Reykvísk skrifstofukona umlukin svartadauða

Auður Haralds rit­höf­undur segir að Guð sé algjör­lega aðgerð­ar­laus og þess vegna sé tit­ill bókar hennar sem var að koma út: Hvað er Drottinn að drolla? Sagan fjallar um reyk­víska skrif­stofu­konu í nútím­anum sem fer í tíma­ferða­lag alla leið aftur til árs­ins 1346 og lendir inni í miðjum svarta­dauða.

Maður hefur háttað með ýmsu um dag­ana en þetta er í fyrsta sinn sem ég tek rottur með í rúmið. Og þó. Eða þannig. Fer­fættar rottur skulum við hafa það.
 
Svona er Guðbjörg, skrif­stofu­kona í Reykja­vík nútím­ans að hugsa þegar hún leggst upp í rúm með bók um svarta­dauða. Hún les um jarð­hrær­ingar í Kína, rottuflótta og land­nám þeirra í Evrópu. Um flærnar á rott­unum sem bera með sér sýkil­inn Yersinia Pestis. Yersinia - það hljómar eins og ein­hver sem er með móð­ur­systur manns í sauma­klúbbi, hugsar Guðbjörg og heldur áfram að lesa um svarta­dauða sem fáum eirði eftir að hann steig á land í Evrópu 1346.  Guðbjörg er aðal­per­sóna bókar Auðar Haralds, Hvað er Drottinn að drolla? sem kom út fyrir nokkrum dögum, en sög­una skrif­aði Auður fyrir hart­nær ald­ar­fjórð­ungi. „Sagan byrjar á því að Guðbjörg fer óvilj­andi í tíma­ferða­lag og lendir árið 1346 í Englandi. Hún …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár