Hlæja og grípa andann á lofti með ókunnugum

Stjórn­endur Bíó Paradís létu sig ekki vanta á Cannes-hátíðina og horfðu á tugi mynda til þess að geta valið þær áhuga­verðustu til sýninga á Íslandi. Þær eru þaulvanir hátíðar­gestir eftir margar ferðir í borgina, en lentu í kröppum dansi í fyrstu heim­sókninni þegar þær deildu óvart íbúð með öldruðum nýnasista.

Hrönn Sveinsdóttir og Ása Baldursdóttir
Hrönn Sveins­dóttir og Ása Bald­urs­dóttir Aðstand­endur Bíó Paradís hafa sótt Cannes heim í áraraðir til að velja list­rænar myndir til sýn­inga á Íslandi. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Það eru ekki bara kvik­myndagerðar­fólk, leikarar og áhorf­endur sem flykkjast til litla bæjarins Cannes á meðan kvikmynda­hátíðin stendur yfir á hverju vori. Fyrir utan þau sem koma að fram­leiðslu sjálfra myndanna þá mæta einnig þau sem vilja kaupa þær áhuga­verðustu og dreifa þeim um heiminn allan.

Frá Íslandi eru þetta stjórn­endur Bíó Paradís, þær Hrönn Sveins­dóttir framkvæmda­stjóri og Ása Baldurs­dóttir dagskrár­stjóri. Þær eru fasta­gestir á hátíðinni og horfa á tugi mynda til þess að geta valið þær sem þeim finnst mikil­vægast að komi fyrir sjónir íslenskra áhorfenda, sem að öðrum kosti hefðu fá tækifæri til að ná þeim á hvíta tjaldinu. Um þessar mundir er verið að vinna endur­bætur á Bíó Paradís, verið að setja nýtt hljóð­kerfi í stærsta salinn og einnig búið að bæta aðgengi fatlaðra að sölunum.

Stundin ræddi við Hrönn og Ásu skammt frá hátíðar­svæðinu til þess að komast betur að því hvernig þær velja …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stundin á Cannes

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár