sem skipt hafa yfir í flokk­inn úr þjóð­ern­is­flokknum Sví­þjóð­ar­demókrötum, þeir Olle Felten og Jeff Ahl. Annar ræðu­maður er þing­mað­ur­inn Roger Richthoff, sem þurfti nýverið að yfir­gefa Sví­þjóða­demókrata eftir að hafa dreift mynd­bandi á sam­fé­lags­miðlum þar sem Rússum er þakkað fyrir að hafa ráð­ist inn í Úkraínu. Í vor til­kynnti hann að hann mundi ganga til liðs við Alt­ernativ för Sverige, en dróg það síðar til baka og sagð­ist enn vera að íhuga málið.

Umfram það eru 57 af ræðu­mönnum ráð­stefn­unnar svo vitað sé, eða 60 pró­sent þeirra, fólk sem starfar innan hægriöfga­hópa eða fyrir fjöl­miðla sem boða sjón­ar­mið frá ýtrasta hægri væng. Hluti þeirra hefur tekið þátt í starf­semi nýnas­ista­hópa.

Þrettán af ræðu­mönn­unum sem koma fram á ráð­stefn­unni hafa deilt sjón­ar­miðum sem kenna má við nas­isma. Þar á meðal er fólk sem heldur því opin­ber­lega fram að Helförin, fjöldamorð nas­ista á gyð­ingum í Seinni heims­styrj­öld­inni, hafi aldrei átt sér stað. Aðrir þeirra hafa lofað Nas­ista­flokk Þýska­lands stríðs­ár­anna eða for­ingja hans, Adolf Hitler.

Einn ræðu­manna, Jan Emanuel Johans­son, hætti við að koma fram á ráð­stefn­unni eftir að dag­blaðið Expressen hafði sam­band við hann í júlí og benti honum á bak­grunn ræðu­manna og skipu­leggj­enda.

Útvarp Saga fagnar þátttöku Sigmundar

„Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er eitt af fjöl­mörgum þekktum and­litum bar­áttu­fólks fyrir lýð­ræði og mál­frelsi,“ segir í frétt á vef Útvarps Sögu um þátt­töku Sig­mundar Davíðs í bóka­mess­unni í gær. „Það er bæði ánægju­legt og mik­ill fengur fyrir Sænsku bóka­sýn­ing­una, að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son verður einn af ræðu­mönnum sýn­ing­ar­innar.“

„Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er eitt af fjöl­mörgum þekktum and­litum bar­áttu­fólks fyrir lýð­ræði og mál­frelsi“

Samkvæmt frétt­inni verður full­trúi frá Útvarpi Sögu á staðnum 20. ágúst, en mið­ill­inn hefur áður heim­sótt bóka­mess­una. Þá fjall­aði Gústaf Skúlason um heim­ild­ar­mynd sem þar var sýnd. Leik­stjóri hennar, Jonas Nilsson, verður einn af ræðu­mönn­unum ásamt Sigmundi Davíð, en Nilsson starf­aði áður með sænska armi Norrænu mót­stöðu­hreyf­ing­ar­innar, nýnas­ista­hópi sem kom til Íslands í sept­em­ber 2019 og dreifði áróðri á Lækj­ar­torgi.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár