Orkuveita Reykjavíkur greiðir 2,6 milljarða skuld vegna gamalla áhættufjárfestinga

Orku­veita Reykja­víkur gerði gjald­miðlask­skipta­samn­inga við Glitni banka árið 2008 sem deilt hefur verið um fyrir dómi. Þessir samn­ingar voru gerðir til þess að verja fyr­ir­tækið fyrir geng­is­breyt­ingum krón­unnar. Nú loks, 15 árum eftir að samn­ing­arnir voru gerðir, koma eft­ir­stöðvar samn­ing­anna til greiðslu eftir að Orku­veita Reykja­víkur tap­aði dóms­máli út af þeim. 2,6 millj­arðar króna fóru úr bókum Orku­veitu Reykja­víkur út af upp­greiðslu samn­ing­anna sam­kvæmt árs­hluta­upp­gjöri félags­ins nú í maí.

Orkuveita Reykjavíkur greiðir 2,6 milljarða skuld vegna gamalla áhættufjárfestinga
Tæplega 15 ára gamlar skuldir Orku­veita Reykja­víkur, sem Bjarni Bjarna­son stýrir sem for­stjóri, greiddi fyrr á árinu upp2.6 millj­arða skuld við þrotabú Glitnis vegna gjald­miðla­skipta­samn­inga frá hru­nár­inu 2008. Tekið skal fram að Bjarni var ekki for­stjóri OR árið 2008.

Orku­veita Reykja­víkur greiddi upp 2,6 millj­arða króna skuld við þrotabú Glitnis banka á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs. Um var að ræða skuld vegna gjald­miðla­samn­inga sem fyr­ir­tækið gerði við Glitni banka fyrir banka­hrunið árið 2008. Frá þessu er greint í árs­hluta­upp­gjöri Orku­veit­unnar sem birt var í lok maí. 

Orku­veita Reykja­víkur, sem er opin­bert fyr­ir­tæki í eigu þriggja sveit­ar­fé­laga, hafði deilt við þrotabú Glitnis um ára­bil vegna gjald­miðla­skipta­samn­ing­anna. Lands­réttur dæmdi þrota­búi Glitnis í vil í nóv­em­ber 2021 og í jan­úar ákvað Hæsti­réttur Íslands að hafna beiðni Orku­veit­unnar um áfrýj­un­ar­leyfi í mál­inu. Nið­ur­staðan varð sú að Orku­veitan greiddi þrota­búi Glitnis tæp­lega 2,6 millj­arða króna sem voru eft­ir­stöðv­arar samn­ings­ins en áður hafði félagið greitt Glitni 740 millj­ónir króna. Eigendur Orku­veit­unnar eru Reykja­vík­ur­borg, Borg­ar­byggð og Akra­nes­kaup­staður. 

Áhættusamir samningar sem tíðkuðust mjög fyrir hrunið

Gjald­miðla­skipta­samn­ingar eru samn­ingar þar sem aðilar samn­ings­ins veðja á það með hvaða hætti gengi gjald­mið­ils muni þró­ast á ákveðnu tíma­bili. Aðilar samn­ings­ins eru yfir­leitt ann­ars vegar ein­stak­lingar eða fyr­ir­tæki, eins og Orku­veita Reykja­víkur, og svo fjár­mála­fyr­ir­tæki. Slíkir samn­ingar eru skil­greindir sem áhættu­fjár­fest­ingar og fóru margir ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki flatt á gerð slíkra samn­inga á Íslandi á árunum fyrir hrunið 2008.

Talaði um eðli­legar geng­is­varnirBjörgólfur Thor Björg­ólfs­son tal­aði um það skömmu eftir hrunið að gjald­miðla­skipta­samn­ingar Samsonar á sínum tíma hefðu verið eðli­legar geng­is­varnir.

Íslenska krónan var um skeið mjög sterk gagn­vart öðrum gjald­miðlum, til dæmis Banda­ríkja­doll­arar, á árunum fram að 2007 en svo byrj­aði hún að veikj­ast og kol­féll í kringum hrunið um haustið og hélst veik um langt skeið þar á eftir. Þeir aðilar sem á þessum tíma höfðu veðjað á það með gerð gjald­miðla­skipta­samn­inga að íslenska krónan myndi áfram hald­ast sterk á þessum tíma gátu því tapað háum fjár­hæðum á því.

Á árunum fyrir hrunið voru einnig dæmi um það að fyr­ir­tæki veðj­uðu á geng­is­lækkun krón­unnar með gjald­miðla­skipta­samn­ingum á til­teknu tíma­bili en hún hafði auð­vitað verið sögu­lega sterk á þessum tíma. Þannig tap­aði Samson, móð­ur­fé­lag Lands­banka Íslands, sem var í eigu Björg­ólfs­feðga, til dæmis tæp­lega  15,6 millj­örðum króna á því að veðja á geng­is­lækkun íslensku krón­unnar árið 2007.  Vegna þess að gengi krón­unnar hækk­aði, þvert á mat Samsonar, tap­aði félagið og græddi ekki.

Eftir að fjöl­miðlar höfðu fjallað um þess við­skipti Samsonar steig Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, eig­andi Samsonar, fram í fjöl­miðlum og sagði að slíkir gjald­miðla­skipta­samn­ingar fælu ekki í sér stað stöðu­töku með eða gegn gjald­miðli heldur væru „eðli­legar geng­is­varnir“. 

Eitt er að ein­stak­lingar og einka­fjár­festar geri slíka áhættu­sama samn­inga og tapi mögu­lega háum fjár­hæðum á því og svo er annað með fyr­ir­tæki í opin­berri eigu. 

Greitt í ár

Í svari frá Orku­veitu Reykja­víkur kemur fram að fyr­ir­tækið hafi í gegnum árin verið með umfjall­anir um þetta deilu­mál við Glitni í árs­reikn­ingum og opin­berum gögnum félags­ins. 

Orku­veitan bendir til dæmis á eft­ir­far­andi skýr­ingu í árs­reikn­ingi félags­ins fyrir árið 2021.  „Þann 28. jan­úar 2022 synj­aði Hæsti­réttur Íslands Orku­veitu Reykja­víkur um áfrýj­un­ar­leyfi á nið­ur­stöðu Lands­réttar í mál­sókn þrota­bús Glitnis, vegna ágrein­ings um upp­gjör á gjald­miðla­skipta­samn­ingum sem gerðir voru skömmu fyrir efna­hags­hrunið 2008. Við þetta ber Orku­veitu Reykja­víkur að greiða þrota­bú­inu um 3,4 millj­arða króna sem eru færðir á meðal ann­arra skamm­tíma­skulda. Á fyrri árum hefur félagið gjald­fært 740 millj­ónir vegna máls­ins og í árs­lok 2021 voru eft­ir­stöðvar kröf­unnar færðar til gjalda.“

Félagið greindi einnig frá nið­ur­stöðu Hæsta­réttar Íslands þegar hún lá fyrir. 

Orku­veitan segir að það sé hins vegar ekki fyrr en nú, eftir að nið­ur­staða Lands­réttar og svo Hæsta­réttar Íslands um að taka málið ekki fyrir, sem fjár­mun­irnir hafi verið greiddir til Glitnis.  Orðrétt segir í svar­inu frá Orku­veitu Reykja­víkur: „Þetta er ekki með öðrum fjár­magns­kostn­aði heldur í sér­stakri línu í sjóð­streym­inu í árs­hluta­upp­gjör­inu síð­asta af því þetta er ein­skiptis útgjöld. Fjár­hæðin var sem sagt færð til gjalda í árs­reikn­ingi 2021 af því að þegar sá reikn­ingur var gerður lá nið­ur­staða Hæsta­réttar fyrir. Þetta kom ekki til greiðslu fyrr en 2022 og þess vegna eru eft­ir­stöðv­arnar í sjóð­streymi þar,“ segir í svari frá Orku­veitu Reykja­víkur. 

„Fram til árs­loka 2008 virt­ust nefnd­ar­menn í áhættu­nefnd trúa því að krónan myndi ná fyrri styrk eftir geng­is­fallið við gjald­þrot banka­kerf­is­ins“
Úr skýrslu um starf­semi Orku­veitu Reykja­víkur

Orkuveitan trúði á krónuna 

Í svar­inu  frá Orku­veitu Reykja­vikur kemur fram að eng­inn sem starfar í fjár­málum fyr­ir­tæk­is­ins í dag geti veitt upp­lýs­ingar um þessa gjald­miðla­skipta­samn­inga þar sem svo langt sé um liðið. Hins vegar hafi verið fjallað nokkuð um þessa samn­inga í skýrslu um starf­semi Orku­veit­unnar sem gefin var út árið 2012.  

Í þeirri skýrslu er meðal ann­ars fjallað um það að fyr­ir­tækið hafi tekið stöðu með krón­unni með gjald­miðla­skipta­samn­ingum árið 2006, þegar gengi hennar var í hæstu hæðum: „Árið 2006 tók fyr­ir­tækið stöðu með íslensku krón­unni með fram­virkum samn­ingum og hélt þeirri stöðu um nokk­urra mán­aða skeið. Eftir það voru ekki stórar stöður í gegnum afleiðu­samn­inga á gjald­miðla.“

Í fund­ar­gerðum áhættu­nefndar bank­ans frá mán­uðum fyrir hrun, sem greint var frá í skýrsl­unni, kemur fram að Orku­veitan hafi áfram trúað á íslensku krón­una árið 2008 og jafn­vel eftir banka­hrunið 2008 þrátt fyrir að gengi hennar hafi veikst veru­lega. „Fram til árs­loka 2008 virt­ust nefnd­ar­menn í áhættu­nefnd trúa því að krónan myndi ná fyrri styrk eftir geng­is­fallið við gjald­þrot banka­kerf­is­ins. Sú áhætta sem fólst í geng­is­veik­ingu krón­unnar var ekki varin. Orku­veitan tók stöðu með íslensku krón­unni.“

Í skýrsl­unni um Orku­veitu Reykja­víkur kemur fram að fyr­ir­tækið hafi fengið ráð­gjöf um áhættu­stýr­ingu frá fyr­ir­tæk­inu Ráðgjöf og Efna­hags­spár ehf: „Allt frá árinu 2004 fékk fjár­mála­svið, áhættu­stýr­ing­ar­svið, áhættu­nefnd og stjórn Orku­veit­unnar í hendur árs­fjórð­ungs­legar skýrslur frá fyr­ir­tæk­inu Ráðgjöf og Efna­hags­spár ehf. (R&E). Ráðgjöf og Efna­hags­spá rann síðar inn í fjár­fest­inga­bank­ann Askar Capital.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GG
    Gylfi Garðarsson skrifaði
    Þessi frásögn talar inn í kjarna þeirra hrópandi kerfisvillu Íslands sem birtist m.a. í stjórnarþráðum valdaelítu landsins inn í mikilvægustu efnahagsstjórntæki þjóðarinnar þar sem undirsátar í dýrustu jakkafötum og drögtum, skreyttum gráðum í lögfræði, MBA osfrv., ráðskast með almannafé í þágu elítunnar. Oft og iðulega með skelfilegri niðurstöðu fyrir allan almenning, sem fær skellinn í sitt veski.

    Skv. Hagstofunni voru íbúar í Rvk. 2021 >135.000
    Meðalfjölskyldustærð fyrir landið í heild er um 4 einstaklingar
    Miðað við þær tölur er kostnaður Reykvíkinga 2022 vegna þáverandi ráðgjafa og stjórnar OR að meðaltali:
    Pr. íbúa í Rvk: >19.000 kr.
    Pr. fjölskyldu í Rvk: > 75.000 kr.
    Einnig mætti skoða tap OR út frá fjölda kjósenda eða útsvarsgreiðenda.
    En alveg sama hvernig við reiknum þá munu notendur notendur þjónustu OR greiða þetta yfirgengilega rugl sem viðbótarálag á reikningum þjónustunnar næstu misserin. Án þess að það sé tilgreint þar!

    Með réttu ætti að telja upp alla þá einstaklinga sem komu að hinni arfaheimsku ákvörðun OR 2008 og rekja feril þeirra varðandi stjórnmálatengsl og aðra valdapósta. Eitt helsta einkenni fólks í þessum stöðum er linnulaus ásókn í að ráðskast með annarra manna fé (e: other peoples money; OPM). Í flestum tilfellum í eigin hagsmunaskyni, án þess að bera neina ábyrgð ef allt fer til fjandans, eins og hér er lýst. Reyndar má geta að nýlega bauð einn þeirra sem hér hafa verið nefndir sig fram til stjórnarkjörs í lífeyrissjóði en var hvorki kosinn í aðal- né varastjórn (mbl.is-22.5.2022) - (https://www.frjalsi.is/fleira/um-frjalsa/). Sjóðsfélagar sjálfir kusu stjórnina.
    0
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Er þetta ekki ná skilt Orkuveituhúsinu risarækjueldinu og kostnaður sem hlaust af Alfreð Þorsteinsini?
    0
  • Þór Saari skrifaði
    Hverjir voru stjórnendur og í stjórn OR á þessum tíma? Hverjir áttu Ráðgjöf og efnahagsspá? Þessar mikilvægu upplýsingar vantar í fréttina.
    3
    • Steinþór Grímsson skrifaði
      Yngvi Harðarson M.A. en það sem er svo skrítið er að fyrirtækið Ráðgjöf og efnahagsspár ehf. með kennitöluna 461210-1040 var líka til 2002 og 2005 þegar það með Yngvari og Sverri Sverrissyni Ph.D. sendu athugasemd á Efnahag- og viðskiptanefnd Alþingis 2003 og svo ráðlögðu Reykjavíkurborg og slökkviliðinu 2005. Þeir fengu sem sagt nýja kennitölu á sama nafn 2010?!
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár