Til hvers eru skáld?

Þor­valdur Gylfason ræðir við Kristján Hreins­son.

Til hvers eru skáld?

Við sitjum hér í sum­ar­blíðu við sunn­an­vert Gar­da­vatn í Lang­barða­landi á Norður-Ítalíu, við skáldið og heim­spek­ing­ur­inn sem reif sig upp úr Skerja­firð­inum og flutt­ist til Mílanó í miðju heims­ins. Við erum hér ásamt fríðu föru­neyti á tón­leika­ferð með Ítölsku söngvabók­ina okkar hring­inn í kringum vatnið fagra og spjöllum um heima og geima og þó mest um Kristján sjálfan, nema hvað. Hann er þaul­reyndur skemmti­kraftur. Sjálfur hef ég hvergi troðið upp sem slíkur nema einu sinni í Jök­ul­fjörð­unum. 

Þor­valdur Gylfason: Segðu mér, Kristján, til hvers eru skáld?

Kristján Hreins­son: Skáldum er ætlað að rétta gang mann­lífs­ins, benda á víti til að var­ast. Eitt sinn var sagt um ungan mann sem bjó ekki svo langt frá æsku­stöðvum mínum: Hann er svo mik­ill ónytj­ungur að hann verður ann­að­hvort skáld eða prestur.

Þor­valdur: Æsku­stöðv­unum seg­irðu. Ertu að tala um Ísafjörð?

Kristján: Nei, Kópavog. En ég ákvað að ger­ast Ísfirð­ingur. Held að það séu sjálf­sögð …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár