„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
Traustið er glatað Anna María segir að seina­gang­ur­inn og sam­skipta­leysið sem henni þykir hafi ein­kennt rann­sókn­ina á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti valdi því að hún hafi misst trúna. „Ég held að það eigi að þagga allt niður sem við urðum fyrir“ Mynd: Stundin / Davíð Þór

„Ingj­aldur réðst á mig því ég fór ekki með Fað­ir­vorið.“ Þannig segir Anna María Ing­veldur Larsen að dvöl sín á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti í Eyja­firði hafi haf­ist. Anna María var vistuð í Varp­holti um ell­efu mán­aða skeið á árunum 1998 til 1999.

Hún segir að dvölin þar hafi markað allt hennar líf fram á þennan dag. Þann mikla seina­gang og skeyt­ing­ar­leysi, sem ein­kenni störf nefndar sem rann­saka á ásak­anir um að börn sem vistuð voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beitt ofbeldi, upp­lifi hún sem end­ur­tekið ofbeldi af hálfu hins opin­bera.

Segir Ingjald hafa ráð­ist á sigAnna María er tólfta konan sem lýsir því í við­tölum við Stundina að Ingj­aldur Arn­þórs­son hafi beitt sig ofbeldi.

Ingj­aldur, sem Anna María segir að hafi ráð­ist á sig, er Arn­þórs­son, for­stöðu­maður með­ferð­ar­heim­il­is­ins til tíu ára. Ellefu konur hafa lýst því í við­tölum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Elisabet Einarsdottir skrifaði
    Þessi framkoma við börn og foreldra sem treystu á ,,fagaðila,, sem eru á háum launum á okkar kostnað er óforkastanleg. Það er mygla í samkennd og virðingu fyrir fólki og allt of mikið af óhæfu fólki sem hefur valist í þennan málaflokk.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár