Snýst ekki um trú að hafa þekkingu á Biblíunni

Arnaldur Sig­urðs­son, bóka­vörður á Lands­bóka­safn­inu, telur klass­ískar bók­menntir, einkum Biblíuna, grund­völl að læsi.

Snýst ekki um trú að hafa þekkingu á Biblíunni

„Það er eitt sem er svo­lítið mis­skilið. Þetta hefur ekk­ert með trú að gera, en yngra fólk hefur sára­litla þekk­ingu á Bibl­í­unni og skilur ekki til­vís­anir í Biblíuna. Það hafði það fyrir þó nokkrum ára­tugum en þetta er smátt og smátt alveg að hverfa. Ég á við þessar dæmisögur og til­vís­anir, sem úir og grúir af í öllum bók­menntum. Ég held að Star Wars komi ekki í stað­inn sem leið­ar­vísir eða sem skírskotun.

Þegar þú ert að reyna að draga eitt­hvað saman, ein­hver atvik eða ein­hverja per­sónu, þá vísar þú í klass­íska menn­ingu eða, sem dæmi, í Íslend­inga­sög­urnar. Það þarf að vera sam­eig­in­legur þekk­ing­ar­grunnur sem menn hafa til þess að geta skilið slíkar til­vís­anir.

Henrik Ibsen hafði ekki verið trú­aður maður, en hann var alltaf með Biblíuna á skrif­borð­inu, norsku Biblíuna, bæði út af tungu­tak­inu og því sem var í henni: þessar lýs­ingar á mann­inum og mann­legum aðstæðum. …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Tjörvi Schiöth skrifaði
    Ég hef nú lesið alla biblíuna frá upphafi til enda, guðspjöllin nokkrum sinnum og þekki innihald þeirra ágætlega. Sorrý, en ég er ekki viss um að margir nenni því. Þá er íslenska þýðingin alveg hörmuleg, ég nenni engan veginn að að lesa hana og ætlast síður til þess að skólabörn geri það. King James þýðingin frá 1611 er listaverk í sjálfu sér, svona eins og að lesa Shakespeare, og ef menn vilja sem nákvæmustu þýðingu á frumtextunum þá er New Revised Standard Version sú sem fræðimenn notast við. En á að kenna skólabörnum þetta, eða hvað?
    0
  • SO
    Sigurður Oddgeirsson skrifaði
    Þetta Biblíu-bann í skólum landsins, sem ýmis heittrúarsamtök komu á með aðstoð hugsunarlausra yfrvalda, er til skammar. Vonandi verður því aflýst sem fyrst.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár